„Blik 1969/Ruddar markverðar brautir, I. hluti“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

(11 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON]] | [[Blik 1969|Efnisyfirlit 1969]] | ||
[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|ÞORSTEINN Þ. VÍGLUNDSSON]]: | |||
Ruddar markverðar brautir  | |||
''Fyrstu vélaverkstæðin í Vestmannaeyjum'' | |||
(Fyrri hluti) | |||
'''1. Þáttur [[Matthías Finnbogason|Matthíasar Finnbogasonar]]''' | |||
[[Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorsteinn heitinn Jónsson]], útgerðarmaður og skipstjóri í Laufási, og hinir dugmiklu félagar hans um fyrstu vélbátaútgerðina í Vestmannaeyjum, fóru í fyrsta róðurinn á nýja vélbátnum, [[Unnur VE-80|Unni VE 80]], 3. febrúar 1906.
| [[Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorsteinn heitinn Jónsson]], útgerðarmaður og skipstjóri í Laufási, og hinir dugmiklu félagar hans um fyrstu vélbátaútgerðina í Vestmannaeyjum, fóru í fyrsta róðurinn á nýja vélbátnum, [[Unnur VE-80|Unni VE 80]], 3. febrúar 1906.

[[Mynd: 1969 b 293 A.jpg|thumb|350px|''Matthías Finnbogason.

''Fæddur er hann að Prestshúsum í Reynishverfi í Mýrdal 25. apríl 1882. Foreldrar: Finnbogi Einarsson (hreppstjóra í Þórisholti Jóhannssonar) og konu hans, Matthildar Pálsdóttur. Kona Matthíasar Finnbogasonar var frú Sigríður Þorsteinsdóttir frá Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum.'']] | |||
Illa hafði verið spáð fyrir þessu framtaki þeirra félaga að festa kaup á vélbáti til fiskveiða hér við Eyjar. En von og trú þeirra félaga lét sér ekki til skammar verða. Þessa fyrstu vertíð vélbátaútvegsins hér, ef ég mætti orða það þannig, fóru þeir á litla vélbátnum fleiri róðra en hinir djörfustu og bezt menntu formenn á áraskipunum og öfluðu jafnframt mikið meira.
| Illa hafði verið spáð fyrir þessu framtaki þeirra félaga að festa kaup á vélbáti til fiskveiða hér við Eyjar. En von og trú þeirra félaga lét sér ekki til skammar verða. Þessa fyrstu vertíð vélbátaútvegsins hér, ef ég mætti orða það þannig, fóru þeir á litla vélbátnum fleiri róðra en hinir djörfustu og bezt menntu formenn á áraskipunum og öfluðu jafnframt mikið meira.

Mikilvæg og markverð hugsjón rættist, og hitamagn „fór um önd“ þeirra, sem hrintu henni í framkvæmd. Allir hinir voru ásjáendur og höfðu hitann í haldinu, hefðu svo fegnir viljað þá þegar eiga vélbát, og réru brátt að því öllum árum að eignast hlut í vélknúinni fleytu eins og Þorsteinn og félagar hans áttu þá þegar.
| Mikilvæg og markverð hugsjón rættist, og hitamagn „fór um önd“ þeirra, sem hrintu henni í framkvæmd. Allir hinir voru ásjáendur og höfðu hitann í haldinu, hefðu svo fegnir viljað þá þegar eiga vélbát, og réru brátt að því öllum árum að eignast hlut í vélknúinni fleytu eins og Þorsteinn og félagar hans áttu þá þegar.

Lína 20: | Lína 32: | ||
Ekki mun víða í landinu hafa búið almennt ríkari smíðigáfa og handlagni en með Eyjabúum, sérstaklega þeim, sem aðfluttir voru á fyrstu áratugunum eftir aldamótin. Fjölmargir þeirra, sem búsettu sig þar á fyrstu uppgangs- og vaxtarárum vélbátaflotans, fluttust úr Rangárvalla- og | Ekki mun víða í landinu hafa búið almennt ríkari smíðigáfa og handlagni en með Eyjabúum, sérstaklega þeim, sem aðfluttir voru á fyrstu áratugunum eftir aldamótin. Fjölmargir þeirra, sem búsettu sig þar á fyrstu uppgangs- og vaxtarárum vélbátaflotans, fluttust úr Rangárvalla- og | ||
Vestur-Skaftafellssýslu eða voru ættaðir þaðan. Í þeim sýslum hafði ávallt svo lengi sem sögur greindu búið margir hagleiksmenn, Völundar til smíða á tré og járn, oft snillingar með afbrigðum. Þeirra eiginleika naut nú vélbátaútvegur Eyjabúa í ríkum mæli, einmitt nú á þessum frumbýlings- og byltingarárum í | Vestur-Skaftafellssýslu eða voru ættaðir þaðan. Í þeim sýslum hafði ávallt svo lengi sem sögur greindu búið margir hagleiksmenn, Völundar til smíða á tré og járn, oft snillingar með afbrigðum. Þeirra eiginleika naut nú vélbátaútvegur Eyjabúa í ríkum mæli, einmitt nú á þessum frumbýlings- og byltingarárum í | ||
atvinnulífinu, er hið meðfædda brjóstvit og náðargáfa þjóðhagasmiðsins varð styrkasta stoðin og uppspretta úrræðanna, þar sem tækniþekkinguna og reynsluna skorti gjörsamlega. Það er vitað, að í þessum nefndu sýslum fengu útvegsbændur í Eyjum smíðuð kunnustu og beztu opnu skipin sín um aldir, mestu happafleyturnar í verstöðinni. Síðustu dæmin í þessum efnum eru áttæringarnir Trú, Ísak og Gideon, sem smíðuð voru öll á Ljótarstöðum í Landeyjum á fyrri hluta 19. aldar.
| atvinnulífinu, er hið meðfædda brjóstvit og náðargáfa þjóðhagasmiðsins varð styrkasta stoðin og uppspretta úrræðanna, þar sem tækniþekkinguna og reynsluna skorti gjörsamlega. Það er vitað, að í þessum nefndu sýslum fengu útvegsbændur í Eyjum smíðuð kunnustu og beztu opnu skipin sín um aldir, mestu happafleyturnar í verstöðinni. Síðustu dæmin í þessum efnum eru áttæringarnir [[Trú, áraskip|Trú]], [[Ísak, áraskip|Ísak]] og [[Gideon]], sem smíðuð voru öll á Ljótarstöðum í Landeyjum á fyrri hluta 19. aldar.

Einn af þessum hagleiksmönnum, sem búsett hafði sig í Eyjum um eða eftir aldamótin var Matthías Finnbogason frá Prestshúsum í Mýrdal, sem enn er lífs á meðal okkar, nú á níræðisaldri. Hann hefur lengst af verið kenndur hér við íbúðarhús sitt að [[Hásteinsvegur|Hásteinsvegi]] 24, [[Litlhólar|Litlhóla]]. | Einn af þessum hagleiksmönnum, sem búsett hafði sig í Eyjum um eða eftir aldamótin var Matthías Finnbogason frá Prestshúsum í Mýrdal, sem enn er lífs á meðal okkar, nú á níræðisaldri. Hann hefur lengst af verið kenndur hér við íbúðarhús sitt að [[Hásteinsvegur|Hásteinsvegi]] 24, [[Litlhólar|Litlhóla]]. | ||
Lína 45: | Lína 57: | ||
Þrjú ár liðu og rúmlega það. Matthías Finnbogason gat ekki orðið annað öllu því, sem á hann kallaði til hjálpar og starfa í hinum örtvaxandi vélbátaútvegi Eyjabúa. Snillingurinn frá Jaðri átti þar í vök að verjast, ef svo andstætt mætti að orði komast í þessum efnum, því að hann varðist hvergi, en veitti alla þá þjónustu, er hann gat frekast í té látið hinum vaxandi útvegi. En geta hans hrökk ekki til, — eina vélaverkstæðið í Vestmannaeyjum. Hinn örtvaxandi vélbátaútvegur krafðist hraðari vélaviðgerða en einn maður gat innt af hendi. | Þrjú ár liðu og rúmlega það. Matthías Finnbogason gat ekki orðið annað öllu því, sem á hann kallaði til hjálpar og starfa í hinum örtvaxandi vélbátaútvegi Eyjabúa. Snillingurinn frá Jaðri átti þar í vök að verjast, ef svo andstætt mætti að orði komast í þessum efnum, því að hann varðist hvergi, en veitti alla þá þjónustu, er hann gat frekast í té látið hinum vaxandi útvegi. En geta hans hrökk ekki til, — eina vélaverkstæðið í Vestmannaeyjum. Hinn örtvaxandi vélbátaútvegur krafðist hraðari vélaviðgerða en einn maður gat innt af hendi. | ||
'''2. Smiðjufélag Vestmannaeyja'''  | |||
Haustið 1911 tóku ýmsir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum að ræða nauðsyn þess að stofna vélaverkstæði, sem fullnægt gæti sem allra mest og bezt hinum miklu þörfum vélbátaútvegsins um viðgerðir og smíði hluta í bátavélarnar. Þessar bollaleggingar leiddu til þess, að umburðarbréf var sent um byggðina til útgerðarmanna fyrst og fremst og boðið að skrifa sig fyrir fjárframlagi, — hlutafé, til þessa nýja fyrirtækis.
| Haustið 1911 tóku ýmsir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum að ræða nauðsyn þess að stofna vélaverkstæði, sem fullnægt gæti sem allra mest og bezt hinum miklu þörfum vélbátaútvegsins um viðgerðir og smíði hluta í bátavélarnar. Þessar bollaleggingar leiddu til þess, að umburðarbréf var sent um byggðina til útgerðarmanna fyrst og fremst og boðið að skrifa sig fyrir fjárframlagi, — hlutafé, til þessa nýja fyrirtækis.

Aðalforgöngumaður þessa máls var [[Karl Einarsson|Karl sýslumaður Einarsson]], sem þá hafði verið sýslumaður í Eyjum á annað ár. | Aðalforgöngumaður þessa máls var [[Karl Einarsson|Karl sýslumaður Einarsson]], sem þá hafði verið sýslumaður í Eyjum á annað ár. | ||
Umburðarbréfið:  | |||
Undirritaðir, sem hafa komið sér saman um að reyna að stofna hlutafélag, er setji á stofn mótorverksmiðju hér undir forustu herra [[Jóhann Hansson|Jóhanns Hanssonar]] frá Seyðisfirði og kaupi verksmiðju herra Matthíasar Finnbogasonar, ef um semst, leyfa sér hér með að biðja þá, sem leggja vilja fram fé í þessu skyni, að rita fjárhæðina og nöfn sín á eftirfarandi lista. Ætlazt er til, að hlutaféð greiðist fyrir mitt næsta sumar.
| Undirritaðir, sem hafa komið sér saman um að reyna að stofna hlutafélag, er setji á stofn mótorverksmiðju hér undir forustu herra [[Jóhann Hansson|Jóhanns Hanssonar]] frá Seyðisfirði og kaupi verksmiðju herra Matthíasar Finnbogasonar, ef um semst, leyfa sér hér með að biðja þá, sem leggja vilja fram fé í þessu skyni, að rita fjárhæðina og nöfn sín á eftirfarandi lista. Ætlazt er til, að hlutaféð greiðist fyrir mitt næsta sumar.

Fáist nægilegt fé til þess að félagið verði stofnað, verða hluthafar (þeir sem hafa ritað sig fyrir fjárframlagi) kallaðir á fund til þess að kjósa stjórn og ræða um nánara fyrirkomulag.
| Fáist nægilegt fé til þess að félagið verði stofnað, verða hluthafar (þeir sem hafa ritað sig fyrir fjárframlagi) kallaðir á fund til þess að kjósa stjórn og ræða um nánara fyrirkomulag.

Karl Einarsson Jón Einarsson (Gjábakka) Jóel Eyjólfsson Þorsteinn Jónsson | [[Mynd: 1969 b 301 A.jpg|500px|thumb|''Hús Smiðjufélags Vestmannaeyja, byggt sumarið 1912.'']] | ||
Karl Einarsson, Jón Einarsson (Gjábakka), Jóel Eyjólfsson, Þorsteinn Jónsson, Anton Bjarnasen, Símon Egilsson | |||
:Vestmannaeyjum, 3. desember 1911.
| :Vestmannaeyjum, 3. desember 1911.

Karl Einarsson
| Karl Einarsson

[[Jón Einarsson|Jón Einarsson, Gjábakka]]
| [[Jón Einarsson (kaupmaður)|Jón Einarsson]], [[Gjábakki|Gjábakka]]

[[Jóel Eyjólfsson]]
| [[Jóel Eyjólfsson]]

Þorsteinn Jónsson
| Þorsteinn Jónsson

[[Anton Bjarnasen]]
| [[Anton Bjarnasen (Garðinum)|Anton Bjarnasen]]

[[Símon Egilsson]]
| [[Símon Egilsson (Miðey)|Símon Egilsson]]

[[Gunnar Ólafsson]]
| [[Gunnar Ólafsson (kaupmaður)|Gunnar Ólafsson]]

[[Jón Einarsson | [[Jón Einarsson (Hrauni)|Jón Einarsson]], [[Hraun]]i

[[Friðrik Þorsteinsson ]]
| [[Friðrik Þorsteinsson (Lundi)|Friðrik Þorsteinsson ]]

[[Ágúst Gíslason]]
| [[Ágúst Gíslason]]

[[Geir Guðmundsson]]
| [[Geir Guðmundsson]]

Lína 83: | Lína 101: | ||
|3||Karl Einarsson||[[Hof]]i||500,00 | |3||Karl Einarsson||[[Hof]]i||500,00 | ||

|4||[[Helgi Guðmundsson]]||[[Dalbær|Dalbæ]]||25,00 | |4||[[Ritverk Árna Árnasonar/Helgi Guðmundsson (Dalbæ)]]||[[Dalbær|Dalbæ]]||25,00 | ||

|5 ||[[Jón Einarsson | |5 ||[[Jón Einarsson (Stóra-Hvammi)|Jón Einarsson]]||[[Stóri-Hvammur|Hvammi]]||100,00 | ||

|6||[[Sigurður Oddsson]]||[[Skuld]]||25,00 | |6||[[Sigurður Oddsson (Skuld)|Sigurður Oddsson]]||[[Skuld]]||25,00 | ||

|7||[[Lárus Halldórsson]]||[[Völlur|Velli]]||50,00 | |7||[[Lárus Halldórsson (Velli)|Lárus Halldórsson]]||[[Völlur|Velli]]||50,00 | ||

|8||[[Jón Ingileifsson]]||[[Reykholt (eldra)|Reykholti]]||25,00 | |8||[[Jón Ingileifsson]]||[[Reykholt (eldra)|Reykholti]]||25,00 | ||

|9||[[Jónas Jónsson | |9||[[Jónas Jónsson (Múla)|Jónas Jónsson]]||[[Múli|Múla]]||50,00 | ||

|10||[[Guðmundur Þórðarson | |10||[[Guðmundur Þórðarson (Akri)|Guðmundur Þórðarson]]||[[Akur|Akri]]||25,00 | ||

|11||[[Magnús Þórðarson]]||[[Dalur|Dal]]||25,00 | |11||[[Magnús Þórðarson (Dal)|Magnús Þórðarson]]||[[Dalur|Dal]]||25,00 | ||

|12||[[Sigurður Ólafsson | |12||[[Sigurður Ólafsson (Bólstað)|Sigurður Ólafsson]]||[[Bólstaður|Bólstað]]||50,00 | ||

|13||[[Bernótus Sigurðsson]]||[[Stakkagerði]]||25,00 | |13||[[Bernótus Sigurðsson|Bernótus Sigurðsson]]||[[Stakkagerði]]||25,00 | ||

|14||[[Einar Sveinsson]]||[[Geitháls]]i||25,00 | |14||[[Einar Sveinsson (Geithálsi)|Einar Sveinsson]]||[[Geitháls]]i||25,00 | ||

|15||Símon Egilsson||[[Miðey]]||50,00 | |15||Símon Egilsson (Miðey)|Símon Egilsson||[[Miðey]]||50,00 | ||

|16||[[Benedikt Friðriksson]]||[[Þingvellir|Þingvöllum]]||25,00 | |16||[[Benedikt Friðriksson (skósmiður)|Benedikt Friðriksson]]||[[Þingvellir|Þingvöllum]]||25,00 | ||

|17||[[Vigfús P. Scheving]]||[[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]]||100,00 | |17||[[Vigfús P. Scheving (Vilborgarstöðum)|Vigfús P. Scheving]]||[[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]]||100,00 | ||

|18||Þorsteinn Jónsson||[[Laufás]]i||100,00 | |18||Þorsteinn Jónsson (Laufási)|Þorsteinn Jónsson||[[Laufás]]i||100,00 | ||

|19||[[Sveinn P. Scheving]]||[[Hjalli|Hjalla]]||25,00 | |19||[[Sveinn P. Scheving]]||[[Hjalli|Hjalla]]||25,00 | ||

|20||[[Helgi Jónsson | |20||[[Helgi Jónsson (Steinum)|Helgi Jónsson]]||[[Steinar|Steinum]]||50,00 | ||

|21||[[Þorsteinn Ólafsson | |21||[[Þorsteinn Ólafsson (Háagarði)|Þorsteinn Ólafsson]]||[[Kirkjubær|Kirkjubæ]]||25,00 | ||

|22||[[Guðjón Þórðarson | |22||[[Guðjón Þórðarson (Heklu)|Guðjón Þórðarson]]||[[Hekla|Heklu]]||25,00 | ||

|23||[[Gunnlaugur Sigurðsson]]||[[Gjábakki|Gjábakka]]||12,50 | |23||[[Gunnlaugur Sigurðsson (Gjábakka)|Gunnlaugur Sigurðsson]]||[[Gjábakki|Gjábakka]]||12,50 | ||

|24||[[Friðrik Benónýsson]]||[[Gröf]]||12,50 | |24||[[Friðrik Benónýsson]]||[[Gröf]]||12,50 | ||
Lína 129: | Lína 147: | ||
|26||[[Sveinn Jónsson (Landamótum)|Sveinn Jónsson]]||[[Landamót]]um||25,00 | |26||[[Sveinn Jónsson (Landamótum)|Sveinn Jónsson]]||[[Landamót]]um||25,00 | ||

|27||[[Snorri Þórðarson]]||[[Steinn|Steini]]||25,00 | |27||[[Snorri Þórðarson (Steini)|Snorri Þórðarson]]||[[Steinn|Steini]]||25,00 | ||

|28||[[Magnús Guðmundsson]]||[[Vesturhús]]um||50,00 | |28||[[Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)|Magnús Guðmundsson]]||[[Vesturhús]]um||50,00 | ||

|29||Jón Einarsson||[[Gjábakki|Gjábakka]]||500,00 | |29||Jón Einarsson (kaupmaður)|Jón Einarsson||[[Gjábakki|Gjábakka]]||500,00 | ||

|30||[[Þorsteinn Sigurðsson | |30||[[Þorsteinn Sigurðsson (Laugardal)|Þorsteinn Sigurðsson]]||[[Laugardalur|Laugardal]]||25,00 | ||

|31||[[Árni Jónsson | |31||[[Árni Jónsson (Görðum)|Árni Jónsson]]||[[Garðar|Görðum]]||25,00 | ||

|32||[[Vigfús Jónsson (formaður)|Vigfús Jónsson]]||[[Holt]]i||25,00 | |32||[[Vigfús Jónsson (formaður)|Vigfús Jónsson]]||[[Holt]]i||25,00 | ||

|33||[[Magnús Ísleifsson]]||[[London]]||50,00 | |33||[[Magnús Ísleifsson (London)|Magnús Ísleifsson]]||[[London]]||50,00 | ||

|34||[[Friðrik Svipmundsson]]||[[Lönd]]um||50,00 | |34||[[Friðrik Svipmundsson]]||[[Lönd]]um||50,00 | ||

|35||[[Friðrik Þorsteinsson]]||[[Lundur|Lundi]]||100,00 | |35||[[Friðrik Þorsteinsson (Lundi)|Friðrik Þorsteinsson]]||[[Lundur|Lundi]]||100,00 | ||

|36||Gunnar Ólafsson||[[Vík]]||200,00 | |36||[[Gunnar Ólafsson (kaupmaður)|Gunnar Ólafsson]] ||[[Vík]]||200,00 | ||

|37||[[Jóhann Þ. Jósefsson]]||[[Fagurlyst]]||100,00 | |37||[[Jóhann Þ. Jósefsson]]||[[Fagurlyst]]||100,00 | ||

|38||[[Kristinn Jónsson | |38||[[Kristinn Jónsson (Mosfelli)|Kristinn Jónsson]]||[[Breiðholt]]i||25,00 | ||

|39||[[Þórarinn Gíslason | |39||[[Þórarinn Gíslason (Lundi)|Þórarinn Gíslason]]||[[Lundur|Lundi]]||50,00 | ||

|40||[[Brandur Sigurðsson | |40||[[Brandur Sigurðsson (Strandbergi)|Brandur Sigurðsson]]||[[Strandberg]]i||25,00 | ||

|41||[[Jónatan Snorrason]]||[[Breiðholt]]i||25,00 | |41||[[Jónatan Snorrason]]||[[Breiðholt]]i||25,00 | ||
Lína 161: | Lína 179: | ||
|42||Jóel Eyjólfsson||[[Sælundur|Sælundi]]||25,00 | |42||Jóel Eyjólfsson||[[Sælundur|Sælundi]]||25,00 | ||

|43||[[Sigurjón Jónsson | |43||[[Sigurjón Jónsson (Víðidal)|Sigurjón Jónsson]]||[[Víðidalur|Víðidal]]||25,00 | ||

|44||[[Jón Eyjólfsson | |44||[[Jón Eyjólfsson (Grund)|Jón Eyjólfsson]]||[[Grund]]||25,00 | ||

|45||Anton Bjarnasen||[[Dagsbrún]]||50,00 | |45||Anton Bjarnasen (Garðinum)|Anton Bjarnasen||[[Dagsbrún]]||50,00 | ||

|46||[[Bjarni Einarsson | |46||[[Bjarni Einarsson (Hlaðbæ)|Bjarni Einarsson]]||[[Hlaðbær(Austurvegur)|Hlaðbæ]]||50,00 | ||

|47||[[Stefán Guðlaugsson]]||[[Gerði-litla|Gerði]]||50,00 | |47||[[Stefán Guðlaugsson]]||[[Gerði-litla|Gerði]]||50,00 | ||
Lína 173: | Lína 191: | ||
|48||[[Ólafur Auðunsson]]||[[Þinghóll|Þinghól]]||50,00 | |48||[[Ólafur Auðunsson]]||[[Þinghóll|Þinghól]]||50,00 | ||

|49||[[Jón Gíslason | |49||[[Jón Gíslason (Ármótum)|Jón Gíslason]]||[[Sandprýði]]||50,00 | ||

|50||[[Einar Símonarson | |50||[[Einar Símonarson (London)|Einar Símonarson]]||[[London]]||25,00 | ||

|51||[[Árni Gíslason]]||[[Frydendal]]||100,00 | |51||[[Árni Gíslason (Frydendal)|Árni Gíslason]]||[[Frydendal]]||100,00 | ||

|52||[[Sigurður Ingimundarson]]||[[Skjaldbreið]]||50,00 | |52||[[Sigurður Ingimundarson (Skjaldbreið)|Sigurður Ingimundarson]]||[[Skjaldbreið]]||50,00 | ||

|53||[[Bjarni Bjarnason (Hoffelli)|Bjarni Bjarnason]]||[[Hoffell]]i||50,00 | |53||[[Bjarni Bjarnason (Hoffelli)|Bjarni Bjarnason]]||[[Hoffell]]i||50,00 | ||

|54||[[Þórður Jónsson]]||[[Berg]]i||25,00 | |54||[[Þórður Jónsson (Bergi)|Þórður Jónsson]]||[[Berg]]i||25,00 | ||

|55||[[Halldór Gunnlaugsson]]||[[Kirkjuhvoll|Kirkjuhvoli]] (læknir)||200,00 | |55||[[Halldór Gunnlaugsson]]||[[Kirkjuhvoll|Kirkjuhvoli]] (læknir)||200,00 | ||
Lína 189: | Lína 207: | ||
|56||[[Kristján Ingimundarson]]||[[Klöpp]]||50,00 | |56||[[Kristján Ingimundarson]]||[[Klöpp]]||50,00 | ||

|57||[[Sigríður Eyþórsdóttir]]||[[Reynir|Reyni]]||100,00 | |57||[[Sigríður Eyþórsdóttir (Reyni)|Sigríður Eyþórsdóttir]]||[[Reynir|Reyni]]||100,00 | ||

|58||[[Guðmundur Benediktsson | |58||[[Guðmundur Benediktsson (Grafarholti)|Guðmundur Benediktsson]]||[[Grafarholt]]i||25,00 | ||

|59||[[Sigfús | |59||[[Sigfús Scheving]]||[[Heiðarhvammur|Heiðarhvammi]]||25,00 | ||

|60||[[Ólafur Jónsson | |60||[[Ólafur Jónsson (Garðhúsum)|Ólafur Jónsson]]||[[Garðhús]]um||25,00 | ||

|61||[[Stefán Björnsson]]||[[Skuld]]||25,00 | |61||[[Stefán Björnsson (Skuld)|Stefán Björnsson]]||[[Skuld]]||25,00 | ||

|62||Guðmundur Magnússon||||25,00 | |62||Guðmundur Magnússon||||25,00 | ||

|63||[[Jón Einarsson | |63||[[Jón Einarsson (Höfðabrekku)|Jón Einarsson]]||frá Fjalli, [[Höfðabrekka|Höfðabrekku]]||25,00 | ||

|64||[[Sigurlaug Guðmundsdóttir | |64||[[Sigurlaug Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)|Sigurlaug Guðmundsdóttir]]||[[Miðgarður|Miðgarði]]||25,00 | ||

|65||[[Högni Sigurðsson | |65||[[Högni Sigurðsson (hreppstjóri)|Högni Sigurðsson]]||[[Baldurshagi|Baldurshaga]]||75,00 | ||

|66||[[Gísli Magnússon]]||[[Skálholt]]i||50,00 | |66||[[Gísli Magnússon]]||[[Skálholt]]i||50,00 | ||
Lína 213: | Lína 231: | ||
|68||Jóhann Hansson||Seyðisfirði||500,00 | |68||Jóhann Hansson||Seyðisfirði||500,00 | ||

|69||[[Einar Jónsson | |69||[[Einar Jónsson (Garðhúsum)|Einar Jónsson]]||[[Garðhús]]um||25,00 | ||

|70||Gissur Filipusson||||200,00 | |70||Gissur Filipusson||||200,00 | ||

|71||[[Ágúst Guðmundsson | |71||[[Ágúst Guðmundsson (Birtingarholti)|Ágúst Guðmundsson]]||[[Birtingarholt|Birtingarholti]]||50,00 | ||

|72||[[Gísli Lárusson]]||[[Stakkagerði]]||50,00 | |72||[[Gísli Lárusson]]||[[Stakkagerði]]||50,00 | ||
Lína 230: | Lína 248: | ||
Orð og tillögur J.H. fengu góðan byr á fundinum. Gengið var til stjórnarkjörs. Í þessa fyrstu (og síðustu) stjórn félagsins voru kosnir: | Orð og tillögur J.H. fengu góðan byr á fundinum. Gengið var til stjórnarkjörs. Í þessa fyrstu (og síðustu) stjórn félagsins voru kosnir: | ||
:Gunnar Ólafsson, kaupm. ..41 atkv.
| :Gunnar Ólafsson, kaupm.....41 atkv.

:Þorsteinn Jónsson, Laufási 30 —
| :Þorsteinn Jónsson, Laufási 30 —

:Ágúst Gíslason, Landlyst .. 19 —
| :Ágúst Gíslason, Landlyst .. 19 —

Lína 240: | Lína 258: | ||
Tillaga þessi var „söltuð“, — skyldi bíða seinni tíma.
| Tillaga þessi var „söltuð“, — skyldi bíða seinni tíma.

Daginn eftir stofnfundinn hélt hin nýkjörna stjórn „Mótorverksmiðjufélagsins“ fund með sér heima í Vík hjá Gunnari Ólafssyni. Þann fund sátu einnig Matthías Finnbogason og Jóhann Hansson. Á fundi þessum var farið þess á flot við Matthías, að hann gæfi „verksmiðjunni“ kost á að kaupa verkfærin hans að Jaðri. Matthías kvað sig fúsan að selja. Kvað hann samkvæmt lauslegri áætlun, að söluverð véla hans og verkfæra mundi verða um kr. 4.000,00. Jafnframt var Matthías spurður þess, hvort hann væri fús til að vinna á verkstæði „verksmiðjunnar“, og taldi hann sig fúsan til þess, og mundi hann gera sig ánægðan með 45 aura fyrir hverja unna klukkustund á venjulegum vinnutíma. Ráðningin skyldi vera til eins árs.
| Daginn eftir stofnfundinn hélt hin nýkjörna stjórn „Mótorverksmiðjufélagsins“ fund með sér heima í Vík hjá Gunnari Ólafssyni. Þann fund sátu einnig Matthías Finnbogason og Jóhann Hansson. Á fundi þessum var farið þess á flot við Matthías, að hann gæfi „verksmiðjunni“ kost á að kaupa verkfærin hans að Jaðri. Matthías kvað sig fúsan að selja. Kvað hann samkvæmt lauslegri áætlun, að söluverð véla hans og verkfæra mundi verða um kr. 4.000,00. Jafnframt var Matthías spurður þess, hvort hann væri fús til að vinna á verkstæði „verksmiðjunnar“, og taldi hann sig fúsan til þess, og mundi hann gera sig ánægðan með 45 aura fyrir hverja unna klukkustund á venjulegum vinnutíma. Ráðningin skyldi vera til eins árs.

Á fundi þessum var stærð hins væntanlega „verksmiðjuhúss“ afráðin. Skyldi það vera 24 álnir (15,12 m) á lengd og 12 álnir (7,55 m) á breidd, — vegghæð 5 álnir (3,15 m) og port 1 1/2 alin (95 sm). Risið skyldi vera fremur lágt. Stærð hússins var afráðin samkvæmt tillögu Jóhanns Hanssonar, og lofaðist hann til að láta gera teikningu af byggingunni og senda stjórninni lista yfir vélar þær og verkfæri, sem nauðsynlegt var | Á fundi þessum var stærð hins væntanlega „verksmiðjuhúss“ afráðin. Skyldi það vera 24 álnir (15,12 m) á lengd og 12 álnir (7,55 m) á breidd, — vegghæð 5 álnir (3,15 m) og port 1 1/2 alin (95 sm). Risið skyldi vera fremur lágt. Stærð hússins var afráðin samkvæmt tillögu Jóhanns Hanssonar, og lofaðist hann til að láta gera teikningu af byggingunni og senda stjórninni lista yfir vélar þær og verkfæri, sem nauðsynlegt var að festa kaup á þá þegar.

Þetta gerði hann fljótt og vel.
| Þetta gerði hann fljótt og vel.

Jóhann Hansson áskildi sér kr. 1.200,00 í laun yfir árið fyrir það að kaupa inn vélar og verkfæri handa verkstæði félagsins og sjá um uppsetningu á vélunum. Auk þess hét hann því að vinna á verkstæði Smiðjufélagsins ekki skemur en 3 mánuði á vertíð næsta vetrar (1913) eftir því sem tíminn henti honum. | Jóhann Hansson áskildi sér kr. 1.200,00 í laun yfir árið fyrir það að kaupa inn vélar og verkfæri handa verkstæði félagsins og sjá um uppsetningu á vélunum. Auk þess hét hann því að vinna á verkstæði Smiðjufélagsins ekki skemur en 3 mánuði á vertíð næsta vetrar (1913) eftir því sem tíminn henti honum. Öll voru þessi ákvæði gjörð með fyllsta samkomulagi beggja aðila.

Að lokum var Jóhanni „montör“ Hanssyni falið á þessum fundi stjórnarinnar að ráða starfsmann til smiðjunnar og forstöðumann, þegar hann sjálfur hefði ekki verkstjórnina á hendi.
| Að lokum var Jóhanni „montör“ Hanssyni falið á þessum fundi stjórnarinnar að ráða starfsmann til smiðjunnar og forstöðumann, þegar hann sjálfur hefði ekki verkstjórnina á hendi.

Hinn 15. marz 1912 boðaði stjórn „Verksmiðjufélagsins“, eins og það var kallað fyrst í stað, til fundar með félagsmönnum í þinghúsi sveitarinnar. Þar fullyrti formaður félagsins, Gunnar Ólafsson, konsúll, að eitthvað þyrfti að fara að huga til að koma upp hinni fyrirhuguðu byggingu „verksmiðjunnar“ og „hugsa fyrir kaupum á vélum“, eins og það er orðað í gildri heimild. Formaður gat þess í ræðu, að líkindi væru til, að Fiskiveiðasjóður Íslands lánaði eitthvert fé til fyrirtækisins, því að mikið fé skorti enn til þess að standa straum af öllum stofnkostnaði félagsins. Jafnframt gat formaður þess að greitt hlutafé næmi kr. 6.000,00.
| Hinn 15. marz 1912 boðaði stjórn „Verksmiðjufélagsins“, eins og það var kallað fyrst í stað, til fundar með félagsmönnum í þinghúsi sveitarinnar. Þar fullyrti formaður félagsins, Gunnar Ólafsson, konsúll, að eitthvað þyrfti að fara að huga til að koma upp hinni fyrirhuguðu byggingu „verksmiðjunnar“ og „hugsa fyrir kaupum á vélum“, eins og það er orðað í gildri heimild. Formaður gat þess í ræðu, að líkindi væru til, að Fiskiveiðasjóður Íslands lánaði eitthvert fé til fyrirtækisins, því að mikið fé skorti enn til þess að standa straum af öllum stofnkostnaði félagsins. Jafnframt gat formaður þess að greitt hlutafé næmi kr. 6.000,00.

Lína 251: | Lína 269: | ||
:Þorsteinn Jónsson ..........20 —
| :Þorsteinn Jónsson ..........20 —

:Ágúst Gíslason .............. 11 —
| :Ágúst Gíslason .............. 11 —

:Jón Einarsson, Gjábakka | :Jón Einarsson, Gjábakka .20 —

:Árni Filippusson ..............20 —
| :Árni Filippusson ..............20 —

Lína 263: | Lína 281: | ||
„Fundurinn veitir formanni Smiðjufélags Vestmannaeyja, Gunnari Ólafssyni, kaupmanni í Vestmannaeyjum, fullt og ótakmarkað umboð til þess að taka fyrir félagsins hönd allt að 10 þúsund króna lán úr Fiskveiðasjóði Íslands, og jafnframt umboð til þess að veðsetja eignir félagsins til tryggingar láninu, bæði húseign með tilheyrandi lóð, vélar og önnur verkfæri, svo og aðrar tryggingar, ef krafizt verður. Nær umboðið til þess að undirrita skuldabréf fyrir láninu og til alls annars, er að lántöku þessari lýtur. Heimilt er nefndum umboðsmanni félagsins að fela öðrum manni umboð þetta á hendur, og skal allt, sem gjörir eða lætur gjöra viðvíkjandi þessari lántöku, vera fullkomlega gilt og bindandi fyrir Smiðjufélag Vestmannaeyja.“ | „Fundurinn veitir formanni Smiðjufélags Vestmannaeyja, Gunnari Ólafssyni, kaupmanni í Vestmannaeyjum, fullt og ótakmarkað umboð til þess að taka fyrir félagsins hönd allt að 10 þúsund króna lán úr Fiskveiðasjóði Íslands, og jafnframt umboð til þess að veðsetja eignir félagsins til tryggingar láninu, bæði húseign með tilheyrandi lóð, vélar og önnur verkfæri, svo og aðrar tryggingar, ef krafizt verður. Nær umboðið til þess að undirrita skuldabréf fyrir láninu og til alls annars, er að lántöku þessari lýtur. Heimilt er nefndum umboðsmanni félagsins að fela öðrum manni umboð þetta á hendur, og skal allt, sem gjörir eða lætur gjöra viðvíkjandi þessari lántöku, vera fullkomlega gilt og bindandi fyrir Smiðjufélag Vestmannaeyja.“ | ||
[[Blik 1969/Ruddar markverðar brautir, II. hluti| | [[Blik 1969/Ruddar markverðar brautir, II. hluti| II. hluti]] | ||
{{Blik}} | {{Blik}} |
Núverandi breyting frá og með 17. nóvember 2016 kl. 21:57
Þorsteinn heitinn Jónsson, útgerðarmaður og skipstjóri í Laufási, og hinir dugmiklu félagar hans um fyrstu vélbátaútgerðina í Vestmannaeyjum, fóru í fyrsta róðurinn á nýja vélbátnum, Unni VE 80, 3. febrúar 1906.
Illa hafði verið spáð fyrir þessu framtaki þeirra félaga að festa kaup á vélbáti til fiskveiða hér við Eyjar. En von og trú þeirra félaga lét sér ekki til skammar verða. Þessa fyrstu vertíð vélbátaútvegsins hér, ef ég mætti orða það þannig, fóru þeir á litla vélbátnum fleiri róðra en hinir djörfustu og bezt menntu formenn á áraskipunum og öfluðu jafnframt mikið meira.
Mikilvæg og markverð hugsjón rættist, og hitamagn „fór um önd“ þeirra, sem hrintu henni í framkvæmd. Allir hinir voru ásjáendur og höfðu hitann í haldinu, hefðu svo fegnir viljað þá þegar eiga vélbát, og réru brátt að því öllum árum að eignast hlut í vélknúinni fleytu eins og Þorsteinn og félagar hans áttu þá þegar.
Svo var þá knúið á og leitað til þess manns í Eyjum, sem virtist hafa lykilinn að öllu, sem laut að verzlun og viðskiptum, útgerð og bátakaupum og öllum öðrum athöfnum í hinu daglega lífi Eyjafólks, atorkusamur og víðsýnn, áhugasamur og ákafur, er því var að skipta, velviljaður og gæddur miklu og farsælu fjármálaviti, kaupmaðurinn Gísli J. Johnsen.
Hann hófst handa um að útvega útgerðarmönnum byggðarlagsins vélbáta frá Danmörku.
Vetrarvertíðina 1907 urðu vélbátar Eyjabúa 22. Hver þeirra var sameign 5—6 manna. Samtals áttu hluti í þeim 119 menn, flestir heimilisfeður í sveitarfélaginu, útgerðarstöðinni.
Ný tækni í fiskveiðum ruddi sér til rúms. Aldahvörf áttu sér stað í
Vestmannaeyjum.
Flestir fyrstu vélbátarnir voru 8—9 smálestir að stærð með 8—10 hestafla vél. Helztu vélategundirnar í fyrstu bátunum voru Dan-, Möllerup-, Gideon- og Alfavélin.
Á þessum tímum brautarbrots og nýrrar tækni áttu Íslendingar mjög fáa vélfræðinga eða aðra kunnáttumenn um byggingu og meðferð bátavéla.
Þegar vélbátafloti Eyjamanna óx svo hröðum skrefum, varð þeim nauðsynlegra en flest annað, að lærðir menn í meðferð bátavélanna og viðgerðum á þeim, væru búsettir og starfandi í verstöðinni. Smíða þurfti heila vélahluti og svo inna af hendi margháttaðar viðgerðir á þeim svo að segja daglega, eftir að vetrarvertíð hófst, þó reyndust vélarnar gangvissar, en vankunnáttan var oft Þrándur í götu þess, að full not fengjust af þeim.
Þegar vélbátafloti Eyjabúa óx svo hröðum skrefum, varð atvinnulífinu þar nauðsynlegra en flest annað, að búsettir væru í verstöðinni kunnáttumenn um meðferð og viðgerðir bátavélanna og starfrækt vélaverkstæði með fullkomnum tækjum til að smíða og lagfæra vélahluti.
Ekki mun víða í landinu hafa búið almennt ríkari smíðigáfa og handlagni en með Eyjabúum, sérstaklega þeim, sem aðfluttir voru á fyrstu áratugunum eftir aldamótin. Fjölmargir þeirra, sem búsettu sig þar á fyrstu uppgangs- og vaxtarárum vélbátaflotans, fluttust úr Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu eða voru ættaðir þaðan. Í þeim sýslum hafði ávallt svo lengi sem sögur greindu búið margir hagleiksmenn, Völundar til smíða á tré og járn, oft snillingar með afbrigðum. Þeirra eiginleika naut nú vélbátaútvegur Eyjabúa í ríkum mæli, einmitt nú á þessum frumbýlings- og byltingarárum í
atvinnulífinu, er hið meðfædda brjóstvit og náðargáfa þjóðhagasmiðsins varð styrkasta stoðin og uppspretta úrræðanna, þar sem tækniþekkinguna og reynsluna skorti gjörsamlega. Það er vitað, að í þessum nefndu sýslum fengu útvegsbændur í Eyjum smíðuð kunnustu og beztu opnu skipin sín um aldir, mestu happafleyturnar í verstöðinni. Síðustu dæmin í þessum efnum eru áttæringarnir Trú, Ísak og Gideon, sem smíðuð voru öll á Ljótarstöðum í Landeyjum á fyrri hluta 19. aldar.
Einn af þessum hagleiksmönnum, sem búsett hafði sig í Eyjum um eða eftir aldamótin var Matthías Finnbogason frá Prestshúsum í Mýrdal, sem enn er lífs á meðal okkar, nú á níræðisaldri. Hann hefur lengst af verið kenndur hér við íbúðarhús sitt að Hásteinsvegi 24, Litlhóla.

Eins og ég drap á, reyndust vélarnar í fyrstu bátunum vissulega gangvissar, en þekkingarskorturinn hamlaði, hindraði full not af þeim og þeirri tækni til aukinna veiða, sem vélbátarnir í heild voru svo sannarlega. Margt þurfti að lagfæra, því að mörgu var ábótavant og margt gekk úr skorðum, ekki sízt í veðrabrigðum vetrarins og veðraham.
Sjaldnast var vélgæzlumaðurinn því vaxinn að lagfæra sjálfur það, sem aflaga fór í vélarrúminu, hvort sem það var olíuleiðsla, smurolíukerfið, gangráðurinn eða olíugjöfin, svo að eitthvað sé nefnt. Þá þurfti handlaginn útsjónarmann til að ráða bót á biluninni, og það sem allra fyrst, svo að veiðar heftust ekki eða tepptust nema sem allra styztan tíma af þeim sökum. Þá var snillingurinn Matthías Finnbogason jafnan kvaddur til hjálpar, enda boðinn og búinn til aðstoðar við vélarnar, eftir því sem brjóstvit hans og handlagni hrökk til, þó án allrar tæknikunnáttu og nauðsynlegra verkfæra eða smíðavéla á þessu sviði. Enginn í Eyjum fann því betur og skildi, hvar skórinn kreppti mest að um þekkingu og skilning á gerð vélanna og gangi, lagi og lögmáli en bóndasonur þessi frá Prestshúsum í Mýrdal.
Sumarið 1906 var mjög til Gísla J. Johnsen leitað um kaup á vélbátum til handa Eyjabúum. Hann brást vel við og festi kaup á þeim frá
Danmörku, ég held eingöngu frá Friðrikssundi. Jafnframt festi
P. T. Bryde, kaupmaður í Austurbúðinni, kaup á vélbátum fyrir nokkra Eyjabúa. Þá voru einnig búsettir þeir menn í Eyjum, sem þegar réðust í að láta smiði í kauptúninu byggja vélbáta undir Skiphellum. Þeir pöntuðu síðan vélar í þá frá Danmörku, flestir.
Smátt var um gjaldmiðilinn hjá mörgum þeim, sem báðu Gísla J. Johnsen að panta fyrir sig bát frá Danmörku. Gerðist hann þá gjarnan sjálfur meðeigandi til þess að létta mönnum válbátakaupin. Þannig gerðist hann meðeigandi í 8 vélbátum árið 1908, af 17, sem hann festi kaup á fyrir Eyjabúa það ár. Ekki er mér kunnugt um, að Bryde kaupmaður gerðist meðeigandi í neinum þeim báti, sem hann stóð að kaupum á fyrir Eyjabúa, - eða hluthafi.
Í flestum bátunum, sem Gísli J. Johnsen hafði milligöngu um kaup á, greiddi hann 1/6 úr eigin pyngju, gerðist eigandi að 1/6 hluta bátsins. Svo að hér var ekki um sókn eftir valdi að ræða. Valdið hlutu 5/6 hlutarnir að hafa yfir bát og útgerð. Hinu er ekki að leyna, að hinn hyggni og glöggi fjármálamaður sá sér hagnaðarvon í því og fyrirtæki sínu, að útgerð, sem hann átti hlut í, mundi líklegri til þess að láta hann njóta viðskipta umfram aðra.
Glögglega sá Gísli J. Johnsen, hvar skórinn hlaut að kreppa að
vélbátaútgerðinni sökum skorts á hæfum kunnáttumönnum um meðferð og viðgerð vélanna. Sumarið 1906 kom hann því að máli við Matthías Finnbogason og hvatti hann til að sigla til Danmerkur og dveljast þar á vélaverkstæði svo sem eitt ár til þess að auka hæfni sína í vélaviðgerðum, festa kaup á fullkomnum verkfærum til þeirrar iðju og stefna að því að koma á laggirnar sem allra fullkomnustu vélaverkstæði í Vestmannaeyjum.
Þetta var auðsótt mál við Matthías Finnbogason, og fór allt að áætlun, eins og við manninn var mælt.
Báðum var þeim það ljóst, þessum mætu Eyjamönnum, að markverð og sögurík aldahvörf voru að hefjast í atvinnulífi Eyjafólks og allrar íslenzku þjóðarinnar, og kunnáttu, leikni og meðfædda hæfni þurfti til, ef hin nýju og stórfelldu atvinnu- og framleiðslutæki áttu að geta blessazt byggðarlaginu í heild og þeim býsna mörgu, sem hingað leituðu lífsbjargar sér og sínum á vetrarvertíðum a.m.k.
Haustið 1906 sigldi Matthías Finnbogason til Kaupmannahafnar og tók þá til starfa og náms í vélaverksmiðju Danvélanna í Danmörku. Þarna dvaldist hann veturinn 1906—1907 og kom heim um sumarið.
Tveir Danir reyndust Matthíasi Finnbogasyni betri en flestir aðrir.
Þeir lánuðu honum fé úr eigin vasa til kaupa á verkfærum og ýmsum öðrum stærri tækjum til vélaverkstæðisins, sem hann stofnaði til í Eyjum. Matthías hafði sem vonlegt var lítið fjármagn til áhaldakaupa og lánsfé lá þá ekki á lausu, en án fullkominna verkfæra, eftir því sem þau gerðust þá, var gagnslaust að stofna til verkstæðisins, enda þótt kunnáttan væri fengin.
Eftir heimkomuna stofnsetti Matthías Finnbogason verkstæðið sitt og fékk inni fyrir það í Dvergasteini við Heimagötu, sem barnaskóli þorpsins hafði flutt úr fyrir þrem árum eftir 21 árs starf þar. Það hús var þá orðið eign Sigurðar Ísleifssonar, trésmíðameistara. Jafnframt hófst Matthías handa um að byggja sér íbúðarhús, þar sem hann vildi hafa verkstæði sitt í kjallara. Allt gekk þetta eftir ætlan og áætlan. Hús þetta er húseignin Jaðar við Vestmannabraut (nr. 6), timburhús á steyptum kjallara.
Eins og áður er drepið á, þá gerðu Vestmannaeyingar út 22 vélbáta vertíðina 1907 og voru eigendur þeirra samtals 119 heimilisfeður í Eyjum eða 5—6 um hvern bát. Vélbátarnir voru því sameign þeirra manna, sem að þeim stóðu og við þá unnu að örfáum undantekningum, og höfðu lífsframfæri sitt og sinna af útgerðinni.
Matthías Finnbogason gat byrjað rekstur vélaverkstæðisins í hinu nýja húsi sínu um áramótin 1908/1909. Um sama leyti tók til starfa í Vestmannaeyjum fyrsta frystihúsið í eigu Íslendinga, er var knúið vélum, — frystihús Ísfélags Vestmannaeyja á Nýjabæjarklöpp. Aðeins þetta tvennt sannar okkur þann kraft og dugnað, viljastyrk og fyrirhyggju, sem þá var alls ráðandi í athafnalífi Eyjabúa á þessum umbreytinga- og aldahvarfaárum, þegar þessi nýja tækni var að ryðja sér til rúms. Á engan skal eða er hallað, þó að drepið sé á þá staðreynd, að Gísli J. Johnsen var „potturinn og pannan“ í öllum þessum stórstígu framförum. En fullyrða má, að Eyjamenn í heild fylgdu hér dyggilega á eftir dugmikilli og víðsýnni forustu.
Á hinum tíðu ferðalögum sínum erlendis kynntist Gísli J. Johnsen mörgum markverðum nýjungum, tæknilegum framförum, sem hann sá að áttu brýnt erindi til hinnar íslenzku þjóðar, sem var að rísa úr kút undirokunar og úrræðaleysis.
Þrjú ár liðu og rúmlega það. Matthías Finnbogason gat ekki orðið annað öllu því, sem á hann kallaði til hjálpar og starfa í hinum örtvaxandi vélbátaútvegi Eyjabúa. Snillingurinn frá Jaðri átti þar í vök að verjast, ef svo andstætt mætti að orði komast í þessum efnum, því að hann varðist hvergi, en veitti alla þá þjónustu, er hann gat frekast í té látið hinum vaxandi útvegi. En geta hans hrökk ekki til, — eina vélaverkstæðið í Vestmannaeyjum. Hinn örtvaxandi vélbátaútvegur krafðist hraðari vélaviðgerða en einn maður gat innt af hendi.
Haustið 1911 tóku ýmsir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum að ræða nauðsyn þess að stofna vélaverkstæði, sem fullnægt gæti sem allra mest og bezt hinum miklu þörfum vélbátaútvegsins um viðgerðir og smíði hluta í bátavélarnar. Þessar bollaleggingar leiddu til þess, að umburðarbréf var sent um byggðina til útgerðarmanna fyrst og fremst og boðið að skrifa sig fyrir fjárframlagi, — hlutafé, til þessa nýja fyrirtækis.
Aðalforgöngumaður þessa máls var Karl sýslumaður Einarsson, sem þá hafði verið sýslumaður í Eyjum á annað ár.
Undirritaðir, sem hafa komið sér saman um að reyna að stofna hlutafélag, er setji á stofn mótorverksmiðju hér undir forustu herra Jóhanns Hanssonar frá Seyðisfirði og kaupi verksmiðju herra Matthíasar Finnbogasonar, ef um semst, leyfa sér hér með að biðja þá, sem leggja vilja fram fé í þessu skyni, að rita fjárhæðina og nöfn sín á eftirfarandi lista. Ætlazt er til, að hlutaféð greiðist fyrir mitt næsta sumar.
Fáist nægilegt fé til þess að félagið verði stofnað, verða hluthafar (þeir sem hafa ritað sig fyrir fjárframlagi) kallaðir á fund til þess að kjósa stjórn og ræða um nánara fyrirkomulag.
Karl Einarsson, Jón Einarsson (Gjábakka), Jóel Eyjólfsson, Þorsteinn Jónsson, Anton Bjarnasen, Símon Egilsson
- Vestmannaeyjum, 3. desember 1911.
Karl Einarsson
Jón Einarsson, Gjábakka
Jóel Eyjólfsson
Þorsteinn Jónsson
Anton Bjarnasen
Símon Egilsson
Gunnar Ólafsson
Jón Einarsson, Hrauni
Friðrik Þorsteinsson
Ágúst Gíslason
Geir Guðmundsson
Árni Filippusson
Svo var þá hafizt handa um að safna hlutafé. Samtals fengust loforð um hartnær 6 þúsundir króna. En einhverjir gengu úr skaftinu, svo að hlulaféð varð að lokum sem hér segir:
- Skrá
- Skrá
- yfir hluthafa í Smiðjufélagi
- Vestmannaeyja
Hinn 6. desember 1911, eða eftir þrjá daga, var svo haldinn stofnfundur þessa nýja hlutafélags. Sá fundur var haldinn í Þinghúsi Vestmannaeyja, þ.e. Borg við Heimagötu, sem þá var bæði þinghús byggðarinnar og barnaskólahús. Stofnfundinn sat rúmur helmingur þeirra manna, sem skrifað höfðu sig fyrir hlutum í hinu fyrirhugaða félagi. Fundarstjóri var kosinn Þorsteinn Jónsson í Laufási og ritari fundarins Jón Einarsson á Gjábakka.
Gunnar Ólafsson tók fyrstur til máls og skýrði frá undirtektum manna um stofnun félagsins. Safnazt höfðu loforð um hlutafé, sem námu hátt á 6. þúsund krónur.
Jóhann Hansson, „montör“, frá Seyðisfirði, sat fundinn. Hann gerði fundarmönnum nokkra grein fyrir því, hvað kosta mundi nauðsynlegar vélar og annað, sem til þurfti til þess að geta gert við flestallar vanalegar bilanir. Sjálfar vélarnar til þess mundu kosta 9—10 þúsund krónur. Þá taldi hann nauðsynlegt, að félagið byggði hús yfir starfsemi sína. Það yrði að byggja úr steini, og verð þess yrði minnst kr. 3.000,00. Þar að auki myndu verkfæri og smíðaefni til að byrja með ekki kosta undir kr. 3.000,00. Stofnkostnaður fyrirtækisins yrði því tæpast minni en kr. 16.000,00 samtals.
Þá taldi Jóhann Hansson eðlilegast, að á fundi þessum yrði kosin stjórn félagsins, sem svo semdi við hann um ýmsar framkvæmdir, svo sem kaup á vélum og efni. Að öðru leyti taldi hann heppilegast, að fyrirtæki þetta yrði sem allra mest óháð og sjálfstæðast í öllum greinum.
Orð og tillögur J.H. fengu góðan byr á fundinum. Gengið var til stjórnarkjörs. Í þessa fyrstu (og síðustu) stjórn félagsins voru kosnir:
- Gunnar Ólafsson, kaupm.....41 atkv.
- Þorsteinn Jónsson, Laufási 30 —
- Ágúst Gíslason, Landlyst .. 19 —
- Árni Filippusson, Ásgarði . 17 —
- Jón Einarsson, Gjábakka ... 12 —
Jafnframt því að semja við Jóhann Hansson um hinar nauðsynlegustu framkvæmdir í upphafi starfrækslunnar, skyldi stjórnin semja lög fyrir félagið og útvega fjármagn til byggingarinnar og vélakaupa umfram það, sem hlutaféð hrykki til.
Á stofnfundinum kom Halldór héraðslæknir Gunnlaugsson með markverða tillögu. Hann lagði það til, að félagið kæmi á stofn verknámsskóla, sem veitti ungum mönnum tilsögn í öllu því, sem lyti að vélgæzlu. Skyldi skólinn starfræktur í sambandi við vélaverkstæði þessa nýja smiðjufélags.
Tillaga þessi var „söltuð“, — skyldi bíða seinni tíma.
Daginn eftir stofnfundinn hélt hin nýkjörna stjórn „Mótorverksmiðjufélagsins“ fund með sér heima í Vík hjá Gunnari Ólafssyni. Þann fund sátu einnig Matthías Finnbogason og Jóhann Hansson. Á fundi þessum var farið þess á flot við Matthías, að hann gæfi „verksmiðjunni“ kost á að kaupa verkfærin hans að Jaðri. Matthías kvað sig fúsan að selja. Kvað hann samkvæmt lauslegri áætlun, að söluverð véla hans og verkfæra mundi verða um kr. 4.000,00. Jafnframt var Matthías spurður þess, hvort hann væri fús til að vinna á verkstæði „verksmiðjunnar“, og taldi hann sig fúsan til þess, og mundi hann gera sig ánægðan með 45 aura fyrir hverja unna klukkustund á venjulegum vinnutíma. Ráðningin skyldi vera til eins árs.
Á fundi þessum var stærð hins væntanlega „verksmiðjuhúss“ afráðin. Skyldi það vera 24 álnir (15,12 m) á lengd og 12 álnir (7,55 m) á breidd, — vegghæð 5 álnir (3,15 m) og port 1 1/2 alin (95 sm). Risið skyldi vera fremur lágt. Stærð hússins var afráðin samkvæmt tillögu Jóhanns Hanssonar, og lofaðist hann til að láta gera teikningu af byggingunni og senda stjórninni lista yfir vélar þær og verkfæri, sem nauðsynlegt var að festa kaup á þá þegar.
Þetta gerði hann fljótt og vel.
Jóhann Hansson áskildi sér kr. 1.200,00 í laun yfir árið fyrir það að kaupa inn vélar og verkfæri handa verkstæði félagsins og sjá um uppsetningu á vélunum. Auk þess hét hann því að vinna á verkstæði Smiðjufélagsins ekki skemur en 3 mánuði á vertíð næsta vetrar (1913) eftir því sem tíminn henti honum. Öll voru þessi ákvæði gjörð með fyllsta samkomulagi beggja aðila.
Að lokum var Jóhanni „montör“ Hanssyni falið á þessum fundi stjórnarinnar að ráða starfsmann til smiðjunnar og forstöðumann, þegar hann sjálfur hefði ekki verkstjórnina á hendi.
Hinn 15. marz 1912 boðaði stjórn „Verksmiðjufélagsins“, eins og það var kallað fyrst í stað, til fundar með félagsmönnum í þinghúsi sveitarinnar. Þar fullyrti formaður félagsins, Gunnar Ólafsson, konsúll, að eitthvað þyrfti að fara að huga til að koma upp hinni fyrirhuguðu byggingu „verksmiðjunnar“ og „hugsa fyrir kaupum á vélum“, eins og það er orðað í gildri heimild. Formaður gat þess í ræðu, að líkindi væru til, að Fiskiveiðasjóður Íslands lánaði eitthvert fé til fyrirtækisins, því að mikið fé skorti enn til þess að standa straum af öllum stofnkostnaði félagsins. Jafnframt gat formaður þess að greitt hlutafé næmi kr. 6.000,00.
Á félagsfundi þessum var borið upp til samþykktar frumvarp í 20 greinum til laga fyrir félagið. Voru greinarnar allar samþykktar með samhljóða atkvæðum.
Með lögunum hlaut félagið nafnið „Smiðjufélag Vestmannaeyja“.
Því næst var félaginu kosin stjórn samkvæmt lögum þess. Þessir menn hlutu kosningu:
- Gunnar Ólafsson ........... 21 atkv..
- Þorsteinn Jónsson ..........20 —
- Ágúst Gíslason .............. 11 —
- Jón Einarsson, Gjábakka .20 —
- Árni Filippusson ..............20 —
Varamenn í stjórn Smiðjufélagsins voru kosnir þeir Halldór Gunnlaugsson, héraðslæknir, og Sveinn P. Scheving, útgerðarmaður og bóndi á Steinsstöðum.
Daginn eftir fund þennan skrifaði stjórn Smiðjufélagsins stjórnarráði Íslands og beiddist láns, kr. 10 þúsund úr Fiskveiðasjóði til handa félaginu.
Svo liðu 4 mánuðir. Þá boðaði stjórn Smiðjufélagsins til almenns fundar í félaginu. Á fundi þessum lýsti formaður félagsins, Gunnar Ólafsson, yfir því, að stjórn félagsins hefði þann dag borizt símskeyti frá stjórnarráði Íslands svohljóðandi:
„Gegn áreiðanlegri tryggingu veitist yður allt að 10 þúsund króna lán úr Fiskveiðasjóði til mótorsmiðju.“ Þannig hljóðaði þetta svar, sem stjórnarráðinu þóknaðist að senda eftir 4 mánuði. Ekkert lá á! Það var þó bót í máli, að svarið var jákvætt, þá loksins það barst stjórninni.
Þá las fundarstjórinn, Þorsteinn Jónsson, upp skrá yfir þá menn, sem heitið höfðu fé (hlutafé) fyrirtækinu næstliðinn vetur, og nam upphæðin samtals kr. 5.675,00. Þetta þótti of lítið fé frá útgerðarmönnum. Var því stjórninni falið að hlutast til um, að meira fé fengist til þess að byggja upp félagið og reka það, og stjórninni falið jafnframt að „innheimta hin lofuðu tillög“.
Næsti almenni fundur Smiðjufélags Vestmannaeyja var haldinn 15. nóv. 1912. Þá hafði félagið látið byggja smiðjuhúsið, verkstæðið, og festa kaup á vélum og verkfærum.
Á fundi þessum var neðanskráð tillaga borin upp og samþykkt í einu hljóði:
„Fundurinn veitir formanni Smiðjufélags Vestmannaeyja, Gunnari Ólafssyni, kaupmanni í Vestmannaeyjum, fullt og ótakmarkað umboð til þess að taka fyrir félagsins hönd allt að 10 þúsund króna lán úr Fiskveiðasjóði Íslands, og jafnframt umboð til þess að veðsetja eignir félagsins til tryggingar láninu, bæði húseign með tilheyrandi lóð, vélar og önnur verkfæri, svo og aðrar tryggingar, ef krafizt verður. Nær umboðið til þess að undirrita skuldabréf fyrir láninu og til alls annars, er að lántöku þessari lýtur. Heimilt er nefndum umboðsmanni félagsins að fela öðrum manni umboð þetta á hendur, og skal allt, sem gjörir eða lætur gjöra viðvíkjandi þessari lántöku, vera fullkomlega gilt og bindandi fyrir Smiðjufélag Vestmannaeyja.“