Kirkjubær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kirkjubær

Kirkjubær var einn sögufrægasti staður Vestmannaeyja. Bæjarlandið samanstóð af átta bæjum í manntali sem tekið var árið 1892, en þeir stóðu nokkuð austan við byggðakjarna Heimaeyjar, en voru annað tveggja bæjarhverfa Vestmannaeyja ásamt Vilborgarstöðum. Bæirnir drógu nafn sitt af því að þar stóð kirkja, sem reist var 1269 og stóð til 1573. Þar var prestssetur fram til ársins 1837.

Oddsstaðir vestri og eystri. Það sér í Tún fjærst til hægri. Kirkjubær í eimyrju í baksýn.
Kirkjubær. Kirkjubæjarþorpið ber í Ystaklett.

Kirkjubær og öll aðliggjandi lönd fóru undir hraun í jarðeldunum 1973, en gosið hófst í landi Kirkjubæjar.

Fylgilönd og eignir

Kirkjubær.
Oddsstaðir vestri og eystri fyrir miðri mynd. Fjærst til hægri er Vallartún, nær þar er Tún.

Kirkjubær var að fornu talinn átta einbýlisjarðir:

  1. Norður-Hlaðbær (Norðurbær)
  2. Austasti-Hlaðbær (Kirkjubær, Suðurbær)
  3. Mið-Hlaðbær (Ólafsbær)
  4. Vestasti-Hlaðbær (Kirkjuból)
  5. Vestri-Staðarbær (Staðarbær I)
  6. Eystri-Staðarbær (Staðarbær II)
  7. Bænhús
  8. Tún

Að einhverju leyti eru þessi nöfn þó rugluð, þar sem bæirnir á Vilborgarstöðum báru sumir hverjir sömu nöfn, og voru líklega sömu bæirnir.

Kirkjubæjarbændur áttu nytjalönd í Geldungi, þar sem þeir máttu veiða fýl og súlu; Brandi, til lundaveiði, fýlaveiði, súlnaveiði og eggjatöku, ásamt því sem þeir máttu hafa þar þrettán sauði á beit. Á haustin voru 26 lömb sett þangað í vetrarbeit, en mjög gott þótti að beita í Brandinum. Ennfremur höfðu Kirkjubæjarbændur rétt á 25 sauða beit til móts við Vilborgarstaðabændur í Suðurey, og allar nytjar í Flugum og í Ystakletti (lundaveiðar, eggjataka, beit).

Örnefni

Á hlaðinu við Kirkjubæ
Áburði dreift á Tobbatún 1945
Dagteigur
Flöt skammt fyrir vestan Móhús þar sem fimm hestum var beitt að öllu jöfnu.
Stórihóll
Stór brattur hóll sunnan Kirkjubæja, sem stóð við túngarðana. Hóllinn var mjög vinsæll meðal barna, enda gott að bruna niður Stórahól þegar áfreða lá við jörðu. Gjarnan var þessi hóll kallaður Tobbahóll og Tobbatún voru túnin sunnan hólsins, en Þorbjörn Guðjónsson var eigandi þeirra lengi vel, og börn kunnu vel við hann.
Runkatjörn
Hlaðinn brunnur í kvos neðst í túni Vestri-Staðarbæjar. Runkatjörn var lengi vatnsból fyrir skepnur, en tjörnin var kennd við Runólf mormóna. Tveir aðrir brunnar stóðu við Kirkjubæ, - annar norður af Eystri-Staðarbæ, hinn vestan við Suðurbæinn.
Vertshústún
Tún Bænhúsjarðar, næst bæ Þorbjörns. Það er kennt við Johnsen- fjölskylduna sem bjó í Frydendal, sem einnig var kallað Vertshúsið, en sú fjölskylda notaði þessa jörð.
Þórarinsútseta
Austur af Einlandi, beint suður af túngörðum Eystri-Oddsstaða, vestan við Stórahól. Kennd við Þórarin Árnason, sem bjó á Oddsstöðum.
Þórarinsgarður
Kálgarður neðan við Þórarinsútsetu.
Hulduhóll
Hóll norðan við Tún.
Móhúsaflöt
Slétt flöt suður af Móhúsum. Þar voru frjálsar íþróttir gjarnan stundaðar, s.s. stangarstökk, langstökk og hástökk. Torfi Bryngeirsson frá Búastöðum setti þar sitt fyrsta Íslandsmet.
Elsulág
Lægð í túni Norðurbæjar, rétt norðan við Staðarbæina.
Bílustaðir
Ekki er með öllu víst hvar þeir voru, en Mikjálsklaustrið í Björgvin hefur hlotið þá jörð að gjöf á sínum tíma.

Kirkjan

Oddsstaðir og Kirkjubær. Einland til hægri.

Kirkjan á Kirkjubæ var í eigu Skálholtskirkju fyrst um sinn, en Mikjálsklaustur í Björgvin í Noregi fékk Kirkjubæjarkirkju að gjöf frá Árna Þorlákssyni Skálholtsbiskupi árið 1280. Á þessum tíma voru í Vestmannaeyjum tvær kirkjur, en hin var Klemensarkirkja sem stóð á Hörgaeyri. Kirkjubæjarkirkja hét réttu nafni Péturskirkja, og var hún helguð Símoni Pétri, lærisveini Jesú, sem var fiskimaður og verndardýrlingur fiskimanna. Í seinni tíð hlaut kirkjan nafnið Ofanleitiskirkja. Fyrsta kirkjan að Löndum, nefnd Landakirkja, var byggð í lúterskum sið árið 1573. Þá urðu guðshúsin sem stóðu á Ofanleiti og á Kirkjubæ að bænhúsum, og Landakirkja var eina kirkjan í Vestmannaeyjum.

Íbúar

Sunnudagsganga við Helgafell árið 1943

Í manntalinu 1816 kom fram að 99 af þeim 212 íbúum Vestmannaeyja þá áttu heima á Kirkjubæ.

Tyrkjaránið

Í Tyrkjaráninu er það frægt að séra Jón Þorsteinsson, prestur á Kirkjubæ, faldi sig í Rauðahelli í Urðum, ásamt skyldfólki sínu og fleirum. Jón var höggvinn, og fólk hans herleitt til Algeirsborgar.

Heimaeyjargosið

Fyrstu dagar eldgossins

Aðfaranótt 23. janúar 1973 opnaðist 2,3 km löng sprunga á Heimaey, og gekk hún frá norðri til suðurs í gegnum land Kirkjubæjar. Sprungan opnaðist rétt austan við Kirkjubæ, og í upphafi gossins barst lögreglunni tilkynning frá bónda á Kirkjubæ um eldsvoða, sem síðar reyndist vera af völdum gossins.

Myndasafn


Heimildir