Bjarni Bjarnason (Hoffelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Bjarni Bjarnason


Hjónin Bjarni Bjarnason á Hoffelli og Jónína Sigurðardóttir og börn f.v. Bjarni, Sigríður og Jóhann

.

Bjarni Bjarnason, Hoffelli, fæddist 15. maí 1885. Bjarni kom ungur til Vestmannaeyja á sjóróðra. Árið 1913 byrjaði Bjarni á Norrönu og var síðan formaður þar, Skarphéðinn 1914 og síðan með Hauk 1915-1918, Stakksárfoss 1920-1921. Bjarni drukknaði við Eiðið í Vestmannaeyjum 16. desember 1924.

Kona hans var Jónína Sigurðardóttir.


Heimildir

Frekari umfjöllun

Bjarni Bjarnason formaður og útgerðarmaður að Hoffelli hér fæddist 18. maí 1885 og drukknaði við Eiðið 16. desember 1924.
Faðir hans var Bjarni bóndi í Aurgötu í Ásólfsskálasókn undir Eyjafjöllum 1890, f. 1. desember 1832, d. 11. júlí 1900, Jónsson bónda á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi og Refsstöðum í Landbroti, en að síðustu húsmanns á Syðri-Steinsmýri, f. 24. apríl 1797 á Fossi á Síðu, d. 13. október 1829, Bjarnasonar bónda, síðast í Mörk á Síðu, f. 1742 á Núpstað í Fljótshverfi, d. 10. september 1820 í Mörk, Jónssonar, og síðari konu Bjarna í Mörk, (22. júní 1796), Bóelar húsfreyju, f. 1770, d. 22. september 1834 á Seljalandi í Fljótshverfi, Jónsdóttur.
Móðir Bjarna í Aurgötu og kona, (28. maí 1822), Jóns á Syðri-Steinsmýri var Guðný húsfreyja, f. 17. október 1799 á Syðri-Steinsmýri, Árnadóttir bónda á Syðri-Steinsmýri, f. 1765 á Syðri-Fljótum í Meðallandi, d. 19. ágúst 1846 á Syðri-Steinsmýri, Halldórssonar, og konu, (1796), Árna Halldórssonar, Elínar húsfreyju, f. 1776, d. 4. júlí 1846 á Syðri-Steinsmýri, Jónsdóttur.

Móðir Bjarna á Hoffelli og kona Bjarna í Aurgötu var Guðrún húsfreyja í Aurgötu, f. 1843 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum, d. 9. nóvember 1901 í Aurgötu, Arnoddsdóttir bónda í Nýjabæ og á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, f. 18. september 1796, d. 29. mars 1883, Brandssonar bónda í Drangshlíð u. Eyjafjöllum, f. 1743, d. 6. maí 1822, Einarssonar, og konu Brands í Drangshlíð, Margrétar húsfreyju, f. 1766, d. 19. febrúar 1853, Arnoddsdóttur.
Móðir Guðrúnar húsfreyju í Aurgötu og síðari kona Arnodds var, (14. júlí 1842), Jórunn húsfreyja, f. 1808 í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, Jónsdóttir bónda þar, f. 1760 á Barkarstöðum þar, á lífi 1835, og konu Jóns, Guðbjargar húsfreyju, f. 1770, d. 12. desember 1847, Jónsdóttur.

Börn Bjarna Jónssonar og Guðrúnar Arnoddsdóttur í Eyjum voru:
1. Jórunn Bjarnadóttir bústýra í Mandal, f. 9. janúar 1864 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, d. 7. maí 1945.
2. Elín Bjarnadóttir húsfreyja í Sigtúni, f. 20. nóvember 1865 í Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 18. nóvember 1948.
3. Margrét Bjarnadóttir húsfreyja á Múla, f. 10. desember 1869, d. 2. október 1950.
4. Jóhanna Bjarnadóttir húsfreyja á Brimbergi, f. 16. mars 1874, d. 5. mars 1957.
5. Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja á Strönd, f. 13. janúar 1879, d. 17. nóvember 1954.
6. Jón Bjarnason verkamaður í Sigtúni, f. 2. maí 1881, d. 28. nóvember 1963.
7. Bjarni Bjarnason útvegsbóndi, sjómaður á Hoffelli, f. 18. maí 1885, fórst 16. desember 1924.
Móðursystir barnanna, systir Guðrúnar Anoddsdóttur, var Gróa Arnoddsdóttir móðir
8. Önnu Tómasdóttur húsfreyju í Selkoti, móður
a. Hjörleifs Sveinssonar í Skálholti,
b. Tómasar Sveinssonar á Faxastíg 15 og
c. Sigfúsar Sveinssonar á Kirkjubæjarbraut 8.

Bjarni fluttist til Eyja 1905. Hann var útvegsbóndi, háseti á vélbát, húsbóndi og eigandi Hruna 1910. Þau Jónína giftu sig 1912, voru komin að Hoffelli 1913, með Jónínu og synina Jóhann og Bjarna þar 1920. Sigríður fæddist þar 1921.
Bjarni fórst við Eiðið 16. desember 1924, er menn voru að leggja af stað út í e.s. Gullfoss á árabát. Þar fórust 8 menn.

Kona Bjarna á Hoffelli, (19. janúar 1912), var Jónína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. september 1892, d. 27. desember 1988.
Börn Bjarna og Jónínu:
1. Jóhann Bjarnason hafnarvörður, f. 16. október 1913, d. 6. febrúar 1994, kvæntur Oddnýju Bjarnadóttur forstöðukona barnaheimilisins að Sóla, f. 23. apríl 1914, d. 29. september 2000.
2. Bjarni Bjarnason hárskeri, f. 12. maí 1916, d. 26. desember 1998, kvæntur Kristínu Einarsdóttur húsfreyju, f. 29. apríl 1914, d. 7. febrúar 1995.
3. Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja og sjúkranuddari, f. 6. janúar 1921, d. 25. júní 1990, gift Eðvaldi Hinrikssyni sjúkranuddara, f. 12. júlí 1911, d. 27. desember 1993.
4. Andvana stúlka, f. 6. janúar 1921, tvíburi móti Sigríði.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Myndir