Birtingarholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Birtingarholt stóð við Vestmannabraut 61 og var reist af Ágústi Jóni Guðmundssyni og Ísleifi Sigurðssyni árið 1912. Kona Ágústar hét Ingveldur og var af Skeiðunum og er nafnið eftir Birtingarholti í Hrunamannahreppi. Húsið var rifið árið 1993. Í húsinu var verslun um tíma.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu


Heimildir

  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.