Miðgarður
Fara í flakk
Fara í leit
Húsið Miðgarður við Vestmannabraut 13a. Það var reist árið 1919 af Sigurlaugu Guðmundsdóttur sem þá var orðin ekkja eftir Ísleif Guðnason, d. 1916. Nokkru seinna flutti dóttir Sigurlaugar, Matthildur Ísleifsdóttir, inn ásamt manni sínum Páli Oddgeirssyni. Matthildur bjó í húsinu til dánardags árið 1945 og Páll bjó þar til ársins 1947. Sigurlaug bjó þar til dánardags árið 1952.
Árið 1949 flutti sonur Sigurlaugar, Ólafur Ísleifsson, inn ásamt konu sinni. Ólafur bjó þar til dánardags árið 1972 en Una bjó seinni ár sín á elliheimili.
Miðgarð á nú Jóhanna María Finnbogadóttir og býr hún þar. Einnig leigir Ástþór Ægir Gíslason í kjallara.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Sigurlaug Guðmundsdóttir 1919-1952
- Páll Oddgeirsson og Matthildur Ísleifsdóttir 192?-1947
- Ólafur Ísleifsson og Una M. Helgadóttir 1949-1972
- Þórarinn Torfason og fjölskylda
- Helgi Gestsson og fjölskylda
- Jóhanna María Finnbogadóttir og börn hennar Ríkharður og Kristjana
Heimildir
- Bergljót Pálsdóttir, munnleg heimild.
- Georg Ólafur Tryggvason, munnleg heimild.
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.