Óskar Pétur Einarsson (lögregluþjónn)
Óskar Pétur Einarsson lögregluþjónn í Stakkholti fæddist 11. janúar 1908 og lést 13. maí 1978.
Faðir Óskars var Einar bóndi á Búðarhóli 1912-1931, f. 29. apríl 1867, d. 4. ágúst 1950, Nikulásson bónda í Krosshjáleigu (nú Kross II) í A-Landeyjum, f. 5. maí 1833, d. 9. mars 1889, Árnasonar bónda í Rimakoti, f. 5. ágúst 1803, d. 12. janúar 1854, Pálssonar, og fyrri konu Árna Pálssonar í Rimakoti, (30. október 1829), Ingveldar húsfreyju, f. 29. september 1806 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 6. ágúst 1843, Ormsdóttur.
Móðir Einars bónda á Búðarhóli og kona Nikulásar var Oddný húsfreyja, f. 20. apríl 1837, d. 17. apríl 1891, Gunnlaugsdóttir bónda og formanns í Litlu-Hildisey, f. 28. ágúst 1804 á Bryggjum, d. 21. nóvember 1884 í Litlu-Hildisey, Einarssonar bónda í Litlu-Hildisey Árnasonar, og konu Gunnlaugs í Litlu-Hildisey (28. nóvember 1803) Oddnýjar húsfreyju, f. 1769 á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, Guðmundsdóttur bónda á Skíðbakka Þorleifssonar.
Móðir Óskars lögregluþjóns og kona (3. júní 1892) Einars á Búðarhóli var Valgerður húsfreyja, f. 15. maí 1870, d. 15. júlí 1941, Oddsdóttir bónda á Krossi í A-Landeyjum og formanns við Fjallasand og í Eyjum, f. 7. október 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóvember 1922 á Heiði á Rangárvöllum, Péturssonar bónda á Hrútafelli, f. 15. júní 1813, d. 14. júní 1862, Oddssonar, og konu Péturs á Hrútafelli, Valgerðar húsfreyju, f. 7. janúar 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjartsdóttur.
Móðir Valgerðar á Búðarhóli og fyrri kona Odds Péturssonar (22. júlí 1869) var Sigríður húsfreyja, f. 5. júlí 1840 í Skálakoti u. Eyjafjöllum, d. 27. febrúar 1885 á Krossi í A-Landeyjum, Árnadóttir.
Óskar lærði skipasmíðar hjá Gunnari Marel og vann við þá iðn hjá honum um skeið.
Hann gerðist lögregluþjónn 1947 og stundaði það starf til starfsloka.
Kona Óskars lögregluþjóns var Guðný Svava Gísladóttir frá Arnarhóli.
Foreldrar hennar voru Gísli Jónsson útvegsbóndi á Arnarhóli í Eyjum, f. 23. janúar 1883, d. 26. október 1977, og kona hans Guðný Einarsdóttir húsfreyja á Arnarhóli, f. 10. maí 1885, d. 31. mars 1956.
Þau eignuðust Stakkholt 1943 og bjuggu þar síðan.
Börn Óskars og Guðnýjar :
1. Guðný Óskarsdóttir, f. 1. júní 1935.
2. Valgerður Erla Óskarsdóttir, f. 24. maí 1937, kona Friðriks á Löndum.
3. Gísli Óskarsson, f. 19. júní 1939, d. 12. mars 2009.
4. Rebekka Óskarsdóttir, f. 23. október 1941, d. 26. október 1971.
5. Sigurbjörg Rut Óskarsdóttir, f. 22. september 1946.
6. Einar Óskarsson, f. 7. janúar 1952.
Oddur Pétursson og Sigríður Árnadóttir á Krossi voru foreldrar Sigurðar Péturs í Skuld, föður Skuldarsystkina, og Valgerðar Oddsdóttur, konu Einars á Búðarhóli.
Börn Einars Nikulássonar á Búðarhóli og konu hans Valgerðar Oddsdóttur Péturssonar hér voru:
1. Óskar Pétur Einarsson lögregluþjónn, f. 1908. (Sjá ofar).
2. Guðný Kristjana Einarsdóttir húsfreyja, f. 1891, síðari kona Haraldar Sigurðssonar á Sandi, og voru þau m.a. foreldrar
a) Rúriks Haraldssonar leikara,
b) Haraldar Ágústs Haraldssonar járnsmiðs, f. 1919,
c) Friðriks Haraldssonar bakarameistara, f. 1922,
d) Ásu Haraldsdóttur húsfreyju, f. 1928.
3. Sigurbjörg Einarsdóttir húsfreyja í Breiðholti, kona Bjarna dýaralæknis, en þau voru foreldrar:
a) Sigríðar Ingibjörgar forstöðukonu, f. 1931,
b) Einars Vals yfirlæknis, f. 1932, og
c) Gunnhildar skólaritara f. 1935.
4. Sigurjón Einarsson bóndi á Búðarhóli, f. 1894. Bjó í Eyjum frá 1952, kvæntur Margréti Jósefsdóttur húsfreyju. Þau voru foreldrar Einars Birgis lögregluþjóns, f. 1933.
Nánar um ættir þessar.
Sum börn Árna Pálssonar og Ingveldar Ormsdóttur í Rimakoti í A-Landeyjum, sem bjuggu í Eyjum eða áttu þar afkomendur:
I. Dóttir þeirra var Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja á Efrahvoli, kona Sigurðar Gunnlaugssonar bónda þar:
1. Sonur þeirra var Páll Sigurðsson bifreiðastjóri í Laufholti, kvæntur Soffíu Helgadóttur.
a) Sonur þeirra var Björgvin Pálsson frá Brekkuhúsi, fæddur 20. janúar 1909, hrapaði til bana 22. maí 1932.
2. Dóttir þeirra var Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Brekkuhúsi, kona Sigurðar Sveinbjörnssonar bónda.
a) Sonur þeirra var Sigurjón Sigurðsson formaður, síðar fisksali.
Börn hans: Sjá síðu Sigurjóns.
b) Dóttir þeirra var Aðalheiður Sigurðardóttir húsfreyja í Stóra Hvammi, kona Árna Finnbogasonar.
Börn þeirra: Sjá síðu Aðalheiðar.
II. Árni Árnason á Vilborgarstöðum.
1. Árni á Grund.
a) Árni símritari.
b) Lárus Árnason bifreiðarstjóri á Búastöðum.
c) Bergþóra Árnadóttir húsfreyja á Heiði, kona Jóhannesar Long.
d) Guðfinna Ástdís Árnadóttir.
e) Auðbjörg Ástrós Árnadóttir.
III. Björg húsfreyja á Vilborgarstöðum, kona Sighvats Sigurðssonar.
1. Björg á Gilsbakka, kona Erlendar á Gilsbakka.
2. Friðrika húsfreyja á Vilborgarstöðum, kona Vigfúsar P. Schevings. Þau voru foreldrar Sigfúsar í Heiðarhvammi, Jóhanns Scheving á Vilborgarstöðum og Pálínu Scheving.
3. Sigríður Sighvatsdóttir, kona Jóns Eyjólfssonar formanns á Kirkjubæ.
Hún var móðir
a) Lofts á Vilborgarstöðum,
b) Kjartans á Búastöðum,
c) Sigurðar Björgvins,
d) Jónínu Sigríðar.
Sigríður eignaðist
e) Júlíönu á Búastöðum með Sigurði í Nýborg.
IV. Guðbjörg Árnadóttir.Hún var kona Bergs Magnússonar bróður Ólafs í Nýborg. Sonur þeirra var
Sigurður Bergsson, f. 1865.
V. Nikulás bóndi í Krosshjáleigu í A-Landeyjum, - faðir Einars á Búðarhóli þar. Sjá afkomendur Einars hér ofar.
VI. Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Sléttubóli í A-Landeyjum, kona Guðmundar Diðrikssonar bónda. Þau voru foreldrar Guðmundar Guðmundssonar í Hrísnesi hér. Kona hans var Guðríður Andrésdóttir húsfreyja í Hrísnesi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Árni Árnason.
- Heimaslóð.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Blik 1960: Nýborgarheimilið, II. hluti.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Valgerður Erla Óskarsdóttir.
- Friðrik Ásmundsson.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.