Bjarni Bjarnason (Breiðholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Bjarni Bjarnason


Bjarni dýralæknir.

Bjarni Bjarnason fæddist 12. nóvember 1903 í Efri-Hömrum í Holtum og lést 9. apríl 1993. Sem unglingur var hann um skeið á skútu frá Hafnarfirði.

Árið 1930 kvæntist Bjarni Sigurbjörgu Einarsdóttur frá Búðarhóli í A-Landeyjum. Þau hófu búskap í Eyjum á kreppuárunum en tókst búskapurinn vel í upphafi og dafnaði. Á fyrstu hjúskaparárum sínum bjuggu þau í kjallaranum í Stakkholti. Þar fæddust þeim þrjú börn: Sigríður Ingibjörg forstöðukonu, f. 1931, Einar Valur yfirlæknir, f. 1932, og Gunnhildur skólaritari f. 1935.

Árið 1946 fluttust þau í húsið Breiðholt og voru þau jafnan kennd við húsið og talað um „Breiðholtshjónin“.

Ýmis störf vann Bjarni en þekktastur er hann af því að stunda dýralækningar og því nefndur Bjarni dýralæknir í héraðinu. Hann var m.a. sýsluskrifari, sjómaður, verkamaður og verslunarmaður. Hann var á meðal stofnenda Verkalýðsfélagsins og í stjórn þess nokkur ár. Hann var í sáttanefnd Vestmannaeyjabæjar í þrjátíu ár og var það vegna þess að gleymdist að kjósa í nefndina.

Myndir


Heimildir