Rebekka Óskarsdóttir (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rebekka Óskarsdóttir frá Stakkholti, húsfreyja fæddist 23. október 1941 á Hjalteyri við Vesturveg 13B og lést 26. október 1971.
Foreldrar hennar voru Óskar P. Einarsson verkamaður, skipasmiður, lögregluþjónn frá Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 11. janúar 1908, d. 13. maí 1978 og kona hans Guðný Svava Gísladóttir húsfreyja frá Arnarhóli, f. 11. janúar 1911, d. 25. mars 2001.

Börn Guðnýjar Svövu og Óskars:
1. Guðný Óskarsdóttir, f. 1. júní 1935. Maður hennar Páll Sæmundsson.
2. Valgerður Erla Óskarsdóttir, f. 24. maí 1937, d. 6. nóvember 2015, kona Friðriks á Löndum, látinn.
3. Gísli Óskarsson, f. 19. júní 1939, d. 12. mars 2009. Kona hans Kristín Haraldsdóttir.
4. Rebekka Óskarsdóttir, f. 23. október 1941, d. 26. október 1971. Maður hennar Ari Birgir Pálsson, látinn.
5. Sigurbjörg Rut Óskarsdóttir, f. 22. september 1946. Maður hennar Atli Einarsson.
6. Einar Óskarsson, f. 7. janúar 1952, d. 24. júlí 2018. Fyrrum kona hans Guðrún Ingimundardóttir. Barnsmóðir Einars Eygló Ólafsdóttir. Fyrrum kona Einars Anna Peggy Friðriksdóttir. Sambúðarkona Einars Sigrún Ólafsdóttir, látin. Sambúðarkona hans Guðbjörg Elín Hreiðarsdóttir.

Rebekka var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Ari Birgir hófu búskap í Stakkholti, en fluttu síðar að Vestari-Uppsölum.
Rebekka lést 1971 og Ari 2001.

I. Maður Rebekku var Ari Birgir Pálsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 8. mars 1934 á Sauðárkróki, d. 4. febrúar 2001 á Uppsölum.
Börn þeirra:
1. Ósk Guðrún Aradóttir vinnur við aðhlynningu fatlaðra, býr í Mosfellsbæ, f. 11. júlí 1959. Fyrrum sambúðarmaður Georg Ólafsson.
2. Óskar Valgarð Arason fjármálastjóri hjá Lýsi hf. í Reykjavík. Hann er reksrartæknifræðingur frá Odense í Danmörku og vélstjóri frá Vélskóla Íslands, f. 2. janúar 1961. Fyrrum kona hans Sigurbjörg Hjálmarsdóttir. Fyrrum kona hans Jóhanna Hauksdóttir. Fyrrum kona hans Þórhalla Sigurgeirsdóttir. Sambúðarkona hans Guðjónína Sæmundsdóttir.
3. Guðný Elva Aradóttir leikskólakennari, f. 12. febrúar 1964 í Stakkholti. Fyrrum sambúðarmaður hennar Héðinn Hákonarson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 10. febrúar 2001. Minning.
  • Óskar Valgarð.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.