Sigurbjörg Einarsdóttir (Breiðholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Einarsdóttir frá Búðarhóli í A-Landeyjum, húsfreyja í Breiðholti fæddist 27. apríl 1910 á Krossi þar og lést 1. september 1987.
Faðir Sigurbjargar var Einar bóndi á Búðarhóli 1912-1931, f. 29. apríl 1867, d. 4. ágúst 1950, Nikulásson bónda í Krosshjáleigu (nú Kross II) í A-Landeyjum, f. 5. maí 1833, d. 9. mars 1889, Árnasonar bónda í Rimakoti, f. 5. ágúst 1803, d. 12. janúar 1854, Pálssonar, og fyrri konu Árna Pálssonar í Rimakoti, (30. október 1829), Ingveldar húsfreyju, f. 29. september 1806 á Núpi undir Eyjafjöllum, d. 6. ágúst 1843, Ormsdóttur.
Móðir Einars bónda á Búðarhóli og kona Nikulásar var Oddný húsfreyja, f. 20. apríl 1837, d. 17. apríl 1891, Gunnlaugsdóttir bónda og formanns í Litlu-Hildisey, f. 28. ágúst 1804 á Bryggjum, d. 21. nóvember 1884 í Litlu-Hildisey, Einarssonar bónda í Litlu-Hildisey Árnasonar, og konu Gunnlaugs í Litlu-Hildisey (28. nóvember 1803) Oddnýjar húsfreyju, f. 1769 á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, Guðmundsdóttur bónda á Skíðbakka Þorleifssonar.

Móðir Sigurbjargar og kona (3. júní 1892) Einars á Búðarhóli var Valgerður húsfreyja, f. 15. maí 1870, d. 15. júlí 1941, Oddsdóttir bónda á Krossi í A-Landeyjum og formanns við Fjallasand og í Eyjum, f. 7. október 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóvember 1922 á Heiði á Rangárvöllum, Péturssonar bónda á Hrútafelli, f. 15. júní 1813, d. 14. júní 1862, Oddssonar, og konu Péturs á Hrútafelli, Valgerðar húsfreyju, f. 7. janúar 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjartsdóttur.
Móðir Valgerðar á Búðarhóli og fyrri kona Odds Péturssonar (22. júlí 1869) var Sigríður húsfreyja, f. 5. júlí 1840 í Skálakoti u. Eyjafjöllum, d. 27. febrúar 1885 á Krossi í A-Landeyjum, Árnadóttir.

Börn Valgerðar Oddsdóttur og Einars Nikulássonar í Eyjum:
1. Óskar Pétur Einarsson lögregluþjónn. Kona hans var Guðný Svava Gísladóttir frá Arnarhóli.
2. Guðný Kristjana Einarsdóttir húsfreyja, kona Sigurjóns Pálssonar sjómanns og síðari kona Haraldar Sigurðssonar á Sandi.
3. Sigurbjörg Einarsdóttir húsfreyja í Breiðholti, kona Bjarna dýaralæknis.
4. Sigurjón Einarsson bóndi á Búðarhóli, bjó í Eyjum frá 1952, kvæntur Margréti Jósepsdóttur.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Bjarni giftu sig 1930, fluttist til Eyja á árinu, eignuðust þrjú börn.
Þau bjuggu í Stakkholti 1930 til 1946, í Breiðholti frá 1946 og síðan.
Sigurbjörg lést 1987.

I. Maður Sigurbjargar, (1930), var Bjarni Bjarnason skútusjómaður, verkamaður, verslunarmaður, sýsluskrifari, sáttanefndarmaður, nefndur dýralæknir vegna starfa sinna þar að lútandi, f. 12. nóvember 1903 í Efri-Hömrum í Ásahreppi, d. 9. apríl 1993.
Börn þeirra:
1. Sigríður Ingibjörg Bjarnadóttir handíðakennari, forstöðukona, f. 19. febrúar 1931, d. 1. október 2016.
2. Einars Valur Bjarnason læknir, f. 25. mars 1932, d. 5. september 2014.
3. Gunnhildur Bjarnadóttir húsfreyja, skólaritari f. 4. apríl 1935, d. 15. febrúar 2017.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.