„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk Árna og annarra/Veiðimenn, frásagnir og kveðskapur í Elliðaey á öndverðri 20. öld“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 14: | Lína 14: | ||
|Vestan megin:|||||| Austanmegin: | |Vestan megin:|||||| Austanmegin: | ||
|- | |- | ||
|[[Jón Jónsson (Norður-Gerði)|Jón Jónsson]], [[Gerði-stóra|Gerði]]<br> ([[Stefán Guðlaugsson]],<br> ef Jón var ekki)||||||[[Jón Pétursson]],<br>[[Þorlaugargerði]] | |[[Jón Jónsson (Norður-Gerði)|Jón Jónsson]], [[Gerði-stóra|Gerði]]<br> ([[Stefán Guðlaugsson]],<br> ef Jón var ekki)||||||[[Jón Pétursson (Þorlaugargerði)|Jón Pétursson]],<br>[[Þorlaugargerði]] | ||
|- | |- | ||
|[[Björn Erlendsson (Gerði)|Björn Erlendsson]], [[Norður-Gerði|Gerði]]||||||[[Sigurður Helgason (Götu)|Sigurður Helgason]], [[Gata|Götu]] | |[[Björn Erlendsson (Gerði)|Björn Erlendsson]], [[Norður-Gerði|Gerði]]||||||[[Sigurður Helgason (Götu)|Sigurður Helgason]], [[Gata|Götu]] |
Núverandi breyting frá og með 15. nóvember 2015 kl. 17:18
Lengi fram eftir árum og sennilegast lengst miðað við aðrar úteyjar, var sofið í einni allsherjar flatsæng í Elliðaey. Eyjólfur Gíslason á Bessastöðum var ekki nema 4 ára, þegar hann fór þangað fyrst, þ.e. árið 1901, og fór þá með föður sínum. Þá var að venju fjöl fyrir framan flatsængina, þar sem menn gátu tyllt sér á og t.d. farið úr skónum. Við höfðalagið var matarskrínan. Þá og næstu árin var svefnplássum manna þannig niðurraðað, og vissi höfuðið að veggnum, en kofinn sneri nálægt því frá suðri til norðurs og voru dyr á nyrðra gafli:
Talið framan frá og inn eftir: | |||
Vestan megin: | Austanmegin: | ||
Jón Jónsson, Gerði (Stefán Guðlaugsson, ef Jón var ekki) |
Jón Pétursson, Þorlaugargerði | ||
Björn Erlendsson, Gerði | Sigurður Helgason, Götu | ||
Sigbjörn Björnsson, Ekru | Tómas M. Guðjónsson, Miðhúsum | ||
Árni Sigfússon, Löndum | Guðni J. Johnsen, Frydendal | ||
Guðjón Jónsson, Oddsstöðum | Finnbogi Björnsson, Norðurgarði | ||
Pétur Lárusson, Búastöðum | Einar Sveinsson, Þorlaugargerði | ||
Gísli Eyjólfsson, Búastöðum | Einar Jónsson, Norðurgarði |
Í hengikojum við Austurvegg voru strákarnir hafðir. Þeir voru:
Einar og Sigurður í Norðurgarði,
Árni Finnbogason, Norðurgarði,
Eyjólfur Gíslason, Búastöðum,
Lárus Árnason, Búastöðum,
Kristófer Guðjónsson, Oddsstöðum.
Ekki voru strákarnir allir jafnlengi eða samtíma, en þessir voru þeir fyrstu, sem Eyjólfur minnist. Auk þeirra voru um tíma þeir Einar Björn Sigurðsson, Pétursborg og Jóhann Jörgen Sigurðsson, Frydendal, en þeir voru sendir heim vegna þess að þeir voru alltaf að tildrast. Hafa þeir ekki hlýðnast fyrirmælum viðlegumanna og þá var ekki um annað að tala en láta slíka drengi fara heim.
Sókningsmenn voru fyrst eða 1901 þeir Hannes lóðs á Miðhúsum og Magnús Þórðarson í Sjólyst. Síðar sóttu svo um árabil þeir Maríus í Framnesi og Vilhjálmur Ólafsson á Múla. En síðastir, sem Eyjólfur man eftir á veruárum sínum í Elliðaey, voru þeir Stefán Guðlaugsson, Gerði og Símon Egilsson, Miðey, sem sóttu á mb. Halkion. Það var árið 1910.
Á nefndu tímabili voru einnig í Elliðaey þeir:
Kristján Gíslason, Hlíðarhúsum,
Árni J. Johnsen, Frydendal,
Ágúst Gíslason, Landlyst,
Magnús Guðmundsson, Hlíðarási,
Guðmundur Árnason, bróðir Stefáns Árnasonar lögregluþjóns í Eyjum o.fl.
Einhvern tíma fyrir löngu síðan var margt fólk til heyja í Elliðaey eins og tíðkaðist allt fram á 20. öldina. Meðal þeirra, er voru þarna fyrrum við slátt, var stúlka ein, Guðrún Höskuldsdóttir að nafni. Var það í almæli, að stúlka þessi væri með barni og er sagt, að hún hafi orðið léttari úti í eynni, meðan sláttur þar stóð yfir. Bar hún svo barnið út og faldi í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautarétt.
Oft varð útburðar þessa vart, og nefndu menn hann Höskuld, eftir föður stúlkunnar og hellirinn, sem hún fargaði barninu í, var síðan nefndur Höskuldarhellir.
Útburðurinn gerði lundamönnum og heyfólki oft ýmsar skráveifur og þó sérstaklega, er óveður var í aðsigi. Heyrðist þá útburðarvælið langt að.
Ekki hefir þessa orðið vart á seinni árum og mun því Höskuldur nú útdauður, þótt hins vegar sé Höskuldarhellir enn á sínum stað og hafi stundum verið þrautavatnsból viðlegumanna.
Það var stundum nauðsynlegt fyrir þá, sem lundaveiðar stunduðu í úteyjum, að fara heim og sinna heyskapnum. Ekki mátti slá slöku við hann, þótt hitt væri og nauðsynlegt að fá sem mest af fugli til heimilanna. Nú var það einu sinni, að Einar Jónsson bóndi í Norðurgarði, sem alltaf var til lunda í Elliðaey, varð eitt sinn að fara heim og sinna heyhirðingu. Fór hann þess vegna heim með sókningsbátnum á laugardagskveldi í ágústmánuði 1894.
Sama kvöld og hann kom heim, fór hann að sinna heyskaparverkum. Fyrir þetta athæfi sitt var Einar kærður og sakaður um helgidagslöggjafarbrot. Ekki varð það sannað, að hann hefði staðið við heyvinnu fram yfir miðnætti. Jafnframt var þá rifjað upp, að hann hefði átt að flytja heim á sunnudegi nokkra torfusnepla. Fyrir þetta athæfi sitt fékk Einar aðvörun og varð að greiða málskostnað. – Það virðist hafa verið betra að halda helgidagslöggjöfina út í ystu æsar, ef allt átti vel að fara.
Í sambandi við Einar í Norðurgarði mætti geta þess, að hann veiddi aldrei fugl í Elliðaey, en bar alltaf frá þeim, sem veiddu í veiðistöðunum. Eitt er athyglisvert við þetta. Einar bar alltaf berfættur, hvort hann heldur bar í grasi eða á bergflám. Hann var ekki sárfættur karlinn sá.
Einar var mikið við fuglaveiðar, ekki síst við fýlatekjuna, og þá oftast á bát hin síðari ár. Á yngri árum fór hann hins vegar mikið til fýla í úteyjar og fór þá oft sem göngumaður. Þannig var t.d. 1896, er þeir voru norðan í Álsey Guðjón og Gísli Eyjólfssynir, ásamt Einari, er þeir voru í grastorfunni, er losnaði, og þeir sluppu allir á undursamlegan hátt úr og frá bráðum dauða. Um þetta getur annars staðar í pistlum þessum.
Eitt sinn var Pétur Pétursson í Vanangri til viðlegu í Elliðaey. Þá var þar og margt fólk til heyvinnu og bjó það í tjöldum. Pétur var með skinnhald með sér við veiðarnar, því að oft kom fyrir, að vegna bleytu þurftu menn að vera skinnklæddir.
Hann hafði nú hengt skinnbrók sína til þerris við kofann. Vegna vinds fauk brókin og lenti á tjaldi heyvinnufólksins, sem vaknaði við vondan draum. Þá var kveðið um skinnbrók Péturs:
- Ef hún skaða oftar gerir
- eyðir manna frið
- Pétri ber að bæta fyrir
- bölvað skinnhaldið.
- En ef hún skaða engan gerir
- og eflir manna frið,
- okkur ber að bæta fyrir
- blessað skinnhaldið.
Talið er, að þetta muni vera eftir Ólaf Magnússon í Nýborg, og hafi hann kveðið það fyrir munn heyvinnufólksins, þar eð sjálfur hefir hann vafalaust verið við fuglatekjuna, ásamt Pétri o.fl. Ólafur gerði nokkrar úteyjavísur, meðan hann davldist t.d. í Elliðey, en allflestar munu þær nú týndar eða gleymdar. Eitt sinn sagði Ólafur, er hann var að tíunda veiði sína eftir daginn. Hefir honum sennilega fundist hún vera harla lítil því að hann segir í vísunni:
- Veiðin mín er voða smá
- víst er það ei gaman.
- Til helvítis ég henda má
- háf með öllu saman.
Annað skipti fór Ólafur út til athugunar á því, hvort lundinn væri við og, hvort átt væri. Þá var hann með Lárusi á Búastöðum til lunda í Elliðaey. Er svo að skilja, að honum hafi þótt góðar veiðiaðstæður, en hann hálfkviðið fyrir því að setjast að veiðum. Hann kom til Lárusar þar, sem hann var inni í viðlegutjaldinu og sagði:
- „Hér að skreppa hlýt ég inn
- hörð að kreppir pína.
- Farðu hreppaforinginn
- fljótt í leppa þína.“
Lárus var, sem kunnugt er, hreppstjóri og þess vegna nefnir Óli hann hreppaforingja.
Um enga af úteyjunum og þá menn, sem þar lágu við, hefur verið meira kveðið en Elliðaey. Þar munar hvað mestu, að einn afkastamesti ljóðasmiður Eyjanna, Óskar Kárason, var þar um árabil við veiði. Reyndar orti Óskar Kárason um aðrar eyjar, en Elliðaey var honum hugleiknust eins og skiljanlegt er. Óskar á lungann úr þeim kveðskap, sem hér fer á eftir, og er að finna í safni Árna Árnasonar sem skráði niður vísurnar. (Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012).
- Bólsöngur úr Elliðaey.
- (Höf. Óskar Kárason)
- Í úteyjar faðminum vægum í vindi
- við skulum syngja að bjargmanna sið.
- Hér lífið er frelsi og unaðaryndi
- með ómum frá lundans og svölunnar klið.
- Nú lokið er veiði og sigin er sól
- saman við skálum og röllum við ból.
- Bravissi, bravissi, bravissi, bravissi
- bravissi, bravissi, bravissi mó.
- Veiðimannasöngur Elliðaeyinga
- Lag: Litla flugan eftir Sigfús Halldórsson.
- Elliðaey á frelsi og fegurð lista,
- fugl og gróður prýðir björgin ströng.
- Hennar fold ég ungur gerði gista
- glöðum drengjum með við leik og söng.
- Ég þrái hennar dýrð og frið að finna,
- fullkomin þá júlísólin skín.
- Þá er hún meðal draumadjásna minna,
- dásamlega paradísin mín,
- Kerlingin í Elliðaey:
- (Stór klettadrangur, nokkuð í konulíkingu).
- Höfundar er ekki getið, en líklega er það Árni Árnason.
- Freyjan sú er fremur stór
- fjalla-nærri-brúnum.
- Upp á hana áður fór
- einn á beinum lúnum.
- Heldur lítinn gaum því gaf
- gömul fjalla-kella.
- Sú hefir ekki heims í glaum
- haldin verið mella.
- Það var ég, sem grjótagná
- gerði hreina spjalla.
- Meyjarlaus ég mæddist þá .
- mjög, á eynni fjalla
- Lausmálg er mín ljóðasál,
- lýður að má hyggja.
- Það er ekkert efamál,
- oft má satt kyrrt liggja.
- Kerlingin í Elliðaey
- yndi veitt mér getur.
- Yrkja vil ég um þá mey
- einhvern tíma betur.
- Elliðaeyjarferðin
- (Gamanbragur eftir Á.Á.)
- Á trillu ég fór með „Trana“¹)
- einn túr í Elliðaey,
- af góðum gömlum vana
- með grogg og væna mey.
- Ég vissi að Tóti vinur
- var alveg orðinn þurr
- og Pétur líka linur
- og lyst hafði ekki á Spur.²)
- Við komum svo upp í kofa
- og kölluðum glöð og hress:
- „Hér skulu engir sofa,
- við sjáum nú til þess.“
- Hann Tóti sat í því straffi
- að smyrja öllum brauð,
- en kökur, heitt vatn og kaffi
- og Commander³), Pétur bauð.
- Brátt þreif hann Tóti upp tappann
- og tæmd var óspart skál.
- Þá fór að fara um kappann
- smá fiðringur og rjál.
- Hann skipti skjótt um brækur
- og setti upp lundahatt,
- en ólmur af ást og sprækur
- að ungmeynni sér vatt.
- Hann strauk henni blítt um bakið
- og brjóstin sitt á hvað.
- En reif svo úr rúminu lakið
- og rambaði út á hlað.
- „Við skulum skoða eyna
- og skreppa upp í Rétt.“⁴)
- Svo fór hann í burt með meyna,
- en meira hef ég ei frétt.
- ¹) Trani, þ.e. Valdimar Tranberg sókningsmaður.
- ²) Spur, gosdrykkur, áþekkur Coca Cola.
- ³) Commander, breskar sígarettur, sem Pétur Guðjónsson frá Kirkjubæ reykti.
- ⁴) Rétt, þ.e. fjárréttin í Elliðaey.
- ¹) Trani, þ.e. Valdimar Tranberg sókningsmaður.
- Kerlingin í Elliðaey
- Ljóð: Óskar Kárason
- (Klettur er í Elliðaey, sem Kerling er nefndur,
- þar eð hann líkist mjög kvenmanni.
- Um þessa kerlingu, þ.e. klettinn, kvað Óskar Kárason):
- Á suðurbrún við sævartún
- sólarrúnum kafin.
- situr hún við silfurdún,
- sínum búning vafin.
- Eyjar gætir gyðjan mæt
- glæst í sæti fjalla.
- Meyjan bætir sinnið sæt,
- sveina kætir alla.
- Aldrað sprundið út við sund
- eitt á grundu bíður.
- Enn óbundið það er þund
- því um stundir líður.
- Kletts í ranni kvikkar mann
- kunnur svanni eyja
- þöll með sanni þeirra ann,
- þessi glanni meyja.
- Gömul ljóð úr Elliðaey
Þegar sá var siður að heyja í Elliðaey fyrir mörgum árum síðan, var þar oft margt fólk og glatt á hjalla. Veiðimenn voru sér í kofa, en heyfólkið í tjaldi. Var að sjálfsögðu nokkur samgangur milli fólksins, og gerði, ekki hvað síst vera kvenfólksins, sitt til þeirrar samveru heyfólksins og fuglamanna. Þá varð einhvern tíma til eftirfarandi kveðskapur; höfundur ókunnur.
- Í tjaldinu Sveinn vill sofa,
- húrra, húrra.
- Bergur með læradofa,
- húrra, húrra.
- Rósa vill engu lofa,
- húrra, húrra.
- Guðbjörg vill aldrei sofa,
- húrra, húrra.
- Gudda vill fegin fá það,
- húrra, húrra.
- Steini, sem aldrei má það,
- húrra, húrra.
- Uss, Einar vill ekki sjá það,
- húrra, húrra.
- Oddgeir mun feginn ljá það,
- húrra, húrra.
Líklega mun þetta ort nokkru eftir aldamótin, en ekki verður nú lengur vitað, hver meining brags þessa er, og ekki um, hvaða fólk það er, sem nafngreint er. Þó mun Rósa vera Rósa í Þorlaugargerði, Guðbjörg, líklega Guðbjörg Arnbjörnsdóttir, Prestshúsum, Einar mun vera Einar Sveinsson, en hann hafði að orðtæki í byrjun hverrar setningar, „uss“. Oddgeir mun vera Oddgeir Þórarinsson, Oddsstöðum, Bergur sennilega Bergur Guðjónsson, Kirkjubæ.
- Veiðimannavísur úr Elliðaey árið 1920
- Höfundur: Óskar Kárason
- Forspjall:
- Forspjall:
- Höfundur: Óskar Kárason
- Veiðimannavísur úr Elliðaey árið 1920
- Við mér ungum blasir blíð,
- búin grænum feldi.
- Elliðaeyjar foldin fríð,
- föðmuð sólareldi.
- Áður var mér aldrei skýr
- úteyjanna bragur.
- Hér er sérhver dagur dýr,
- dásamlega fagur.
- Eyjar þegar fann ég fljótt
- frjálsa lífið sanna.
- Hér er dýrðlegt dag sem nótt
- dásemdir að kanna.
- Görpum meður geri ég
- gæðin eyjar meta.
- Þeirra sál mín alls ótreg
- ætlar nú að geta.
- 1. Fyrst ég Guðjón greina má
- garpinn Odds-á stöðum.
- Eyjar ræður sjóli sá
- sveinum fyrir glöðum.
- 2. Hans er fyndið fjörugt mál,
- frítt við angrið leiða.
- Leggur háf við „Nef“ og „Nál“
- njótur frægur veiða.
- 3. Elliðaeyjar byggir borg
- bræðslumanna sómi.
- Einar kátur ekta „Norg“,
- okkar félagsljómi.
- 4. Fyrður lunda fer á stjá
- frægan margan túrinn.
- Þann ég fuglinn fleyga sá
- fanga viður „Búrin“.
- 5. Einars bróður brátt ég má
- burinn Sigurð skrifa.
- Norðurgarðs er njótur sá
- natinn björg að klifa.
- 6. Þrautgóður og þolinn er,
- þreytir veiði á „Fláa“.
- Enginn meir á baki ber
- brekku yfir háa.
- 7. Soninn Helga svo skal tjá
- Sigurð dagfarshægan.
- Þann í „Skoru“ segg ég sá
- sækja fuglinn nægan.
- 8. Fuglabjörg sá klífa kann
- kræfur má ég segja.
- Fjalla- engan finn ég mann
- færari honum Eyja. .
- 9. Þórulaugargerðis-grér,
- getinn Jóni, snarpur.
- Ármann sóminn segist hér
- sannur veiðigarpur.
- 10. Engan staðinn hefir hann
- hér um byggðarsetur.
- Þó ég engan ætla mann
- Eyjar veiða betur.
- 11. Þá er kátur Kristófer
- kunnur Guðjóns niður
- lundann fimur langar sér
- „Lauphausana“ viður.
- 12. Dagfars góða drengnum þeim
- dáða skap er gefið.
- Neftóbaks-þó unni-eim
- upp að soga í nefið.
- 13. Ég um Landa-Kristin kann
- knáan stöku banga.
- „Krummajaðar“ hefur hann
- helst til lunda-fanga.
- 14. Sá er fimur veiði við,
- varast brekku setur.
- Sjaldan ærslum leggur lið,
- létt þó hlegið getur.
- 15. Arfa Guðjóns annan má
- ungan telja Pétur.
- Utan félags unir sá
- enn við „Bunka-setur“.
- 16. Kommanderinn reykir rétt
- rekkur sinnis glaður.
- Hann er, skal í sögu sett,
- sóma veiðimaður.
- 17. Öðrum dreng ég óðar vil
- eina vísu pára.
- „Bunka“ arkar einnig til,
- Óskar, sonur Kára.
- 18. Sá er meður létta lund,
- listum óðar þekkur.
- Púnsið elskar alla stund
- unginn, þegar drekkur.
- Endavísur:
- Þá eru taldir, því ég má
- þjóð með réttu lofa,
- veiðimenn, sem eynni á
- arka Bóls að kofa.
- Hér er lífið, hér er fjör,
- hér er gott að vera.
- Úteyjar-við unaðs-kjör
- allt er hægt að gera.
- Lundinn syngur sinn við rann,
- sólin eyna kveður.
- Nætursvalan svæfir mann
- sínu diggi meður.
- Glaður ég í fletið fer,
- frískur eftir daginn.
- Óðardísin ætlar mér
- ekki lengri braginn.
Skýringar við vísurnar: |
||||
Vísa | 1-2 | Guðjón Jónsson, Oddsstöðum |
„Nef og Nál“eru veiðistaðir | |
— | 3-4 | Einar Einarsson, Norðurgarði |
„Norg“, þ.e. Einar Norg – Einar | |
— | 5-6 | Sigurður Einarsson, Norðurgarði |
||
— | 7-8 | Sigurður Helgason, Götu |
Búrin eru lundaveiðistaður | |
— | 9-10 | Ármann Jónsson, Þorlaugargerði |
||
— | 11-12 | Kristófer Guðjónsson, Oddsstöðum |
Skora er lundaveiðistaður | |
— | 13-14 | Kristinn Sigurðsson, Löndum |
Lauphausar eru lundaveiðistaður | |
— | 15-16 | Pétur Guðjónsson, Oddsstöðum |
Krummajaðar er lundaveiðistaður | |
— | 17-18 | Óskar Kárason, Presthúsum |
Bunki, lundabyggð |
- Forspjall að veiðimannatali um Elliðaeyjarmenn 1950
- Höf.: Óskar Kárason.
- Rommið viður vil ég yður, vinir, segja,
- mig um biður Boðnar-meyja
- bragar-mjöðinn fram að teygja.
- Forspjall að veiðimannatali um Elliðaeyjarmenn 1950
- Ég vil tali virða að vali vænu snúa.
- Þeir nú sali bólsins búa
- bundnir máli svölu grúa.
- Veiðimannatal 1950:
- Fyrst skal Pétur frægan telja fuglahalinn.
- Oddsstöðum frá upp mun alinn,
- einn af sonum Guðjóns valinn.
- Methafi sá má nú heita í morði lunda,
- því níu hundruð og nokkra betur
- nýtur veiddi í Skoru Pétur.
- Afrek slíkt ég engan vissi áður vinna.
- Við skulum því við rommið rjála
- og röskum drengjum fyrir skála.
- Kristófer þá kemur næstur, kappi veiða,
- Péturs bróðir, árum eldri,
- aldrei meður sálu hrelldri.
- Hann má segjast sérstakur á sína vísu,
- því engum vissi ég garpi gefið,
- að geta tekið meira í nefið.
- Þann ég vænstan virða tel í viðmótshlýju.
- Til heiðurs skal því honum syngja
- háttinn forna og glösum klingja.
- Þórarin frægan þá skal telja í þessum bragi.
- Á Kirkjubæ er garpur getinn
- Guðjónssonur traustur metinn.
- Á „Búrunum“ veiðir berserkurinn býsna fimur,
- og oft í háfinn álkur laðar,
- einkum viður Hrafnajaðar.
- Forspjall:
- Um ég segi Elliðaey
- og það degi sanna:
- Henni eigi fegra fley
- finnst á vegi hranna.
- 1. Upp að telja alla skal
- Elliðaeyjar þunda,
- sem í fríðum fjallasal
- fuglaveiðar stunda.
- 2. Bræður staðar Odds á ey
- enn sér bólið velja.
- Kónginn yfir klettamey
- Kristófer má telja.
- 3. Greinist fyrður fugl við snar
- frægur Skoru-Pétur.
- Útvarpsstjóri er hann þar,
- ekki veit ég betur.
- 4. Guðlaug ég og Guðmund má
- garpa veiði kalla.
- Odds nú staðar eg hef þá
- upp skráð bræður snjalla.
- 5. Þórarin ég þybbinn fann
- þramma hengin fjalla.
- Röskan dreng ég rita þann
- ræðumanninn snjalla.
- 6. Kirkjubæ er kominn frá.
- Kalla má hann Tóta.
- Þrælatökum tekur sá
- teita, sem að skjóta.
- 7. Laugi kátur Kristófers
- kann að raka og greiða.
- Sá er, meðal manna vers,
- magnaður að veiða.
- 8. Einnig drengir una hér,
- Árni, Gutti og Varði.
- Háf bar líka, brattur ber,
- Bjarni í Háagarði.
- 9. Fleiri ekki fuglamenn
- finnast hér má pára.
- Endar spjallið óðar senn
- Óskar sonur Kára.
- 10. Bunki gamli brúnalaus,
- búinn stráum grunda.
- Elds úr námu upp sér gaus
- aðeins fyrir lunda.
- Lundavísur:
- Sjái lundi á krumma kvik,
- kjarkurinn er búinn.
- Þá er hann eftir augnablik
- allur burtu flúinn.
- Ég vil ekki spor í sport
- sprunda leita funda,
- heldur skýrt og skorinort
- skunda háf-með lunda.
- Steinhrúturinn í Elliðaey:
- Veðrahríð þó hrjái stríð
- „Hrútinn“ tíðum „Nálar“.
- Hann við fríða fjallahlíð
- fegurð lýðum málar.
- Um Háubæli:
- Háubæli hrikalegu hengin fjalla
- fyrðum sýna fegurð snjalla
- fugli skreyttum alla stalla.
- Einstakar vísur úr Elliðaey
- eftir Óskar Kárason.
- Mín þó hrundin blíða best
- bæti stundar amann,
- veiði lunda veit ég mest
- vera þundar gaman.
- Einstakar vísur úr Elliðaey
- Lundavísa:
- Er mín lunda einkar góð
- etinn lundabaggi.
- Fjalls við lunda fjærri þjóð
- fangar lunda Maggi.
- Datt með háfinn í Elliðaey:
- Ekki get ég af mig stært
- aflabrögðum lunda.
- Með brotinn háf og bakið sært
- bóls til má ég skunda.
- Datt með háfinn í Elliðaey:
- Flánefið í Elliðaey:
- Víða ég með háfinn hef
- haft við brúnir töf.
- Fjandinn hirði Fláarnef
- fjalls á ystu nöf.
- Strákakórinn í Hábarði:
- Þó ég ungur feti frí
- fjalla tæpa stíga,
- Strákakórinn aldrei í
- aftur skal ég síga.
- Strákakórinn í Hábarði:
- Tregur afli:
- Aflinn minn er ekki rýr
- eftir tíund slíka.
- Hjá mér lágu þrennir þrír,
- þar með álku-píka.
- Lítil veiði:
- Enginn lundi að mér fló
- upp þó setti stillur.
- Tæpt á fláa tók ég þó
- tvær í háfinn rillur.
- Hamrabjörgin hef ég laus
- heimskur gert að flakka.
- Mulinn, að ei minn er haus,
- má ég guði þakka.
- Bragarbót:
- Um kerlinguna í Elliðaey
- Höf: Óskar Kárason
- Á suðurbrún við sævar-tún,
- sólar-rúnum kafin,
- situr hún með silfur dún
- sinn um búning vafin.
- Eyjar gætir gyðjan mæt,
- glæst í sæti fjalla.
- Meyjan bætir sinnið sæt,
- sveina kætir alla.
- Aldrað sprundið út við sund,
- eitt á grundu bíður.
- Enn óbundið það er þund
- því um stundir líður.
- Fyrðinn bundinn fjalls-við grund
- fögur hrund má skoða,
- en á fund hans yfir sund
- enga stund má troða.
- Forlög ljót þó frú og njót
- festi grjóts við ögur
- Klettsins Bótar „Bónda“ mót
- brosir snótin fögur.
- Aðeins má hún segginn sjá,
- síðan þrá og bíða.
- Bjargs því háum brúnum á
- bæði stráin líða.
- Sýnir trölla-trúna snjöll
- trygga þöllin steina.
- Laus við spjöllun ennþá öll
- eins og mjöllin hreina.
- Kletts í ranni kætir mann
- kunnur svanni Eyja,
- því með sanni þeirri ann
- þessi glanni meyja.
- Eftirfarandi vísum Óskars Kárasonar fylgir engin nafngift,
- en ort er um veiðimenn í Elliðaey, og fyrstu fjórar vísurnar
- fjalla um Þórarin Guðjónsson (Tóta á Kirkjubæ).
- Eftirfarandi vísum Óskars Kárasonar fylgir engin nafngift,
- Vandlátur sá virðist mér í vali sprunda,
- því enda vill hann að sér binda
- eiginkonu til að mynda.
- Hann þó aki heim á kvöldin heilum skara
- lætur hann allar frá sér fríar
- og fær sér bara aftur nýjar.
- Þetta er met, ég má nú segja í meyja bransa.
- Tóti er líka, satt að segja,
- svannagullið Vestmannaeyja.
- Honum skal því herrasafn til heiðurs skála
- og dreypa á þeim drykknum fína,
- sem drjúgum hressir sálu mína.
- Víst eru taldir virðar þeir, sem veiði þjóna.
- Ungir greinast Árni og Bjarni,
- ennþá drengir lífs á hjarni.
- Geta má um gesti tvo með garpa safni:
- Hólnum frá ég Friðrik pára
- flestir þekkja Óskar Kára.
- Lokavísur:
- Af rommi hálfur rak ég saman rímna lagið.
- Braghendu skal háttinn þylja,
- þó hann enginn geri skilja.
- Hálf var líka, trú ég talin, tvítug öldin,
- hálf var mæna í höldinn farinn,
- hálfur allur karla skarinn.
- Síðast galinn varð ég válinn víst ég hjala.
- Meir um hali má ei tala
- mjög þó gali skrofa, svala...