Kvenfélagið Líkn
Aðalhvatamaðurinn að stofnun Kvenfélagsins Líknar var læknirinn Halldór Gunnlaugsson. Hann fann að sterk þörf var fyrir samhug fólks og því fannst honum kjörið að stofna kvenfélag. Var félagið stofnsett þann 14. febrúar 1909. Forstöðukona félagsins var Jóhanna Árnadóttir.
Halldór gaf félaginu nafn sem hann taldi að væri viðeigandi samkvæmt tilgangi þess sem var að líkna og hlynna að bágstöddum sjúklingum í Vestmannaeyjum svo og til þess að veita aðra þá aðstoð sem félagið sæi sér fært um að veita hverju sinni.
Stofnendur félagsins voru 23 konur:
- Anna Gunnlaugsson Kirkjuhvol,
- Ásdís Johnsen Breiðabliki,
- Ágústa Eymundsdóttir Hól,
- Björg Sighvatsdóttir Kirkjubæ Gilsbakka
- Elsa Ólafsdóttir,
- Guðbjörg Petersen Gimli,
- Guðrún Runólfsdóttir Sveinsstöðum,
- Guðbjörg Guðmundsdóttir Kirkjubæ Dölum,
- Guðríður Stefánsdóttir Mandal,
- Hjámrún Hjálmarsdóttir Vegamótum,
- Ingibjörg Hreinsdóttir Eiðum,
- Jóhanna Árnadóttir Stakkagerði,
- Jóhanna Lárusdóttir Grund,
- Kristín Jónsdóttir Jómsborg,
- Lára Guðjónsdóttir Kirkjulandi,
- Ólöf Lárusdóttir Kirkjubóli,
- Pálína Vigfúsdóttir Scheving Vilborgarstöðum,
- Sigurbjörg Pétursdóttir Vegamótum,
- Steinunn Sigurðardóttir Lambhaga,
- Theódóra Gísladóttir Stakkagerði,
- Fríður Ingimundardóttir Sætúni,
- Elín Einarsdóttir Hofi,
- Jónína Jónsdóttir Steinholti.
Á stofnfundi félagsins afhenti Halldór konunum sparisjóðsbók með 200 króna inneign. Með því gátu konurnar hafist handa. Talið er að þetta hjálparstarf sé fyrsti vísirinn að heimahjúkrun í Vestmannaeyjum.
Heimildir
- Anna Þorsteinsdóttir. Eyjaskinna 5. 1992.