Breiðablik
Húsið Breiðablik stendur við Breiðabliksveg 5. Húsið var áður skráð á Kirkjuveg 45. Breiðablik var byggt árið 1908 fyrir Gísla J. Johnsen, kaupmann og útgerðarmann eftir teikningum Sveins Jónssonar, arkitekts. Breiðablik var fyrsta hús í Eyjum með vatnssalerni og sagt er að yfirsmiður hússins hafi harðneitað að hafa kamar inni í húsi og ekki látið sig fyrr en honum var leyft að smíða einnig útikamar við húsið.
Iðnaðarmannafélag Vestmannaeyja átti húsið frá 1934-1952 og var þar m.a. starfræktur kvöldskóli. Félagið leigði húsið til skólahalds á þeim árum. Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum var starfræktur í húsinu frá 1934. Fyrst á neðri hæð hússins og seinna á báðum hæðum.
Frá árinu 1963 var þar til húsa Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum. Í gosinu 1973 voru öll siglinga- og fiskileitartæki skólans send upp á meginlandið með strandferðaskipinu Heklu.
Breiðablik kom talsvert við sögu í sjónvarpsþáttum Þráins Bertelssonar „Sigla himinfley“ en húsið var sýnt sem heimili útgerðarmannsins í þeim þáttum.
Í Breiðabliki bjó 2006 Hartmann Ásgrímsson tannlæknir ásamt konu og börnum.
Eigendur og íbúar
- Gísli J. Johnsen og fjölskylda frá 1908 til 1930
- Ástþór Matthíasson
- Gísli Friðriksson
- Guðni Þorsteinsson 1965
- Jón Hallvarðsson
- Einar Illugason
- Gísli Hjörleifsson
- Carl Ólafur Gränz
- Hartmann Ásgrímsson og fjölskylda
Heimildir
- Breiðabliksvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.