Stella Ögmundsdóttir (Litlalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Vík í Mýrdal fæddist 11. október 1933.
Foreldrar hennar voru Ögmundur Ólafsson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 6. júní 1894 í Litlabæ á Álftanesi, d. 29. september 1995 og síðari kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 17. maí 1899, d. 16. mars 1992.

Börn Guðrúnar og Ögmundar:
1. Jón Sveinbjörn Ögmundsson, f. 3. ágúst 1924 í Garðsfjósi, d. 19. júlí 1945.
2. Margrét Ögmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. ágúst 1925 í Kornhól, d. 8. apríl 2009.
3. Ólafur Friðrik Ögmundsson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal, síðar á Selfossi, f. 7. nóvember 1926 í Kornhól, d. 20. apríl 2010.
4. Sigurður Ögmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1928 í Kornhól, d. 25. apríl 1987.
5. Ágúst Ögmundsson vélstjóri, síðar starsfmaður símans í Danmörku, f. 7. apríl 1932 á Auðsstöðum, (Brekastíg 15b), d. 19. júní 2003.
6. Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 11. október 1933.
7. Sigurbjörn Ögmundsson skipstjóri í Hrísey, f. 29. maí 1935 á Múla við Bárugötu 14 B, d. 18. apríl 2015.
8. Málfríður Ögmundsdóttir fulltrúi í Kópavogi, f. 25. nóvember 1939 á Litlalandi.
9. Þóra Björg Ögmundsdóttir verslunarmaður á Selfossi, f. 16. júní 1944 á Kirkjuvegi 59, Litlalandi.
10. Jón Ögmundsson vélvirki við Sigölduvirkjun, f. 18. september 1945 á Litlalandi.
Börn Ögmundar og Rannveigar Óladóttur fyrri konu hans:
1. Andvana stúlka, f. 5. september 1916 á Mosfelli.
2. Gísli Magnús Ögmundsson vélstjóri, síðar í Ólafsvík, f. 13. ágúst 1917 á Mosfelli, d. í desember 1944. Fósturforeldrar hans voru Nikulás Illugason og Kristín Pálsdóttir í Sædal við Vesturveg 6.

Stella var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lærði í Kvennaskólanum í Hveragerði 1949-1950.
Hún var fiskvinnslukona, síðan afgreiðslukona hjá Ingibjörgu Tómasdóttur og við afgreiðslu í Vogsabakaríi.
Stella var kaupakona í Suður-Nýjabæ í Flóa 1948 og síðan vann hún í Tryggvaskála um skeið, var sumarið 1949 við skógrækt á Tumastöðum í Fljótshlíð. Síðan var hún í vist í Reykjavík 1951, en fór þaðan til Margrétar systur sinnar í Vík í Mýrdal, var hjá henni nokkra mánuði, fór 1952 til Reykjavíkur og vann í Kexverksmiðjunni Frón eitt sumar.
Stella vann í Prjónastofunni Kötlu í Vík, kenndi á saumanámskeiðum í Skaftafellssýslu og u. Eyjafjöllum. Við opnun hringvegarins tók hún að sér matreiðslu í Víkurskála og hluta úr sumri var hún við störf á Hótel Eddu á Kirkjubæjarklaustri.
Þau Guðni Óskar giftu sig 1953, eignuðust þrjú börn. Þau keyptu árið 1958 húsið Fögrubrekku í Vík í Mýrdal og bjuggu þar til ársins 2009, en fluttu þá til Reykjavíkur.
Guðni Óskar lést 2017.
Guðbjörg býr í Boðaþingi í Kópavogi.

I. Maður Guðbjargar Stellu, (28. janúar 1953), var Guðni Óskar Gestsson frá Stakkholti, bifvélavirki, vörubílstjóri, f. þar 28. janúar 1929, d. 4. maí 2017 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Guðrún Dröfn Guðnadóttir verslunarmaður, f. 18. mars 1954. Maður hennar Sigþór Ingvarsson Sigurjónssonar.
2. Sigrún Harpa Guðnadóttir viðskiptafræðingur, ritari, f. 12. mars 1958. Barnsfaðir hennar Bjartmar Guðlaugsson. Sambúðarmaður hennar Guðmundur Þ. Ragnarsson.
3. Ögmundur Jón Guðnason bifvélavirki á Höfn í Hornafirði, f. 28. júní 1966. Kona hans Elísbet Þorsteinsdóttir Matthíassonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 27. maí 2017. Minning Guðna Óskars.
  • Prestþjónustubækur.
  • Stella.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.