Jón Ögmundsson (Litlalandi)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search
Jón Ögmundsson.

Jón Ögmundsson frá Litlalandi, vélvirkjameist.ri fæddist þar 18. september 1945 og lést 22. mars 2023.
Foreldrar hans voru Ögmundur Ólafsson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 6. júní 1894 í Litlabæ á Álftanesi, d. 29. september 1995 og síðari kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 17. maí 1899, d. 16. mars 1992.

Börn Guðrúnar og Ögmundar:
1. Jón Sveinbjörn Ögmundsson, f. 3. ágúst 1924 í Garðsfjósi, d. 19. júlí 1945.
2. Margrét Ögmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. ágúst 1925 í Kornhól, d. 8. apríl 2009.
3. Ólafur Friðrik Ögmundsson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal, síðar á Selfossi, f. 7. nóvember 1926 í Kornhól, d. 20. apríl 2010.
4. Sigurður Ögmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1928 í Kornhól, d. 25. apríl 1987.
5. Ágúst Ögmundsson vélstjóri, síðar starsfmaður símans í Danmörku, f. 7. apríl 1932 á Auðsstöðum, (Brekastíg 15b), d. 19. júní 2003.
6. Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 11. október 1933.
7. Sigurbjörn Ögmundsson skipstjóri í Hrísey, f. 29. maí 1935 á Múla við Bárugötu 14 B, d. 18. apríl 2015.
8. Málfríður Ögmundsdóttir fulltrúi í Kópavogi, f. 25. nóvember 1939 á Litlalandi.
9. Þóra Björg Ögmundsdóttir verslunarmaður á Selfossi, f. 16. júní 1944 á Kirkjuvegi 59, Litlalandi.
10. Jón Ögmundsson vélvirki við Sigölduvirkjun, f. 18. september 1945 á Litlalandi, d. 22. mars 2023.
Börn Ögmundar og Rannveigar Óladóttur fyrri konu hans:
1. Andvana stúlka, f. 5. september 1916 á Mosfelli.
2. Gísli Magnús Ögmundsson vélstjóri, síðar í Ólafsvík, f. 13. ágúst 1917, d. í desember 1944. Fósturforeldrar hans voru Nikulás Illugason og Kristín Pálsdóttir í Sædal við Vesturveg 6.

Jón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Þór, fékk meistararétttindi.
Jón vann við iðnina í Eyjum til Goss 1973.
Þau Sigrún giftu sig 18. nóvember 1965, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Illugagötu 16 1972.
Fjölskyldan flutti á Rauðalæk í Holtum til Þóru Bjargar systur Jóns og þau Sigrún bjuggu þar til 1990, en fluttu þá í Bogatún 36.
Jón vann hjá bílaverkstæði Kaupfélags Rangæinga í 4-5 ár, en réðst þá til starfa hjá Búrfellsvirkjun og síðar Sigölduvirkjun og vann þar til starfsloka sinna. Hann dvelur nú á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu.
Sigrún býr í Bogatúni.

I. Kona Jóns, (18. nóvember 1965), er Sigrún Kristín Sveinbjarnardóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1945.
Börn þeirra:
1. Sveinbjörn Jónsson húsgagnabólstarari á Hellu, f. 11. júlí 1966. Kona hans Heiðrún Ólafsdóttir.
2. Ásdís Guðrún Jónsdóttir skrifstofumaður á Hellu., f. 7. febrúar 1971. Maður hennar Sigurður Jónasson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.