Gíslína Magnúsdóttir (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja fæddist 8. mars 1953 á Kornhól.
Foreldrar hennar Magnús Magnússon frá Kornhól, verkamaður, bóndi, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009, og kona hans Birna Rut Guðjónsdóttir frá Nýjalandi við Heimagötu 26, húsfreyja, f. 7. október 1932.

Börn Birnu og Magnúsar:
1. Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, f. 6. desember 1951. Maður hennar Eggert Sveinsson.
2. Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja, m.a. starfsmaður á leikskóla, f. 8. mars 1953.
3. Magnea Ósk Magnúsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 10. júní 1958. Maður hennar Daði Garðarsson.

Gíslína var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann ýmis störf, m.a. afgreiðslustörf í versluninni Borg og Heimaveri, var starfsmaður á leikskólanum Rauðagerði, á Sjúkrahúsinu og við ræstingar í Framhaldsskólanum.
Hún eignaðist barn með Magnúsi Gísla 1970 og með Sigurjóni 1973.
Þau Gísli giftu sig 1977, eignuðust tvö börn.
Þau búa við Stóragerði 2.

I. Barnsfaðir Gíslínu er Magnús Gísli Magnússon íþróttakennari í Eyjum, f. 5. september 1947 í Keflavík. Fósturforeldrar hans Guðjón Þorsteinsson og Pálína Pálsdóttir, en foreldrar Magnús Dalmann Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík og Hulda Gísladóttir húsfreyja.
Barn þeirra:
1. Sólveig Birna Magnúsdóttir húsfreyja á Spáni, f. 28. nóvember 1970. Fyrrum maður hennar Vilhjálmur Árnason. Maður hennar Jóhann Ingvi Ingvason.

II. Barnsfaðir Gíslínu er Sigurjón Pálsson, f. 24. september 1946.
Barn þeirra:
2. Magnús Páll Sigurjónsson lögregluþjónn á Selfossi, f. 6. nóvember 1973 í Reykjavík. Hann er fósturbarn Gísla manns Gíslínu. Fyrrum sambúðarkona hans Linda Björk Ólafsdóttir. Kona hans Elísabet Agnes Sverrisdóttir.

III. Maður Gíslínu, (7. október 1977), er Gísli Jóhannes Óskarsson kennari, fréttamaður, f. 18. desember 1949.
Börn þeirra:
3. Óskar Magnús Gíslason starfsmaður Bókasafnsins í Eyjum, f. 18. september 1979. Hann er ókvæntur.
4. Kristín Gísladóttir sjúkraliði, þroskaþjálfi í Reykjavík, f. 25. mars 1982. Maður hennar Trausti Hafliðason.
5. Guðjón Gíslason, f. 22. júní 1987. Hann býr í Innri-Njarðvík. Sambúðarkona hans Iris Marina Nicole Boutin (franskrar ættar).
6. Daði Gíslason, f. 28. júlí 1989, býr í Reykjavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.