Magnús Magnússon (Skansinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Magnús Magnússon.

Magnús Magnússon frá Skansinum, verkamaður, bóndi fæddist 10. febrúar 1930 og lést 3. janúar 2009.
Foreldrar hans voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og kona hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. nóvember 1889 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 22. mars 1984.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
1. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
2. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
3. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
4. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
5. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
6. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
7. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
8. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
9. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
10. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
11. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
12. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
13. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
14. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Magnús var með foreldrum sínum í æsku, á Miðhúsum og á Skansinum.
Hann var mikið í sveit hjá Sigríði systur sinni í Þykkvabæ og í Garðsauka í Hvolhreppi. Hann varð verkamaður og sjómaður, var m.a. á togaranum Elliðaey. Magnús var verkamaður hjá Dalabúinu.
Þau Birna keyptu Dalabúið 1962, ráku þar mjólkurbú uns bannað var að selja ógerilsneydda mjólk, en þá snéru þau sér að hænsnarækt. Magnús vann síðast hjá Fiskimjölsverksmiðjunni.
Þau Birna Rut giftu sig 1951, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í á Skansinum, en síðan á Helgafellsbraut 15 til Goss, en þá að Smáragötu 12 og að síðustu á Grund við Kirkjuveg 31.
Magnús lést 2009.

I. Kona Magnúsar, (7. október 1951), er Birna Rut Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 7. október 1932.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, f. 6. desember 1951 í Kornhól. Maður hennar Eggert Sveinsson.
2. Gíslína Magnúsdóttir húsfreyja, m.a. starfsmaður á leikskóla, f. 8. mars 1953 í Kornhól. Maður hennar Gísli Jóhannesson Óskarsson.
3. Magnea Ósk Magnúsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 10. júní 1958 í Eyjum. Maður hennar Daði Garðarsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 7. febrúar 2009. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.