„Sjósvala“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
Á varptíma er sjósvalan mjög félagslynd, hún verpir í mjög þéttum byggðum oft innan um aðra fugla. Hjúskapur sjósvölunnar er ævilangt einkvæni, makar endurnýja hjúskapinn árlega og kemur lyktarskyn hennar að góðum notum til að finna réttan maka. Varptími sjósvölu er um miðjan maí og verpir fuglinn einu eggi og tekur útungunin um sex vikur, eða um 42 daga. Eggjaskurnið er hvítt og eru stundum smá fjólubláar yrjur á því. Fyrstu fimm dagana eftir að unginn skríður úr eggi er honum sinnt allan sólarhringinn, en þegar hann er að stálpast er honum einungis sinnt á nóttunni. Þegar unginn nálgast það að vera fleygur minnkar matargjöfin og foreldrarnir koma ekki við á hverju kvöldi, en þó er unginn aldrei yfirgefinn fyrr en hann er floginn af hreiðrinu. | Á varptíma er sjósvalan mjög félagslynd, hún verpir í mjög þéttum byggðum oft innan um aðra fugla. Hjúskapur sjósvölunnar er ævilangt einkvæni, makar endurnýja hjúskapinn árlega og kemur lyktarskyn hennar að góðum notum til að finna réttan maka. Varptími sjósvölu er um miðjan maí og verpir fuglinn einu eggi og tekur útungunin um sex vikur, eða um 42 daga. Eggjaskurnið er hvítt og eru stundum smá fjólubláar yrjur á því. Fyrstu fimm dagana eftir að unginn skríður úr eggi er honum sinnt allan sólarhringinn, en þegar hann er að stálpast er honum einungis sinnt á nóttunni. Þegar unginn nálgast það að vera fleygur minnkar matargjöfin og foreldrarnir koma ekki við á hverju kvöldi, en þó er unginn aldrei yfirgefinn fyrr en hann er floginn af hreiðrinu. | ||
Sjá grein eftir [[Þorsteinn Einarsson|Þorstein Einarsson]] í Bliki 1939, 5. tbl. ([[Blik 1939, 5.tbl./Stóra sjósvalan]]). | |||
[[Flokkur:Fuglar]] | [[Flokkur:Fuglar]] |
Útgáfa síðunnar 7. október 2009 kl. 19:22
Sjófuglar |
---|
Vaðfuglar |
Mávar, kjóar, þernur |
Andfuglar |
Spörfuglar |
Annað |
Útdauðir fuglar |
Sjósvala (Oceanodroma Leucorhoa)
Sjósvalan er af pípunefjaætt. Hún er dökk með hvítan gump og sýlt stél. Nefið er stutt og svart. Sjósvalan er um 22 cm löng og vegur á milli 40-50 g. Vænghaf hennar er 48 cm. Sjósvalan nærist á dýrasvifum, smákrabbadýrum og seiðum. Sjósvalan er alger sjófugl og kemur á land til þess eins að verpa. það gerir hún í háum björgum eða klettum. Sjósvalan er náttfugl og sést sjaldan á sjó og aldrei sést hún nema augnablik í senn.
Á varptíma er sjósvalan mjög félagslynd, hún verpir í mjög þéttum byggðum oft innan um aðra fugla. Hjúskapur sjósvölunnar er ævilangt einkvæni, makar endurnýja hjúskapinn árlega og kemur lyktarskyn hennar að góðum notum til að finna réttan maka. Varptími sjósvölu er um miðjan maí og verpir fuglinn einu eggi og tekur útungunin um sex vikur, eða um 42 daga. Eggjaskurnið er hvítt og eru stundum smá fjólubláar yrjur á því. Fyrstu fimm dagana eftir að unginn skríður úr eggi er honum sinnt allan sólarhringinn, en þegar hann er að stálpast er honum einungis sinnt á nóttunni. Þegar unginn nálgast það að vera fleygur minnkar matargjöfin og foreldrarnir koma ekki við á hverju kvöldi, en þó er unginn aldrei yfirgefinn fyrr en hann er floginn af hreiðrinu. Sjá grein eftir Þorstein Einarsson í Bliki 1939, 5. tbl. (Blik 1939, 5.tbl./Stóra sjósvalan).