Marý Ólöf Kolbeinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Marinó og Marý.

Marý Ólöf Kolbeinsdóttir frá Hvoli við Urðaveg 17 fæddist 24. nóvember 1955.
Foreldrar hennar voru Kolbeinn Oddur Sigurjónsson sjómaður, f. 12. september 1932, d. 27. maí 2020, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, f. 26. ágúst 1932, d. 2. maí 1992.

Barn Kolbeins og Rannveigar Snótar Einarsdóttur frá Götu er
1. Einar Þór Kolbeinsson rafvirkjameistari, símvirki, tölvutæknir á Húsavík, f. 15. maí 1953 í Götu við Herjólfsgötu 12, síðar skráð Heiðarvegi 6. Kona hans María Óskarsdóttir.
Börn Sigríðar og Kolbeins:
2. Harpa Kolbeinsdóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður í Hraunbúðum, f. 10. febrúar 1954 í Vatnsdal. Fyrrum sambúðarmaður hennar Páll Sveinsson. Fyrrum maður hennar Haraldur Geir Hlöðversson. Fyrrum maður hennar Gestur Gunnbjörnsson. Maður hennar Ómar Valur Eðvaldsson.
3. Anna Ísfold Kolbeinsdóttir, þríburi, verkakona, sjókona, starfsmaður Hraunbúða, þríburi, f. 24. nóvember 1955, d. 21. júní 2017. Fyrrum sambýlismaður hennar Halldór Guðmundsson, látinn. Fyrrum sambýlismaður hennar Haukur Hauksson.
4. Marý Ólöf Kolbeinsdóttir þríburi, verkakona, skrifstofumaður, rekur Miðstöðina með eiginmanni sínum, f. 24. nóvember 1955. Maður hennar Sigurvin Marinó Sigursteinsson.
5. Guðrún Fjóla Kolbeinsdóttir, þríburi, húsfreyja, rekur veitingastað í Vogum á Vatnsleysuströnd, f. 24. nóvember 1955. Fyrrum sambýlismaður Sigurjón Ragnar Grétarsson. Maður hennar Jörundur Guðmundsson.
6. Ingibjörg Sigríður Kolbeinsdóttir verkakona, starfsmaður Hraunbúða, f. 4. desember 1957. Sambýlismaður hennar Baldur Þór Bragason, látinn.
7. Elfa Sigurjóna Kolbeinsdóttir húsfreyja í Englandi, vinnur að umönnun aldraðra, f. 17. maí 1963. Maður hennar Patrick Tear.
8. Kolbeinn Freyr Kolbeinsson verkamaður, öryrki, f. 10. mars 1973. Fyrrum sambýliskona hans Jóhanna Ýr Jónsdóttir.

Marý var einn af þríburum foreldra sinna.
Hún vinnur við Miðstöðina, sem annast pípulagnir og verslun.
Marý eignaðist barn með Höskuldi 1974.
Þau Marinó giftu sig, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra nær fjögurra ára. Þau hafa búið við Fjólugötu.

I. Barnsfaðir Marýjar er Höskuldur Sæmundsson, f. 24. júlí 1951.
Barn þeirra:
1. Heiða Björk Höskuldsdóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 1. febrúar 1974. Barnsfaðir hennar Kristmann Einarsson. Barnsfaðir Ramsdal. Barnsfaðir Hannes Ástráður Auðunarson.

II. Maður Marýjar er Sigurvin Marinó Sigursteinsson pípulagningameistari, kaupmaður, framkvæmdastjóri, f. 7. desember 1952.
Börn þeirra:
1. Bjarni Ólafur Marinósson pípulagningameistari, byggingafræðingur, f. 9. maí 1976. Kona hans Tinna Tómasdóttir.
2. Ingibjörg Marinósdóttir, f. 7. júní 1983, d. 29. maí 1987.
3. Ingibjörg Ósk Marinósdóttir naglafræðingur, f. 29. ágúst 1990. Maður hennar Jóhann Birnir.
4. Sigursteinn Marinósson, vélvirki f. 14. júní 1992. Kona hans Diljá Daðadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.