Jóhanna Ýr Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Ýr Jónsdóttir, húsfreyja, sagnfræðingur, þýðandi fæddist 25. nóvember 1974.
Foreldrar hennar voru Jón Ólafur Kjartansson frá Húsavík, sjómaður, vélstjóri, verkalýðsleiðtogi, f. 16. júlí 1930, d. 13. desember 2016, og kona hans Sigríður Angantýsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 1. apríl 1932 á Geirseyri við Strandveg 18, d. 18. desember 1983.

Börn Sigríðar og Jóns:
1. Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur í Reykjavík, f. 1. september 1950 í Húsavík.
2. Kjartan Jónsson netagerðarmaður á Stokkseyri, gangavörður í Reykjavík, f. 5. október 1952 á Skjaldbreið.
3. Helga Jónsdóttir húsfreyja, framkvæmdastjóri í Eyjum, f. 11. ágúst 1955 á Skjaldbreið.
4. Ástþór Jónsson stýrimaður og útgerðarmaður, verslunarstjóri, f. 26. ágúst 1957 á Skjaldbreið.
5. Heimir Jónsson stýrimaður, tölvufræðingur, forstöðumaður, f. 13. desember 1963 í Húsavík.
6. Jóhanna Ýr Jónsdóttir húsfreyja, sagnfræðingur, þýðandi, f. 25. nóvember 1974 á Sjúkrahúsinu.

Jóhanna Ýr eignaðist barn með Kolbeini Frey 1992.
Þau Halldór Hrafn giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Barnsfaðir Jóhönnu Ýrar er Kolbeinn Freyr Kolbeinsson, f. 10. mars 1973.
Barn þeirra:
1. Heba Sigríður Kolbeinsdóttir, f. 2. janúar 1992 í Rvk.

II. Maður Jóhönnu Ýrar er Halldór Hrafn Gíslason, kerfisfræðingur, f. 1. mars 1977. Foreldrar hans Gísli Gíslason, véltæknifræðingur, f. 6. desember 1938, og Þórlaug Sigrún Halldórsdóttir, húsfreyja, ritari, kennari, skrifstofumaður, bókhaldari, f. 20. janúar 1944, d. 18. nóvember 2012.
Börn þeirra:
2. Gísli Hrafn Halldórsson, f. 8. apríl 2003 í Rvk.
3. Sigrún Ýr Halldórsdóttir, f. 8. júlí 2004 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.