Ása Valtýsdóttir (Kirkjufelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ása Valtýsdóttir frá Kirkjufelli, húsfreyja, verkakona fæddist 7. ágúst 1933 á Hvoli og lést 24. apríl 1981.
Foreldrar hennar voru Valtýr Brandsson verkamaður, sjómaður, verkstjóri, f. 3. júní 1901 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1976, og kona hans Ásta Sigrún Guðjónsdóttir frá Miðhúsum í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 5. september 1905 í Varmadal á Rangárvöllum, d. 10. maí 1999.

Barn Ástu Sigrúnar:
1. Helga Valtýsdóttir húsfreyja, starfsmaður Pósts og síma, bjó í Garðabæ, f. 21. júlí 1928 í Krókatúni í Hvolhreppi, d. 19. apríl 2020. Maður hennar er Björn Björnsson. Börn Ástu Sigrúnar og Valtýs:
2. Jóhanna Valtýsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 17. júní 1930 í Sjólyst. Maður hennar Þórarinn Brynjar Þórðarson, látinn.
3. Stúlka, f. 12. júlí 1931 á Hvoli, d. 7. september 1931.
4. Ása Valtýsdóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981. Maður hennar Georg Sigurðsson, látinn.
5. Vilborg Valtýsdóttir, f. 17. mars 1936 á Hvoli, d. 3. júlí 1938.
6. Sveinn Ármann Valtýsson matsveinn, býr í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1937 á Hvoli. Kona Kristín Rósa Jónasdóttir.
7. Guðbrandur Valtýsson sjómaður, býr í Njarðvík, f. 5. ágúst 1939 á Hvoli. Kona hans Hrefna Jónsdóttir.
8. Ástvaldur Valtýsson sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941 á Hvoli, d. 27. maí 2003. Kona hans Halldóra Sigurðardóttir.
9. Auðberg Óli Valtýsson bæjarstarfsmaður, f. 15. desember 1944 á Kirkjufelli, d. 5. júní 1994. Kona hans Margrét Óskarsdóttir, látin.
10. Kristín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1946 á Kirkjufelli. Maður hennar Gunnar Árnason, látinn.
11. Jón Valtýsson sjómaður í Eyjum, f. 17. apríl 1948 á Kirkjufelli. Kona hans Þórhildur Guðmundsdóttir.
12. Sigríður Valtýsdóttir, f. 18. maí 1949 á Kirkjufelli, d. 19. október 1953.
13. Óskar Valtýsson verkamaður, býr í Eyjum, f. 7. mars 1951 á Kirkjufelli. Kona hans Jóhanna M. Þórðardóttir.
Barn Helgu Valtýsdóttur og fósturbarn Ástu og Valtýs:
14. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.

Ása var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann verkakvennastörf fyrir hjónaband.
Þau Georg giftu sig 1954, eignuðust fjögur börn, bjuggu í fyrstu á Brekastíg 19, en síðan á Strembugötu 12.
Ása lést 1981.

I. Maður Ásu, (31. október 1954), er Georg Sigurðsson verkamaður, f. 23. janúar 1930.
Börn þeirra:
1. Sigurður Georgsson sjómaður, f. 30. apríl 1954. Kona hans Elínborg Óskarsdóttir.
2. Valtýr Georgsson verkstjóri í Áhaldahúsinu, f. 19. apríl 1956. Kona hans Sigríður Guðbrandsdóttir.
3. Guðni Georgsson pípulagningamaður, f. 14. október 1957. Kona hans Vigdís Rafnsdóttir.
4. Jóhann Brandur Georgsson netamaður, f. 30. október 1959. Kona hans Ragna Birgisdóttir.



Heimildir

  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.