Ásta Sigrún Guðjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ásta Sigrún Guðjónsdóttir.

Ásta Sigrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Hvoli við Heimagötu og á Kirkjufelli fæddist 5. september 1905 í Varmadal á Rangárvöllum og lést 10. maí 1999 að Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Guðjón Jónsson sjómaður, fisksali í Reykjavík, f. 10. apríl 1884, d. 30. mars 1957, og barnsmóðir hans Anna Kristín Jóhannsdóttir, síðar húsfreyja á Geldingaá í Leirársveit, Borg., f. 10. ágúst 1886, d. 14. mars 1966.
Fósturforeldrar Ástu voru Jón Jónsson bóndi á Miðhúsum í Hvolhreppi 1910, f. 24. júlí 1852 að Krókatúni þar, d. 4. nóvember 1917, og kona hans Helga Runólfsdóttir húsfreyja á Miðhúsum 1910, bústýra, ekkja í Krókatúni 1920, f. 9. desember 1853, d. 26. apríl 1929.

Ásta var með fósturforeldrum sínum á Miðhúsum 1910. Fósturfaðir hennar lést 1917 og hún var með ekkjunni fóstru sinni, sem var bústýra í Krókatúni 1920.
Hún eignaðist Helgu 1928.
Þau Valtýr giftu sig 1929, fluttust til Eyja 1929.
Þau bjuggu í Sjólyst, Strandvegi 41 við fæðingu Jóhönnu 1930, en á Hvoli við manntal 1930 og við fæðingu Ásu 1933 og síðan uns þau fluttu að Kirkjufelli 1944, en það var hermannabraggi, fluttur úr Stórhöfða. Hann var reistur við enda Löngulágar. Þau byggðu síðar hús við Strembugötu 10 með því Kirkjufells-nafni.
Valtýr lést 1976.
Ásta fluttist að Eyjahrauni 1 1980, en að síðustu dvaldi hún í Hraunbúðum. Hún lést 1999.

I. Barnsfaðir Ástu var Eyjólfur Júlíus Finnbogason, þá á Hvolsvelli, síðar bifreiðastjóri, trésmiður í Reykjavík, f. 8. júlí 1902, d. 4. nóvember 1979.
Barn þeirra:
1. Helga Valtýsdóttir, (skráð við skírn Helga Runólfsdóttir Eyjólfsdóttir), húsfreyja, starfsmaður Pósts og síma, býr í Garðabæ, kjördóttir Valtýs, f. 21. júlí 1928 í Krókatúni í Hvolhreppi. Maður hennar er Björn Björnsson.

II. Maður Ástu Sigrúnar, (2. nóvember 1929), var Valtýr Brandsson verkamaður, sjómaður, verkstjóri, f. 3. júní 1901 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1976.
Börn þeirra:
2. Jóhanna Valtýsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 17. júní 1930 í Sjólyst. Maður hennar Þórarinn Brynjar Þórðarson, látinn.
3. Stúlka, f. 12. júlí 1931 á Hvoli, d. 7. september 1931.
4. Ása Valtýsdóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981. Maður hennar Georg Sigurðsson, látinn.
5. Vilborg Valtýsdóttir, f. 17. mars 1936 á Hvoli, d. 3. júlí 1938.
6. Sveinn Ármann Valtýsson matsveinn, býr í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1937 á Hvoli. Kona Kristín Rósa Jónasdóttir.
7. Guðbrandur Valtýsson sjómaður, býr í Njarðvík, f. 5. ágúst 1939 á Hvoli. Kona hans Hrefna Jónsdóttir.
8. Ástvaldur Valtýsson sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941 á Hvoli, d. 27. maí 2003. Kona hans Halldóra Sigurðardóttir.
9. Auðberg Óli Valtýsson bæjarstarfsmaður, f. 15. desember 1944 á Kirkjufelli, d. 5. júní 1994. Kona hans Margrét Óskarsdóttir, látin.
10. Kristín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1946 á Kirkjufelli. Maður hennar Gunnar Árnason, látinn.
11. Jón Valtýsson sjómaður í Eyjum, f. 17. apríl 1948 á Kirkjufelli. Kona hans Þórhildur Guðmundsdóttir.
12. Sigríður Valtýsdóttir, f. 18. maí 1949 á Kirkjufelli, d. 19. október 1953.
13. Óskar Valtýsson verkamaður, býr í Eyjum, f. 7. mars 1951 á Kirkjufelli. Kona hans Jóhanna M. Þórðardóttir.
Barn Helgu Valtýsdóttur og Jónasar Guðmundssonar sjómanns frá Flatey á Skjálfanda, f. 1. ágúst 1921, og fósturbarn Ástu og Valtýs:
14. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.