Sveinn Valtýsson (Hvoli)
Sveinn Ármann Valtýsson, frá Hvoli við Heimagötu, matsveinn á skipum Eimskips og á veitingahúsum í Hafnarfirði fæddist þar 4. apríl 1937.
Foreldrar hans voru Valtýr Brandsson verkamaður, sjómaður, verkstjóri, f. 3. júní 1901 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1976, og kona hans Ásta Sigrún Guðjónsdóttir frá Miðhúsum í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 5. september 1905 í Varmadal á Rangárvöllum, d. 10. maí 1999.
Börn Ástu Sigrúnar og Valtýs:
1. Jóhanna Valtýsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 17. júní 1930 í Sjólyst. Maður hennar Þórarinn Brynjar Þórðarson, látinn.
2. Stúlka, f. 12. júlí 1931 á Hvoli, d. 7. september 1931.
3. Ása Valtýsdóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981. Maður hennar Georg Sigurðsson, látinn.
4. Vilborg Valtýsdóttir, f. 17. mars 1936 á Hvoli, d. 3. júlí 1938.
5. Sveinn Ármann Valtýsson matsveinn, býr í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1937 á Hvoli. Fyrrum kona hans Guðrún Kjartansdóttir. Kona hans Kristín Sigurrós Jónasdóttir.
6. Guðbrandur Valtýsson sjómaður, býr í Njarðvík, f. 5. ágúst 1939 á Hvoli. Kona hans Hrefna Jónsdóttir, látin.
7. Ástvaldur Valtýsson sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941 á Hvoli, d. 27. maí 2003. Kona hans Halldóra Sigurðardóttir.
8. Auðberg Óli Valtýsson bæjarstarfsmaður, f. 15. desember 1944 á Kirkjufelli, d. 5. júní 1994. Kona hans Margrét Óskarsdóttir, látin.
9. Kristín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1946 á Kirkjufelli. Maður hennar Gunnar Árnason, látinn.
10. Jón Valtýsson sjómaður í Eyjum, f. 17. apríl 1948 á Kirkjufelli. Kona hans Þórhildur Guðmundsdóttir.
11. Sigríður Valtýsdóttir, f. 18. maí 1949 á Kirkjufelli, d. 19. október 1953.
12. Óskar Valtýsson verkamaður, býr í Eyjum, f. 7. mars 1951 á Kirkjufelli. Kona hans Jóhanna M. Þórðardóttir.
Barn Ástu Sigrúnar og kjörbarn Valtýs:
13. Helga Valtýsdóttir húsfreyja, starfsmaður Pósts og síma, bjó í Garðabæ, f. 21. júlí 1928 í Krókatúni í Hvolhreppi, d. 19. apríl 2020. Maður hennar er Björn Björnsson.
Barn Helgu Valtýsdóttur og fósturbarn Ástu og Valtýs:
14. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu.
Þau Kristín Rósa giftu sig, eignuðust ekki börn saman.
I. Kona Sveins var Guðrún Kjartansdóttir, kaupmaður, f. 6. desember 1941, d. 8. september 1993.
II. Kona Sveins var Kristín Sigurrós Jónasdóttir, húsfreyja, snyrtifræðingur, f. 3. maí 1930, d. 22. október 2024. Foreldrar hennar Jónas Sveinsson, f. 30. júní 1903, d. 8. október 1967, og Guðrún Jónsdóttir, f. 30. mars 1903, d. 12. nóvember 1985.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.