Halldóra Sigurðardóttir (Hrauntúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Sigurðardóttir frá Keflavík, húsfreyja fæddist 21. júlí 1945 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sumarliðason frá Sykkishólmi, verkamaður í Keflavík, f. 28. júlí 1913, d. 11. desember 1996, og kona hans María Magnúsdóttir frá Emmubergi á Skógarströnd á Snæfellsnesi, húsfreyja, f. 20. maí 1909, d. 29. desember 1993.

Halldóra var með foreldrum sínum í Keflavík í æsku.
Hún vann við fiskvinnslu og við afgreiðslu í Apótekinu þar.
Þau Ástvaldur kynntust í Keflavík, giftu sig 1964. Þau bjuggu í fyrstu við Hátún og síðan Lyngholt í Keflavík.
Þau fluttu til Eyja 1972, bjuggu um stund á Kirkjufelli, síðan skamma stund í Vöruhúsinu við Skólaveg 1. Þau keyptu húsið við Hrauntún 37 og bjuggu þar meðan báðum entist líf.
Ástvaldur lést 2003.

I. Maður Halldóru, (6. júní 1964), var Ástvaldur Valtýsson vélstjóri, útgerðarmaður, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941, d. 27. maí 2003.
Börn þeirra:
1. Stefanía Ástvaldsdóttir húsfreyja, vinnur á leikskóla, f. 28. febrúar 1964. Barnsfaðir hennar Gylfi Þór Gunnlaugsson. Maður hennar Guðbjörn Ármannsson.
2. Ásta María Ástvaldsdóttir húsfreyja, rekur og starfar við Grím kokk með Grími manni sínum, f. 28. október 1966. Maður hennar Grímur Þór Gíslason.
3. Una Sigrún Ástvaldsdóttir húsfreyja, vinnur í Konukoti í Reykjavík, f. 6. mars 1972. Fyrrum maður hennar Magnús Freyr Valsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.