„Skrofa“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Leiðrétt)
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:

Skrofan velur sér maka til frambúðar, parið er mikið saman yfir varptímann, en skiljast svo að þangað til vorar á ný og þau hittast aftur. Varptími skrofu er í maí og verpir hún einu eggi. Útungunin tekur um 7-8 vikur og þolir eggið langtíma kælingu á öllum fósturstigum. Eggjaskurnið er hvítt. Unginn er yfirgefinn u.þ.b. 10 dögum áður en hann verður fleygur. Hann ferðast um mestallt Atlantshaf í 5-6 ár áður en hann leitar sér að ævifélaga. Skrofan var étin hér áður fyrr en lítið er um að menn leggi sér hana til munns í dag. Um 6000 fuglar verpa í Ystakletti í Vestmannaeyjum.

[[Flokkur:Fuglar]]

Útgáfa síðunnar 13. júní 2006 kl. 15:53

Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Puffinus puffinus

Skrofan er af pípunefjaætt. Hún er svargrá að ofan en hvít að neðan og ber á gráum rákum á dökka litnum og gráum kámum á þeim hvíta. Goggurinn er tvílitur með svarta nögl. Efri skoltur er mósvartur með tvískiptar nasapípur, en sá neðri er bláleitur. Skrofan er 30-38 cm löng og vegur um 300-500 grömm. Vænghaf fuglsins er 75-90 cm. Skrofan lifir á uppsjávarfiskum. Skrofan kemur á land um nætur og heldur þá til í björgum og eyjum. Annars er skrofan mikill sjófugl.