Jón Ögmundsson (Litlalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. janúar 2022 kl. 17:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. janúar 2022 kl. 17:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Ögmundsson''' frá Litlalandi, vélvirkjameistari fæddist þar 18. september 1945.<br> Foreldrar hans voru Ögmundur Ólafsson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 6. júní 1894 í Litlabæ á Álftanesi, d. 29. september 1995 og síðari kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 17. maí 1899, d. 16. mars 1992. Börn Guðrúnar og Ögmundar:<br> 1. Jón Svei...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ögmundsson frá Litlalandi, vélvirkjameistari fæddist þar 18. september 1945.
Foreldrar hans voru Ögmundur Ólafsson útgerðarmaður, vélstjóri, f. 6. júní 1894 í Litlabæ á Álftanesi, d. 29. september 1995 og síðari kona hans Guðrún Jónsdóttir frá Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 17. maí 1899, d. 16. mars 1992.

Börn Guðrúnar og Ögmundar:
1. Jón Sveinbjörn Ögmundsson, f. 3. ágúst 1924 í Garðsfjósi, d. 19. júlí 1945.
2. Margrét Ögmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. ágúst 1925 í Kornhól, d. 8. apríl 2009.
3. Ólafur Friðrik Ögmundsson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal, síðar á Selfossi, f. 7. nóvember 1926 í Kornhól, d. 20. apríl 2010.
4. Sigurður Ögmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1928 í Kornhól, d. 25. apríl 1987.
5. Ágúst Ögmundsson vélstjóri, síðar starsfmaður símans í Danmörku, f. 7. apríl 1932 á Auðsstöðum, (Brekastíg 15b), d. 19. júní 2003.
6. Guðbjörg ‚‘‘‘‘‘Stella Ögmundsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 11. október 1933.
7. Sigurbjörn Ögmundsson skipstjóri í Hrísey, f. 29. maí 1935 á Múla við Bárugötu 14 B, d. 18. apríl 2015.
8. Málfríður Ögmundsdóttir fulltrúi í Kópavogi, f. 25. nóvember 1939 á Litlalandi.
9. Þóra Björg Ögmundsdóttir verslunarmaður á Selfossi, f. 16. júní 1944 á Kirkjuvegi 59, Litlalandi.
10. Jón Ögmundsson vélvirki við Sigölduvirkjun, f. 18. september 1945 á Litlalandi.
Börn Ögmundar og Rannveigar Óladóttur fyrri konu hans:
1. Andvana stúlka, f. 5. september 1916 á Mosfelli.
2. Gísli Magnús Ögmundsson vélstjóri, síðar í Ólafsvík, f. 13. ágúst 1917, d. í desember 1944. Fósturforeldrar hans voru Nikulás Illugason og Kristín Pálsdóttir í Sædal við Vesturveg 6.

Jón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Þór, fékk meistararétttindi.
Jón vann við iðnina í Eyjum til Goss 1973.
Þau Sigrún giftu sig 18. nóvember 1965, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Illugagötu 16 1972.
Fjölskyldan flutti á Rauðalæk í Holtum til Þóru Bjargar systur Jóns og þau Sigrún bjuggu þar til 1990, en fluttu þá í Bogatún 36.
Jón vann hjá bílaverkstæði Kaupfélags Rangæinga í 4-5 ár, en réðst þá til starfa hjá Búrfellsvirkjun og síðar Sigölduvirkjun og vann þar til starfsloka sinna. Hann dvelur nú á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu.
Sigrún býr í Bogatúni.

I. Kona Jóns, (18. nóvember 1965), er Sigrún Kristín Sveinbjarnardóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1945.
Börn þeirra:
1. Sveinbjörn Jónsson húsgagnabólstarari á Hellu, f. 11. júlí 1966. Kona hans Heiðrún Ólafsdóttir.
2. Ásdís Guðrún Jónsdóttir skrifstofumaður á Hellu., f. 7. febrúar 1971. Maður hennar Sigurður Jónasson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.