Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
Fuglar
| Sjófuglar
|
|
|
| Vaðfuglar
|
|
|
| Mávar, kjóar, þernur
|
|
|
| Andfuglar
|
|
|
| Spörfuglar
|
|
|
| Annað
|
|
|
| Útdauðir fuglar
|
|
|
Skúmur (Stercorarius skua)
- Fluglag: Er kröftugur flugfugl og ótrúlega fimur þrátt fyrir þyngslalegan vöxtinn. Hann minnir um margt á ránfugl og ræðst á aðra fugla, jafnvel þótt þeir séu stærri en hann sjálfur.
- Fæða: Étur nánast hvað sem er, meðal annars hræ og ýmsan úrgang, en fiskur er uppistaðan í fæðu hans.
- Varpstöðvar: Skúmurinn er úthafsfugl utan varptíma, en verpir einkum á grónum söndum nálægt sjó.
- Hreiður: Verpir í grunna laut, oftast í dreifðum byggðum, en utan varptímans er hann yfirleitt einn síns liðs.
- Egg: Oftast tvö, frá ljósgráu og grænleitu yfir í rauðbrúnt, með dökkum flikrum.
- Heimkynni: Meirihluti Norður-Atlantshafsstofnsins verpir á Íslandi og Hjaltlandi, en annars eru aðalheimkynni tegundarinnar í Suður-Íshafi.