Guðrún Erlendsdóttir (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. september 2014 kl. 22:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. september 2014 kl. 22:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Erlendsdóttir vinnukona í Hólshúsi fæddist 1850 og lést í Vesturálfu.
Faðir hennar var Erlendur Ingjaldsson, f. 1828, d. 12. janúar 1887. Hann var niðursetningur í Berjaneskoti í Steinasókn 1835, sjávarbóndi á Kirkjubæ 1855, vinnumaður á Löndum 1870, vinnumaður í Ystaskála undir Eyjafjöllum 1880. Erlendur var í Herfylkingunni. Hann drukknaði í sjóslysi við Bjarnarey 1887.
Móðir Erlendar og barnsmóðir Ingjalds var Halldóra vinnukona, f. 1793 í Berjanesi, Guðmundsdóttir bónda í Berjanesi, f. 1767 í Mörtungu á Síðu, Árnasonar og konu Guðmundar, Kristínar húsfreyju, f. 1763, Árnadóttur.

Móðir Guðrúnar Erlendsdóttur og barnsmóðir Erlendar var Margrét, síðar húsfreyja í Túni, gift Jóni Sverrissyni, - fædd 1825, Jónsdóttir „eldri“ bónda í Rimakoti í A-Landeyjum og á Gjábakka frá 1828. Hann er þar 1835 og 1855, skírður 11. apríl 1789, d. 21. mars 1828, Einarssonar bónda í Litlagerði í Hvolhreppi, f. 1765, d. 3. janúar 1851, Ormssonar, og konu Einars Ormssonar, Ásdísar húsfreyju, skírð 21. janúar 1753, d. 13. febrúar 1828, Þorgilsdóttur.
Móðir Margrétar og kona Jóns á Gjábakka var Margrét húsfreyja í Rimakoti og á Gjábakka, fædd á Önundarstöðum í A-Landeyjum, skírð 25. september 1795, d. 23. febrúar 1836, Vigfúsdóttir bónda þar 1801, f. 1763 á Önundarstöðum, d. 1. október 1801, Magnússonar og konu Vigfúsar, Kristínar húsfreyju, f. 10. febrúar 1763 í Skarðshlíð, d. 18. júlí 1842 á Syðstu-Grund undir Eyjafjöllum, Hjörleifsdóttur.

Guðrún var vinnukona á Gjábakka 1870 með son sinn Vigfús Guðmundsson, f. 1868, vinnukona á Oddstöðum 1880, vinnukona þar við fæðingu Einars sonar síns. Hún gerðist mormóni og fór til Utah frá Hólshúsi 1883.

I. Barnsfaðir Guðrúnar var Guðmundur Erlendsson, síðar lóðs í London, f. 27. júní 1839, d. 20. júní 1875.
Sonur þeirra var
1. Vigfús Guðmundsson, f. 14. júlí 1868, d. 17. mars 1927. Hann var með móður sinni á Gjábakka 1870, niðursetningur í Juliushaab hjá Gísla Engilbertssyni og Ragnhildi Þórarinsdóttur 1880. Hann fór til Utah frá Júlíushaab 1886.

II. Barnsfaðir Guðrúnar var Páll Ingimundarson vinnumaður frá Gjábakka, f. um 1854, á lífi 1901. Foreldrar hans voru Ingimundur Jónsson á Gjábakka og barnsmóðir hans Hólmfríður Guðmundsdóttir í Fagurlyst, f. 1828, d. 6. júlí 1866.
Sonur Guðrúnar Erlendsdóttur og Páls á Gjábakka var:
2. Einar Pálsson vélstjóri í Langholti, Vestmannabraut 48a, f. 5. maí 1875, d. 4. desember 1918, kvæntur (1908) Jónínu Guðmundsdóttur, f. 19. maí 1877, d. 31. desember 1925 .

III. Barnsfaðir Guðrúnar var Eiríkur Eiríksson bóndi á Vesturhúsum, skírður 3. mars 1827.
Sonur þeirra var:
3. Jón Eiríksson, sem fór til Vesturheims.

IV. Barnsfaðir Guðrúnar var Eyjólfur Eiríksson mormóni frá Vesturhúsum, f. 26. febrúar 1854.
Börn hér:
4. Karl Jón Eyjólfsson, f. 24. nóvember 1879, fluttist vestur með föður sínum 1882.
5. Valgerður Eyjólfsdóttir, f. 5. september 1881, fluttist vestur með föður sínum 1882. Hún dó á leiðinni.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Utah Icelandic Settlement. Fréttir 1, 30. nóvember 2011. David A. Ashby.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.