Hrafn
Sjófuglar |
---|
Vaðfuglar |
Mávar, kjóar, þernur |
Andfuglar |
Spörfuglar |
Annað |
Útdauðir fuglar |
Hrafn Corvus corax
Hrafninn er af hröfnungaætt og er lang stærsti spörfugl Íslands auk þess sem hann er mjög algengur um allt landið. Hann er blásvartur, stór, nefmikill og grimmilegur að sjá.Lengd hrafnsins er um 63 cm, þyngdin um 1,2-1,6 kg og vænghafið 44 cm. Hrafninn er hráæta og ræningi og er hann oftast kominn á staðinn ef hræ liggur á víðavangi. Hann stelur mjög oft eggjum, ungum og bara hverju sem er, hann rænir flest öllu sem hann kemur fyrir í munni sínum. Hrafninn lifir mikið í hópum og eiga þeir yfirleitt náttstaði langt uppi í fjallshlíðum. Í Vestmannaeyjum verpir hrafninn víða, einkum í Höfðanum, Kervíkurfjalli og í flestum úteyjunum.
Hjúskapur hrafnsins er einkvæni og hann finnur sér stað til hreiðurs í giljum, gljúfrum, klettum og úfnum hraunum. sem hann gætir ávallt vel og heldur mikilli tryggð við. Hreiðrið er byggt úr sprekum, spýtum, þara, lyngi, ull og fleiru. Hrafninn verpir snemma á vorin, í apríl og er hann oft fyrstur fugla til varps. Eggin eru 4-6, eggjaskurnið er blágrænt eða grænt með dökkbrúnum eða mosagrænum dílum. Ungarnir koma fiðurlausir og hjálpvana í heiminn en yfirgefa hreiðrið u.þ.b 5 vikna gamlir. Ekki eru sérstakar nytjar af hrafninum. Hann nýtur þó mikillar virðingar hér á landi eins og sést í mörgum íslenskum kvæðum og þjóðsögum.