Rita

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2006 kl. 21:11 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2006 kl. 21:11 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Rita (Rissa tridactyla)

  • Lengd: 39-46 cm.
  • Fluglag: Ritan er mikill sjófugl og er ákaflega létt og lipur á flugi. Hún hringsólar oft kringum fiskibáta og steypir sér eftir æti eins og kría.
  • Fæða: Einkum síli og smádýr sem hún grípur af yfirborði sjávar.
  • Varpstöðvar: Ritan heldur sig meira í fuglabjörgum en aðrir máfar og situr oft þétt efst í björgunum.
  • Hreiður: Notar sinu og gróðurleifar til hreiðurgerðar, sem hún festir við klettasyllurnar.
  • Egg: Oftast tvö, ljósgrá eða ljósbrún með dökkum flíkrum.
  • Heimkynni: Ritan verpir víða við strendur á norðurslóðum og við strendur Evrópu suður til Frakklands, en kemur yfirleitt ekki að landi nema á varptímanum.