Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
|
|
Vaðfuglar
|
|
Mávar, kjóar, þernur
|
|
Andfuglar
|
|
Spörfuglar
|
|
Annað
|
|
Útdauðir fuglar
|
|
Rita (Rissa tridactyla)
- Fluglag: Ritan er mikill sjófugl og er ákaflega létt og lipur á flugi. Hún hringsólar oft kringum fiskibáta og steypir sér eftir æti eins og kría.
- Fæða: Einkum síli og smádýr sem hún grípur af yfirborði sjávar.
- Varpstöðvar: Ritan heldur sig meira í fuglabjörgum en aðrir máfar og situr oft þétt efst í björgunum.
- Hreiður: Notar sinu og gróðurleifar til hreiðurgerðar, sem hún festir við klettasyllurnar.
- Egg: Oftast tvö, ljósgrá eða ljósbrún með dökkum flíkrum.
- Heimkynni: Ritan verpir víða við strendur á norðurslóðum og við strendur Evrópu suður til Frakklands, en kemur yfirleitt ekki að landi nema á varptímanum.