Skrofur
Sjófuglar |
---|
Vaðfuglar |
Mávar, kjóar, þernur |
Andfuglar |
Spörfuglar |
Annað |
Útdauðir fuglar |
Skrofa (Puffinus puffinus)
Lýsing
Skrofan er af pípunefjaætt. Hún er svartgrá að ofan en hvít að neðan og ber á gráum rákum á dökka litnum og gráum kámum á þeim hvíta. Goggurinn er tvílitur með svarta nögl. Efri skoltur er mósvartur með tvískiptar nasapípur, en sá neðri er bláleitur. Skrofan er 30-38 cm.löng og vegur um 300-500 grömm. Vænghaf fuglsins er 75-90 cm.
Fæða
Skrofan lifir á uppsjávarfiskum. Skrofan kemur á land um nætur og heldur þá til í björgum og eyjum. Annars er Skrofan mikill sjófugl.
Lífsferill
Skrofan velur sér maka til frambúðar, pörin eru mikið saman yfir varptímann, en fara svo hvort frá öðru þangað til vorar á ný og þau hittast aftur. Varptími Skrofu er í maí og verpir hún einu eggi. Útungunin tekur um 7-8 vikur og þolir eggið langtíma kælingu á öllum fósturstigum. Eggjaskurnið er hvítt. Unginn er yfirgefinn u.þ.b. 10 dögum áður en hann verður fleygur. Hann ferðast um mestallt Atlantshaf í 5-6 ár áður en hann leitar sér að ævifélaga.
Nytjar
Skrofan var étin hér áður fyrr en nú til dags er hún alfriðuð og nær sú friðun einnig til eggja og unga. Um 6000 fuglar verpa í Ystakletti í Vestmannaeyjum.