„Marta Hjartardóttir (Hellishólum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Marta Hjartardóttir (Hellisholti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 38: Lína 38:
[[Flokkur: Íbúar á Lágafelli]]
[[Flokkur: Íbúar á Lágafelli]]
[[Flokkur: Íbúar á Hofi]]
[[Flokkur: Íbúar á Hofi]]
[[Flokkur: Íbúar i Hellisholti]]
[[Flokkur: Íbúar í Hellisholti]]
[[Flokkur: Íbúar við Sólhlíð]]
[[Flokkur: Íbúar við Sólhlíð]]
[[Flokkur: Íbúar á Hellishólum]]
[[Flokkur: Íbúar á Hellishólum]]

Útgáfa síðunnar 27. nóvember 2017 kl. 15:08

Marta Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja fæddist þar 30. júní 1926.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978, og kona hans Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir húsfreyja, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.

Börn Hjartar og Solveigar voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum.
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.

Föðursystkini Mörtu í Eyjum voru:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.

Marta var með foreldrum sínum í æsku. Þau Daníel giftu sig 1946, eignuðust fyrsta barn sitt á Lágafelli 1947, bjuggu í Hellisholti um skeið, leigðu á Hofi skamma stund, síðan í Sólhlíð 24.
Þau byggðu Bröttugötu 10, sem þau nefndu Hellishóla, bjuggu þar uns þau fluttust í nýbyggt hús sitt að Höfðavegi 25 og bjuggu þar frá um 1961 til Goss.
Hjónin fluttust til Þorlákshafnar í Gosinu og bjuggu þar til 1981, er þau fluttust í Furugerði í Reykjavík og bjuggu þar síðan.
Daníel lést 1996.
Marta fluttist til Keflavíkur og hefur búið þar í 15 ár, er í dagvistun í Seli þar.

Maður Mörtu, (31. desember 1946), var Daníel Guðni Guðmundsson verkamaður, bifreiðastjóri, innheimtumaður, f. 14. nóvember 1925, d. 19. júlí 1996.
Börn þeirra:
1. Hafdís Daníelsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður í Eyjum, rak verslunina Heimaver, býr nú í Hafnarfirði, f. 15. apríl 1947 á Lágafelli við Vestmannabraut 10. Maður hennar var Ingvi Björgvin Ögmundsson kaupmaður í Heimaveri, f. 27. apríl 1943, d. 20. júlí 2016.
2. Guðbjartur Daníelsson í Njarðvík, húsasmiður, f. 18. nóvember 1950 á Hellishólum við Bröttugötu 10. Kona hans er Guðmunda Lára Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júní 1950.
3. Guðmundur Bjarni Daníelsson verkamaður, iðnaðarmaður, f. 12. febrúar 1955 á Hellishólum. Kona hans er Jóhanna Kristinsdóttir húsfreyja.
4. Daníel Guðni Daníelsson bifreiðastjóri, skiltagerðarmaður í Reykjanesbæ, f. 6. apríl 1957 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Petrína Guðmundsdóttir húsfreyja.
5. Hjörtur Kristján Daníelsson bifreiðastjóri, rekur fyrirtækið Plexigler í Reykjanesbæ, f. 17. maí 1964 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Kristín Guidice húsfreyja og verslunarrekandi, f. 1. október 1963.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.