Hjörtur Hjartarson (Hellisholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi í Hellisholti fæddist 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum og lést 8. október 1978.
Foreldrar hans voru Hjörtur Snjólfsson húsmaður á Álftarhóli, f. 2. október 1866, drukknaði 26. apríl 1893, og kona hans Gyðríður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1866, d. 16. júní 1941.

Börn Hjartar Snjólfssonar og Gyðríðar í Eyjum:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.
3. Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður í Hellisholti, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978.

Hjörtur fæddist í Miðey nokkrum mánuðum eftir drukknun föður síns 1893.
Hann kom frá Miðey að Fitjarmýri u. V-Eyjafjöllum 1897, var með vinnukonunni móður sinni í Hamragörðum þar 1901, var ókvæntur vinnumaður á Fitjarmýri 1910.
Samkvæmt sögu afkomenda átti Hjörtur sér unnustu, er hann bjó undir Eyjafjöllum. Hún var barnshafandi, er hún lést. Nafn hennar er ókunnugt.
Hann fluttist frá Stóru-Mörk að Vinaminni 1913, bjó með móður sinni í Hraungerði 1914-1915, á Nýlendu 1916-1918, í Landlyst hjá Reimari bróður Hjartar 1919, í Mörk 1920, skráður ekkill.
Hjörtur kvæntist Sólveigu Kristjönu 1922. Þau bjuggu í Mörk við Hásteinsveg 13 á því ári, og 1923 með Kristni syni sínum, 1924 með Kristni og óskírðri stúlku, 1925 með Kristni og Viktoríu Klöru. Þar var einnig Vigdís systir hans með börnunum Báru og Kristínu og Pétri unnusta sínum. Þau voru þar enn 1927 með þrjú börn sín. Marta hafði bæst í hópinn.
Fjölskyldan bjó í Hellisholti 1930 með sex börn og Gyðríði móður Hjartar. Þar bjuggu hjónin síðan uns þau fluttust úr Eyjum í Gosinu 1973, settust að í Kópavogi. Þar bjuggu þau síðast í húsi sonar síns.
Hjörtur lést 1978 og Sólveig Kristjana 1993.

Hjörtur átti tvær konur.
I. Unnusta, sem lést barnshafandi.

II. Kona Hjartar, (11. febrúar 1922), var Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.
Börn Hjartar og Solveigar voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk, d. 17. janúar 2021.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum .
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.