Marta Hjartardóttir (Hellishólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Marta Hjartardóttir.

Marta Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja fæddist þar 30. júní 1926 og lést 17. janúar 2021 í Reykjanesbæ.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978, og kona hans Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir húsfreyja, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.

Börn Hjartar og Solveigar voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk, d. 17. janúar 2021.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum.
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.

Föðursystkini Mörtu í Eyjum voru:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.

Marta var með foreldrum sínum í æsku. Þau Daníel giftu sig 1946, eignuðust fyrsta barn sitt á Lágafelli 1947, bjuggu í Hellisholti um skeið, leigðu á Hofi skamma stund, síðan í Sólhlíð 24.
Þau byggðu Bröttugötu 10, sem þau nefndu Hellishóla, bjuggu þar uns þau fluttust í nýbyggt hús sitt að Höfðavegi 25 og bjuggu þar frá um 1961 til Goss.
Hjónin fluttust til Þorlákshafnar í Gosinu og bjuggu þar Heinabergi 20 til 1981, er þau fluttust í Furugerði 17 í Reykjavík og bjuggu þar síðan.
Daníel lést 1996.
Marta fluttist til Reykjanesbæjar 2003 og bjó þar til dauðadags.
Hún lést 2021.

Maður Mörtu, (31. desember 1946), var Daníel Guðni Guðmundsson verkamaður, bifreiðastjóri, innheimtumaður, f. 14. nóvember 1925, d. 19. júlí 1996.
Börn þeirra:
1. Hafdís Daníelsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður í Eyjum, rak verslunina Heimaver, býr nú í Hafnarfirði, f. 15. apríl 1947 á Lágafelli við Vestmannabraut 10. Maður hennar var Ingvi Björgvin Ögmundsson kaupmaður í Heimaveri, f. 27. apríl 1943, d. 20. júlí 2016.
2. Guðbjartur Daníelsson í Njarðvík, húsasmiður, f. 18. nóvember 1950 á Hellishólum við Bröttugötu 10. Kona hans er Guðmunda Lára Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júní 1950.
3. Guðmundur Bjarni Daníelsson verkamaður, iðnaðarmaður, f. 12. febrúar 1955 á Hellishólum. Kona hans er Jóhanna Kristinsdóttir húsfreyja.
4. Daníel Guðni Daníelsson bifreiðastjóri, skiltagerðarmaður í Reykjanesbæ, f. 6. apríl 1957 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Petrína Sigurðardóttir húsfreyja.
5. Hjörtur Kristján Daníelsson bifreiðastjóri, rekur fyrirtækið Plexigler í Reykjanesbæ, f. 17. maí 1964 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Kristín Guidice húsfreyja og verslunarrekandi, f. 1. október 1963.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.