María Hjartardóttir (Hellisholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

María Hjartardóttir frá Hellisholti fæddist 8. desember 1928 þar og fórst 31. janúar 1951.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Magnús Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978, og kona hans Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.

Börn Hjartar og Solveigar voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk, d. 17. janúar 2021.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum.
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.

Föðursystkini Maríu í Eyjum voru:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.

María var með foreldrum sínum í æsku. Hún kynntist Sigurði Gunnari á síðari hluta fimmta áratugarins í Eyjum.
Þau eignuðust Bjarna í ágúst 1950 í Eyjum. Hann var með móður sinni og var á leið til Reykjavíkur með flugvélinni Glitfaxa, er hún fórst 31. janúar 1951.

I. Unnusti Maríu og barnsfaðir var Sigurður Gunnar Bjarnason rafvirki í Kópavogi, f. 4. október 1925 í Reykjavík, d. 2. maí 2001.
Barn þeirra var
1. Bjarni Gunnarsson, f. 18. ágúst 1950, d. 31. janúar 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.