Kristján Daníelsson (Höfðavegi 25)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtur Kristján Daníelsson, bifreiðastjóri, rekur fyrrirtækið Plexigler í Reykjanesbæ fæddist 17. maí 1964.
Foreldrar hans voru Daníel Guðmundsson bifreiðastjóri, innheimtumaður, f. 14. nóvember 1925 í Hafnarfirði, d. 19. júlí 1996, og kona hans Marta Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja, f. þar 30. júní 1926, d. 17. janúar 2021 í Reykjanesbæ.

Börn Mörtu og Daníels:
1. Hafdís Daníelsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður í Eyjum, rak verslunina Heimaver, býr nú í Hafnarfirði, f. 15. apríl 1947 á Lágafelli við Vestmannabraut 10. Maður hennar var Yngvi Björgvin Ögmundsson kaupmaður í Heimaveri, f. 27. apríl 1943, d. 20. júlí 2016.
2. Guðbjartur Daníelsson í Njarðvík, húsasmiður, f. 18. nóvember 1950 á Hellishólum við Bröttugötu 10. Kona hans er Guðmunda Lára Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júní 1950.
3. Guðmundur Bjarni Daníelsson verkamaður, iðnaðarmaður, f. 12. febrúar 1955 á Hellishólum. Kona hans er Jóhanna Kristinsdóttir húsfreyja.
4. Daníel Guðni Daníelsson bifreiðastjóri, skiltagerðarmaður í Reykjanesbæ, f. 6. apríl 1957 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Petrína Sigurðardóttir húsfreyja.
5. Hjörtur Kristján Daníelsson bifreiðastjóri, rekur fyrirtækið Plexigler í Reykjanesbæ, f. 17. maí 1964 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Kristín Guidice húsfreyja og verslunarrekandi, f. 1. október 1963.

Þau Kristín giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Reykjanesbæ.

I. Kona Kristjáns er Kristín Guidice, húsfreyja, skrifstofumaður, f. 1. október 1963. Foreldrar hennar Rico Arthur Guidice frá Bandaríkjunum, og Kristín Jakobsdóttir, f. 16. apríl 1927, d. 15. janúar 2001.
Börn þeirra:
1. Hafsteinn Hjartarson, f. 19. júlí 1985.
2. Davíð Hjartarson, f. 22. mars 1988.
3. Hjörtur Kristján Hjartarson, f. 30. september 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.