Þórunn Hjálmarsdóttir (Lágafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þórunn Hjálmarsdóttir.

Þórunn Hjálmarsdóttir húskona á Lágafelli, fyrrum húsfreyja og ljósmóðir á Ljótarstöðum í Skaftártungu fæddist 13. ágúst 1853 á Ketilsstöðum í Mýrdal og lést 15. janúar 1938 í Skammadal þar.
Faðir hennar var Hjálmar bóndi á Ketilsstöðum í Mýrdal og í Efri-Rotum undir Eyjafjöllum, f. 17. júlí 1829, d. 31. ágúst 1903, Eiríksson bónda á Ketilsstöðum, f. 1795 á Leirum u. Eyjafjöllum, Jónssonar bónda á Hrútafelli þar, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar, og konu Jóns á Hrútafelli, Sigríðar húsfreyju, f. 1769 á Raufarfelli þar, Bjarnadóttur.

Móðir Hjálmars á Ketilsstöðum og síðari kona Eiríks bónda þar var Elín húsfreyja, f. 23. júlí 1801 á Brekkum í Mýrdal, d. 6. janúar 1883 á Ketilsstöðum, Sveinsdóttir bónda, síðast í Hryggjum í Álftaveri, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt í Mýrdal, Eyjólfssonar, og konu Sveins í Hryggjum, Guðrúnar húsfreyju, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1834 á Skeiðflöt, Þórðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar, og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur, síðar á Felli í Mýrdal.

Móðir Þórunnar og fyrri kona Hjálmars á Ketilsstöðum var Guðrún húsfreyja, f. 1823 á Flögu í Skaftártungu, d. 31. ágúst 1860 á Fögruvöllum, Jónsdóttir bónda á Litlu-Heiði í Mýrdal, f. 1797 á Flögu í Skaftártungu, d. 28. nóvember 1847 í snjóflóði, Þorlákssonar bónda á Flögu 1796-1824, síðan vinnumanns og smiðs víða, f. 17. febrúar 1776 á Herjólfsstöðum í Álftaveri, d. 23. september 1839 á Ljótarstöðum í Skaftártungu, Jónssonar, og konu Þorláks, Elínar húsfreyju, f. 1771 á Ytri-Ásum í Skaftártungu, d. 21. september 1844 á Litlu-Heiði í Mýrdal, Loftsdóttur.

Móðir Guðrúnar húsfreyju á Ketilsstöðum og fyrri kona Jóns Þorlákssonar var Þorgerður húsfreyja, f. 1798 á Ytri-Ásum, d. 28. febrúar 1827 á Svartanúpi í Skaftártungu, Bjarnadóttir bónda, síðast á Borgarfelli í Skaftártungu, f. 1755 á Ytra-Hrauni í Landbroti, d. 27. júlí 1821 á Borgarfelli, Gunnsteinssonar, og konu Bjarna á Borgarfelli, Guðrúnar húsfreyju, f. 1754 á Hunkubökkum á Síðu, d. 25. febrúar 1827 á Borgarfelli, Steinsdóttur.

I. Börn Hjálmars Eiríkssonar og Guðrúnar Jónsdóttur fyrri konu hans í Eyjum:
1. Eiríkur Hjálmarsson kennari á Vegamótum.
2. Þórunn Hjálmarsdóttir húskona á Lágafelli, fyrr húsfreyja á Ljótarstöðum, kona Sigurðar Sigurðssonar bónda þar.
3. Þorgerður í Dölum húsfreyja í Dölum, kona Jóns Gunnsteinssonar.
II. Börn Hjálmars Eiríkssonar og Kristínar Sveinsdóttur síðari konu hans:
4. Hjálmrún Hjálmarsdóttir vinnukona, síðar ráðskona í Reykjavík, f. 16. mars 1878, d. 9. mars 1950.
5. Guðrún Hjálmarsdóttir húsfreyja á Akri, kona Guðmundar Þórðarsonar.
6. Helgi Hjálmarsson, – að Hamri. Konur hans voru Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir.
III. Barn Hjálmars Eiríkssonar og Ingibjargar Gísladóttur, síðar húsfreyju í Oddakoti í A-Landeyjum:
6. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja í Oddhól, kona Ólafs Guðmundssonar.
IV. Hálfsystir Hjálmars á Ketilsstöðum og í Efri-Rotum og föðursystir þessarra Hjálmarsbarna var
7. Sigríður Eiríksdóttir langamma Árna Árnasonar símritara og þeirra systkina og amma Kristins Sigurðssonar á Eystri-Löndum.

Þórunn var með foreldrum sínum á Ketilsstöðum til 1860. Þau fluttust þá til Eyja og þar lést móðir hennar á því ári.
Þórunn varð fósturbarn á Ketilsstöðum hjá bændunum Eiríki Jónssyni og Elínu Sveinsdóttur og síðan vinnukona þar 1860-1873.
Hún var vinnukona á Ljótarstöðum 1873-1875.
Þórunn tók ljósmæðrapróf í Reykjavík 30. nóvember 1879.
Hún giftist Sigurði 1875 og bjó með honum á Ljótarstöðum, var húsfreyja þar 1877-1907 og jafnframt ljósmóðir í Skaftártunguumdæmi 1879-1909. Hún ól fimmtán börn, en missti fjögur þeirra í bernsku. Hún missti Sigurð mann sinn 1905 og bjó ekkja á Ljótarstöðum frá 1905-1907.
Þórunn var vinnukona í Hlíð í Skaftártungu 1907-1909, en fluttist þá til Eyja og var vinnukona í Dölum í lok ársins.
Hún var ekkja, húskona á Lágafelli 1910 og 1911 með börnin Þorgerði, Ársæl og Kristján hjá sér, á Akri 1912 með þeim og Katrínu, en án Ársæls 1913. 1916 var með henni Sigurþór Eiríksson sonarsonur hennar 8 ára. Hún var vinnukona í Dölum 1917 með Sigurþór með sér. Hann fór svo í fóstur að Dölum.
Þórunn bjó í Byggðarholti 1919 og 1920.
Hún fluttist í Mýrdal 1921 og var þar lausakona í Skammadal til æviloka 1938.

I. Maður Þórunnar, (30. maí 1875) var Sigurðar Sigurðsson bóndi, f. 19. október 1848 á Ljótarstöðum, d. 5. febrúar 1905 þar. Foreldrar hans voru Sigurður Bótólfsson bóndi á Ljótarstöðum og víðar, f. 1801 á Borgarfelli í Skaftártungu, d. 1. ágúst 1875 á Ljótarstöðum, og kona hans Hugborg Runólfsdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1807 í Svínadal í Skaftártungu, d. 9. október 1883 á Ljótarstöðum.
Börn þeirra:
1. Eiríkur Hjálmar Sigurðsson trésmiður í Reykjavík og Winnipeg, f. 1. júlí 1875 á Ljótarstöðum, d. 29. júní 1953. Barnsmóðir hans var Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir vinnukona, f. 6. október 1870, d. 10. maí 1958. Barn þeirra var Sigurþór Eiríksson, f. 19. ágúst 1908, d. 26. nóvember 1980.
2. Sigurður Sigurðsson, f. 4. september 1876, d. 6. september 1876.
3. Guðrún Sigurðardóttir f. 14. mars 1878, d. 1897.
4. Sigurður Sigurðsson bóndi í Skaftárdal og í Skammadal, f. 25. júní 1879, d. 21. maí 1932. Fyrri kona hans var Hildur Árnadóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1874, d. 10. maí 1915. Síðari kona Sigurðar var Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. maí 1882, d. 3. júní 1960.
5. Hugborg Sigurðardóttir, f. 5. apríl 1881, d. 9. apríl 1883, tvíburi við Elínu.
6. Elín Sigurðardóttir, f. 5. apríl 1881, d. 1907, tvíburi við Hugborgu.
7. Þorgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Skipholti, f. 30. október 1882, d. 3. desember 1960.
8. Kristján Sigurðsson, f. 7. febrúar 1884, d. 11. febrúar 1884.
9. Kristján Sigurðsson verkamaður, skósmiður á Brattlandi og í Reykjavík, f. 24. júlí 1885, d. 25. september 1966.
10. Vilhjálmur Sigurðsson trésmiður, sjúklingur, f. 19. mars 1887, d. 5. október 1971, ókv. og barnlaus.
11. Hugborg Sigurðardóttir, f. 25. maí 1888, d. í bernsku.
12. Sigurborg Sigurðardóttir húsfreyja í Wynyard, Saskatchewan í Kanada, f. 10. desember 1889, d. 4. ágúst 1949 í Winnipeg. Maður hennar var Bæring Sigurgeirsson Hallgrímsson járnbrautarstarfsmaður, f. 26. mars 1890.
13. Magnús Kristján Sigurðsson sjómaður, fiskimatsmaður á Geirlandi í Sandgerði, f. 15. ágúst 1891, drukknaði 12. janúar 1968. Kona hans var Rósa Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1900, d. 13. nóvember 1993.
14. Andvana fætt meybarn 17. 0któber 1894.
15. Katrín Sigurðardóttir vinnukona í Dölum, húsfreyja í Bolungarvík, f. 30. desember 1895, d. 21. ágúst 1975.
16. Ársæll Sigurðsson kennari, f. 31. desember, f. 1901, d. 28. júní 1970.
Fóstursonur Þórunnar um skeið:
17. Sigurþór Eiríksson, f. 19. ágúst 1908, d. 26. nóvember 1980.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.