Aðalheiður Hjartardóttir (Hellisholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. janúar 2022 kl. 15:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. janúar 2022 kl. 15:18 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Aðalheiður Hjartardóttir.

Aðalheiður Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja fæddist 27. apríl 1930 í Hellisholti og lést 12. mars 2012.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Hjartarson sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. ágúst 1893 í Miðey í A-Landeyjum, d. 8. október 1978, og kona hans Sólveig Kristjana Hróbjartsdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja, f. 28. október 1902, d. 15. október 1993.

Börn Hjartar og Sólveigar Kristjönu voru:
1. Hjörtur Kristinn Hjartarson vélstjóri, ökukennari, f. 17. desember 1921, d. 3. apríl 2012.
2. Viktoría Klara Hjartardóttir, húsfreyja, f. 29. júní 1924 í Mörk, d. 7. júní 2013.
3. Marta Hjartardóttir húsfreyja, f. 30. júní 1926 í Mörk, d. 17. janúar 2021.
4. Óskar Hjartarson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 29. ágúst 1927, d. 15. desember 2014.
5. María Hjartardóttir, f. 8. desember 1928 í Hellisholti, fórst með Glitfaxa 31. janúar 1951 ásamt Bjarna Gunnarssyni, fimm mánaða syni sínum .
6. Aðalheiður Hjartardóttir húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Hellisholti, d. 12. mars 2012.
7. Björgvin Hafsteinn Hjartarson byggingaverktaki, f. 10. júlí 1932 í Hellisholti.

Föðursystkini Aðalheiðar í Eyjum voru:
1. Vigdís Hjartardóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1887, d. 28. febrúar 1972.
2. Reimar Hjartarson pípugerðarmaður, f. 10. janúar 1891, d. 7. júní 1955.

Þau Gústav giftu sig 1953, bjuggu í Sóleyjarhlíð við Hásteinsveg 45 fyrstu 7 árin, en fluttust þá í nýbyggt hús sitt að Hólagötu 46 og bjuggu þar síðan.
Gústav lést 2006 og Aðalheiður 2012.

Maður Aðalheiðar, (25. desember 1953), var Gústav Sigurður Sigurjónsson bifreiðastjóri, verkstjóri, f. 15. ágúst 1926, d. 16. apríl 2006.
Barn þeirra:
Bjarney María Gústavsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1953. Maður hennar Kristján Birgisson Sigurðssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.