Kári Birgir Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kári Birgir Sigurðsson.

Kári Birgir Sigurðsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður fæddist 3. desember 1931 á Burstafelli og lést 30. júní 2021.
Foreldrar hans voru voru Kristján Sigurður Sigurjónsson vélstjóri, f. 20. apríl 1908 á Vopnafirði, d. 16. júlí 1979, og kona hans Steinunn Aðalheiður Árnadóttir húsfreyja frá Burstafelli, f. 7. janúar 1913 í Götu, d. 20. október 1987. Fósturfaðir Kára Birgis var Ágúst Bjarnason bæjargjaldkeri, ríkisbókari, f. 18. ágúst 1910, d. 3. janúar 1993.

Börn Sigurðar og Aðalheiðar:
1. Árni Sigurðsson, f. 27. júli 1930 á Burstafelli, d. 16. júlí 1938.
2. Kári Birgir Sigurðsson vélstjóri, f. 3. desember 1931 á Burstafelli.
3. Íris Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. september 1933 á Burstafelli, d. 26. júlí 2011.
Börn Sigurðar og síðari konu hans Aðalheiðar Jónsdóttur:
4. Jón Rúnar Sigurðsson, f. 6. mars 1941 á Hvassafelli, d. 2. ágúst 1998.
5. Sigrún Birgit Sigurðardóttir, f. 23. nóvember 1946 í Bifröst.
6. Eðvald Sigurðsson, f. 19. júlí 1951 í Hlíð.
7. Vignir Sigurðsson, f. 23. mars 1954 á Faxastíg 41.
8. Díana Sigurðardóttir, f. 21. maí 1956 á Faxastíg 41.
Fóstbróðir Kára Birgis, sonur Ágústs Bjarnasonar frá fyrra hjónabandi hans:
9. Hörður Ágústsson verslunarmaður, verkstjóri, f. 22. ágúst 1932, d. 22. febrúar 2008.

Kári Birgir var með móður sinni á Burstafelli við fæðingu 1931, með henni og Sigurði föður sínum þar 1932, með móður sinni 1934 og 1940, með henni og Ágústi á Sólvangi 1945 og 1949.
Hann nam vélstjórn og var sjómaður, átti hlut í útgerð v.b. Ísleifs 1975-1986.
Þá flutttu þau til Hafnarfjarðar og Kári Birgir vann við fyrirtæki, sem hann keypti. Síðar seldi hann fyrirtækið og hóf að keyra skólabíl hjá Hafnarfjarðarbæ og stundaði þá vinnu til starfsloka vegna aldurs.
Þau Jóna Sigríður giftu sig 1952, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Hvítingavegi 8, á Búastaðabraut 8 1972, síðar á Dverghamri 28, bjuggu á Vallarbarði 1 í Hafnarfirði við andlát Jónu 2019.
Kári Birgir lést 2021.

I. Kona Kára Birgis, (25. desember 1952), var Jóna Sigríður Kristjánsdóttir frá Heiðarbóli við Brekastíg 8, húsfreyja, f. 7. október 1931, d. 11. apríl 2019.
Börn þeirra:
1. Ágúst Birgisson rafvirki, lögreglumaður, f. 19. september 1950. Fyrrum kona hans Jóhanna Gísladóttir. Kona hans Sigrún Ólafsdóttir.
2. Kristján Birgisson sjómaður, vélstjóri, f. 20. maí 1952. Kona hans Bjarney María Gústavsdóttir Sigurjónssonar.
3. Aðalheiður Birgisdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 24. febrúar 1959. Maður hennar Angantýr Agnarsson Angantýssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.