Ómar Kristmannsson (Skjaldbreið)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. mars 2024 kl. 09:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. mars 2024 kl. 09:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ómar Kristmannsson.

Ómar Kristmannsson frá Skjaldbreið, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, útgerðarmaður, skrifstofumaður fæddist þar 5. október 1949.
Foreldrar hans voru Kristmann Magnússon frá Heydalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu, smiður, f. 2. október 1899, d. 29. desember 1996, og kona hans Sigríður Rósa Sigurðardóttir frá Skjaldbreið, húsfreyja, verkakona, hannyrðakona, f. 29. júlí 1915, d. 3. júlí 2000.

Börn Sigríðar Rósu og Kristmanns:
1. Hólmfríður Kristmannsdóttir húsfreyja, bóndi í Vopnafirði, f. 1. mars 1940 á Skjaldbreið.
2. Ingibjörg Guðrún Kristmannsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 16. febrúar 1941 á Skjaldbreið, d. 30. nóvember 2022.
3. Kristmann Kristmannsson múrarameistari, f. 29. ágúst 1943 á Skjaldbreið.
4. Ómar Kristmannsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, starfsmaður Vita- og hafnarmálaskrifstofu, f. 5. október 1949 á Skjaldbreið.
5. Magnús Kristmannsson húsasmíðameistari, kennari við fjölbraut, f. 6. september 1953 á Vallargötu 12.
6. Ólafur Kristmannsson húsasmíðameistari, f. 7. ágúst 1955 á Vallargötu 12.
7. Ásta Kristmannsdóttir húsfreyja, kennari, f. 17. október 1958.
8. Birgir Kristmannsson málarameistari, f. 17. október 1958.

Ómar ólst upp hjá foreldrum sínum, á Skjaldbreið og Vallargötu 12, í Vestmannaeyjum.
Hann lauk fiskimannapróf 2. stigs í Stýrimannaskólanum í Eyjum 11. maí 1974.
Ómar var sjómaður frá 19 ára aldri á vélbátum frá Eyjum, stýrimaður og skipstjóri og síðast útgerðarmaður Skúla fógeta Ve 185.
Ómar og Sonja fluttu í Kópavog 1999, og varð Ómar starfsmaður Siglingastofnunar í 15 ár og eftir sameiningu við Vegagerðina, hjá henni í 5 ár. Þau giftu sig 1977, eignuðust fjögur börn, bjuggu við Boðaslóð 23, byggðu sér hús við Smáragötu 20 og bjuggu þar uns þau fluttu í Mosfellsbæ.

I. Kona Ómars, (2. júlí 1977), er Sonja Hilmarsdóttir húsfreyja og skrifstofumaður f. 24. apríl 1954. Foreldrar hennar Gabríel Kristmann Hilmar Jensson, sjómaður, f. 17. apríl 1924, d. 16. febr. 1991 og kona hans Agnes Auðunsdóttir húsfreyja og verkakona, f. 21. janúar 1926, d. 28. mars 2007. Börn Ómars og Sonju: 1. Kristmann Ómarsson, rafeindavirki, f. 27. nóv. 1976, vinnur hjá Íslandsbanka. Kona hans Vigdís Jensdóttir. 2. Hilmar Ómarsson, verkfræðingur, f. 13. júlí 1978, vinnur hjá COWI í Danmörku. Barnsmóðir hans Ann-Margrethe Edvardsen, barnsmóðir hans Elísabet Viðarsdóttir. 3. Sævar Ómarsson, sjúkraþjálfari, f. 9. júní 1983, barnsmóðir Anna Sigríður Sigurjónsdóttir. 4. Bjarki Ómarsson verkfræðingur, f. 5. ágúst 1988, vinnur hjá Faxaflóahöfnum. Kona hans Þórdís Kristjánsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Ómar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.