Ólafur Kristmannsson (Vallargötu 12)
Ólafur Kristmannsson, húsasmíðameistari fæddist 7. ágúst á Vallargötu 12.
Foreldrar hans voru Kristmann Magnússon frá Heydalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu, smiður, f. 2. október 1899, d. 29. desember 1996, og kona hans Sigríður Rósa Sigurðardóttir frá Skjaldbreið, húsfreyja, verkakona, hannyrðakona, f. 29. júlí 1915, d. 3. júlí 2000.
Börn Sigríðar Rósu og Kristmanns:
1. Hólmfríður Kristmannsdóttir húsfreyja, bóndi í Vopnafirði, f. 1. mars 1940 á Skjaldbreið.
2. Ingibjörg Guðrún Kristmannsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 16. febrúar 1941 á Skjaldbreið, d. 30. nóvember 2022.
3. Kristmann Kristmannsson múrarameistari, f. 29. ágúst 1943 á Skjaldbreið.
4. Ómar Kristmannsson sjómaður, starfsmaður Vita- og hafnarmálaskrifstofu, f. 5. október 1949 á Skjaldbreið.
5. Magnús Kristmannsson húsasmíðameistari, kennari við fjölbraut, f. 6. september 1953 á Vallargötu 12.
6. Ólafur Kristmannsson húsasmíðameistari, f. 7. ágúst 1955 á Vallargötu 12.
7. Ásta Kristmannsdóttir húsfreyja, kennari, f. 17. október 1958.
8. Birgir Kristmannsson málarameistari, f. 17. október 1958
Þau Ruth giftu sig, eignuðust tvö börn, og hún átti eitt barn áður. Þau skildu.
Ólafur býr í Rvk.
I. Fyrrum kona Ólafs er Ruth Baldvinsdóttir, húsfreyja, lyfjatæknir, f. 18. nóvember 1962. Foreldrar hennar Baldvin Kristjánsson, f. 24. september 1929, d. 26. janúar 1985, og Sigríður Markúsína Helgadóttir, f. 15. júlí 1933.
Börn þeirra:
1. Kristján Ólafur Ólafsson, f. 15. júlí 1988.
2. Sigríður Ósk Ólafsdóttir, f. 10. nóvember 1989.
Barn Ruthar:
3. Baldvin Mar Smárason, f. 5. nóvember 1983.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ólafur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.