Magnús Kristmannsson (Vallargötu 12)
Magnús Kristmannsson, húsasmíðameistari, framhaldsskólakennari fæddist 6. september 1953.
Foreldrar hans voru Kristmann Magnússon frá Heydalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu, smiður, f. 2. október 1899, d. 29. desember 1996, og kona hans Sigríður Rósa Sigurðardóttir frá Skjaldbreið, húsfreyja, verkakona, hannyrðakona, f. 29. júlí 1915, d. 3. júlí 2000.
Börn Sigríðar Rósu og Kristmanns:
1. Hólmfríður Kristmannsdóttir húsfreyja, bóndi í Vopnafirði, f. 1. mars 1940 á Skjaldbreið.
2. Ingibjörg Guðrún Kristmannsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 16. febrúar 1941 á Skjaldbreið, d. 30. nóvember 2022.
3. Kristmann Kristmannsson múrarameistari, f. 29. ágúst 1943 á Skjaldbreið.
4. Ómar Kristmannsson sjómaður, starfsmaður Vita- og hafnarmálaskrifstofu, f. 5. október 1949 á Skjaldbreið.
5. Magnús Kristmannsson húsasmíðameistari, kennari við fjölbraut, f. 6. september 1953 á Vallargötu 12.
6. Ólafur Kristmannsson húsasmíðameistari, f. 7. ágúst 1955 á Vallargötu 12.
7. Ásta Kristmannsdóttir húsfreyja, kennari, f. 17. október 1958.
8. Birgir Kristmannsson málarameistari, f. 17. október 1958.
Þau Ólöf Sigríður giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Rvk.
I. Kona Magnúsar er Ólöf Sigríður Björnsdóttir, úr Rvk, húsfreyja, kennari, skrifstofumaður, f. 28. janúar 1953. Foreldrar hennar Björn Jóhannesson, f. 14. október 1919, d. 6. maí 2004, og Oddný Ólafsdóttir, f. 26. júní 1921, d. 27. október 2005.
Börn þeirra:
1. Kristmann Magnússon, f. 6. janúar 1977.
2. Brynhildur Magnúsdóttir, f. 27. september 1978.
3. Hjalti Magnússon, f. 2. desember 1986.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Magnús.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.