Birgir Kristmannsson (Vallargötu 12)
Birgir Kristmannsson, málarameistari fæddist 17. október 1958.
Foreldrar hans voru Kristmann Magnússon frá Heydalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu, smiður, f. 2. október 1899, d. 29. desember 1996, og kona hans Sigríður Rósa Sigurðardóttir frá Skjaldbreið, húsfreyja, verkakona, hannyrðakona, f. 29. júlí 1915, d. 3. júlí 2000.
Börn Sigríðar Rósu og Kristmanns:
1. Hólmfríður Kristmannsdóttir húsfreyja, bóndi í Vopnafirði, f. 1. mars 1940 á Skjaldbreið.
2. Ingibjörg Guðrún Kristmannsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 16. febrúar 1941 á Skjaldbreið, d. 30. nóvember 2022.
3. Kristmann Kristmannsson múrarameistari, f. 29. ágúst 1943 á Skjaldbreið.
4. Ómar Kristmannsson sjómaður, starfsmaður Vita- og hafnarmálaskrifstofu, f. 5. október 1949 á Skjaldbreið.
5. Magnús Kristmannsson húsasmíðameistari, kennari við fjölbraut, f. 6. september 1953 á Vallargötu 12.
6. Ólafur Kristmannsson húsasmíðameistari, f. 7. ágúst 1955 á Vallargötu 12.
7. Ásta Kristmannsdóttir húsfreyja, kennari, f. 17. október 1958.
8. Birgir Kristmannsson málarameistari, f. 17. október 1958.
Þau Anna giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.
I. Kona Birgis er Anna Bjarnadóttir, frá Þingborg, Árn., húsfreyja, lyfjatæknir, f. 25. september 1965. Foreldrar hennar Bjarni Þórarinsson, f. 5. október 1929, og Svanhildur Jónsdóttir, f. 18. október 1930, d. 5. febrúar 2013.
Börn þeirra:
1. Bjarni Svanur Birgisson, f. 17. febrúar 1996.
2. Ívar Nökkvi Birgisson, f. 31. október 1999.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Birgir.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.