Haraldur Guðjónsson (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. október 2019 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. október 2019 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Haraldur Guðjónsson frá Skaftafelli, verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, trúboði, umsjónarmaður fæddist 12. desember 1920 á Skaftafelli og lést 23. nóvember 1993.
Foreldrar hans voru Guðjón Hafliðason frá Fjósum í Mýrdal, bátsformaður, útgerðarmaður á Skaftafelli, f. 8. júní 1889, d. 13. júlí 1963, og kona hans Halldóra Kristín Þórólfsdóttir frá Hólmaseli í Flóa, Árn., húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 10. janúar 1985.

Börn Halldóru Kristínar og Guðjóns:
1. Ingólfur Guðjónsson í Lukku, verkamaður, hænsna- og garðyrkjubóndi, f. 15. júlí 1913 á Brekku, d. 23. janúar 1999. Kona hans Jóhanna Hjartardóttir.
2. Trausti Guðjónsson húsasmíðameistari, 13. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 2. desember 2008. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir.
3. Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, trúboði, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007. Maður hennar Jónas S. Jakobsson.
4. Auður Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 7. apríl 1918, d. 30. maí 2001. Maður hennar Höskuldur Árnason.
5. Haraldur Guðjónsson verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993. Fyrri kona hans var Pálína Pálsdóttir. Síðari kona Hertha Haag, sænskrar ættar.
6. Rebekka Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1923, d. 21. jan. 1944. Maður hennar Gunnar Davíðsson.
7. Elísabet Guðjónsdóttir Cortes húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 5. mars 1926, d. 1. september 2015.
8. Óskar Guðjónsson verkamaður, f. 25. desember 1927. Kona hans Anna Jónsdóttir.
9. Anna Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. nóv. 1929, d. 23. ágúst 2011. Maður hennar Garðar Ragnarsson.
10. Ester Guðjónsdóttir húsfreyja, bóndi, f. 4. apríl 1934, d. 2. desember 2012. Maður hennar Benedikt Frímannsson.
11. Hafliði Guðjónsson, f. 21. apríl 1936.

Haraldur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann fór snemma til starfa utan heimilis, varð verslunarmaður um skeið, gerðist síðan verkstjóri við fiskverkun Einars Sigurðssonar. Veturinn 1952 var Haraldur sendur til Keflavíkur að leysa þar af verkstjóra í frystihúsi Einars. Þau Pálína ákváðu fjótlega eftir það að flytja búferlum til Keflavíkur og stóð heimili þeirra þar í 20 ár.
Haraldur var um margra ára skeið stjórnarmaður, og einnig gjaldkeri Betelsafnaðarins í Vestmannaeyjum, tók við safnaðarstjórn í Keflavík árið 1959 og var þar forstöðumaður safnaðarins til 1972. Jafnframt daglegum störfum stundaði Haraldur predikun, biblíufræðslu og barnastarf.
Hann varð umsjónarmaður Gagnfræðaskólans í Keflavík 1963. Einnig rak hann fatahreinsun um skeið.
Þau Pálína giftu sig 1942, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Vestmannabraut 76.
Pálína lést 1972. Yngsta barn þeirra Haraldur fór í fóstur til Dóru Lydiu systur sinnar og manns hennar Árna Arinbjarnarsonar.
Haraldur kvæntist Herthu Haag 1973. Þau voru barnlaus saman, en Hertha átti tvö börn frá fyrra hjónabandi, sem Haraldur gekk í föðurstað Þau fluttust til Svíþjóðar 1975 og störfuðu við skóla hvítasunnukirkjunnar á Kaggeholm nálægt Stokkhólmi, en síðar fluttu þau til Gautaborgar og störfuðu þar.
Þau bjuggu síðast í Svanesund.
Haraldur lést 1993 og Hertha 2006.

Haraldur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (23. maí 1942), var Pálína Kristjana Guðleif Pálsdóttir húsfreyja, f. 4. september 1918, d. 7. janúar 1972.
Börn þeirra:
1. Dóra Lydia Haraldsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 1. maí 1943 í Eyjum. Maður Árni Arinbjarnarson.
2. Pál Haraldsson hnykklæknir í Danmörku, f. 12. desember 1947 í Eyjum. Barnsmóðir hans Asta Solklar Johannesen. Kona Páls Lisbeth Knudsen.
3. Haraldur Haraldsson flugþjónn í Danmörku, f. 17. apríl 1962.

II. Síðari kona Haraldar, (1973), Hertha Haag Guðjónsson sænskrar ættar, ljósmóðir, f. 31. maí 1919, d. 12. október 2006.
Börn Herthu og stjúpbörn Haraldar:
4. Stanley.
5. Moody.

{{Heimildir|


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.