Anna Guðjónsdóttir (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Anna Guðjónsdóttir.

Anna Guðjónsdóttir frá Skaftafelli, hjúkrunarfræðingur fæddist 10. nóv. 1929 og lést 23. ágúst 2011.
Foreldrar hennar voru Guðjón Hafliðason frá Fjósum í Mýrdal, bátsformaður, útgerðarmaður á Skaftafelli, f. 8. júní 1889, d. 13. júlí 1963, og kona hans Halldóra Kristín Þórólfsdóttir frá Hólmaseli í Flóa, Árn., húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 10. janúar 1985.

Börn Halldóru Kristínar og Guðjóns:
1. Ingólfur Guðjónsson í Lukku, verkamaður, hænsna- og garðyrkjubóndi, f. 15. júlí 1913 á Brekku, d. 23. janúar 1999. Kona hans Jóhanna Hjartardóttir.
2. Trausti Guðjónsson húsasmíðameistari, 13. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 2. desember 2008. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir.
3. Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, trúboði, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007. Maður hennar Jónas S. Jakobsson.
4. Auður Guðjónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, ræstitæknir, f. 7. apríl 1918, d. 30. maí 2001. Maður hennar Höskuldur Árnason.
5. Haraldur Guðjónsson verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993. Fyrri kona hans var Pálína Kristjana Guðleif Pálsdóttir. Síðari kona Hertha Haag, sænskrar ættar.
6. Rebekka Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1923, d. 21. jan. 1944. Maður hennar var Gunnar Davíðsson.
7. Elísabet Guðjónsdóttir Cortes hjúkrunarfræðingur, f. 5. mars 1926, d. 1. september 2015. Maður hennar var Thor Emanuel Cortes, látinn.
8. Óskar Guðjónsson trésmiður, f. 25. desember 1927. Kona hans Anna Jónsdóttir.
9. Anna Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. nóv. 1929, d. 23. ágúst 2011. Maður hennar Garðar Lárus Ragnarsson.
10. Ester Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1934, d. 2. desember 2012. Maður hennar Benedikt Frímannsson.
11. Hafliði Guðjónsson skrifstofumaður, f. 21. apríl 1936. Kona hans er Gyða Þórarinsdóttir.

ctr


Börnin á Skaftafelli.

Anna var með foreldrum sínum í æska.
Hún sat í Iðnskólanum einn vetur, lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1953, sat námskeið í hjúkrunarfræðum fyrir aldraða í Óðinsvéum.
Anna var hjúkrunarfræðingur á skurðstofu fæðingadeildar Landspítalans 1953-1954, á Bærum Sykehus í Osló og Rikshospital þar 1954-1955, í Svíþjóð september 1955 til janúar 1956.
Hún var yfirhjúkrunarfræðingur við Sjúkrahús Vestmannaeyja í 3 ár 1956-1959.
Anna var hjúkrunarfræðingur við Sjúkrah. Tönder á S-Jótlandi, lyfl.deild 1974, á hjúkrunarheimili fyrir aldraða 1975, hjúkrunarheimili fyrir aldraða í Óðinsvéum frá 1978.

I. Maður Önnu, (4. júní 1959), er Garðar Lárus Ragnarsson trúboði, f. 21. ágúst 1931. Foreldrar hans voru Ragnar Guðmundsson frá Ásbúð í Hafnarfirði, verslunarmaður í Reykjavík, f. 29. júní 1903, d. 3. september 1998, og kona hans Sigurbjörg Regína Magnúsdóttir frá Kirkjubóli við Laugarnesveg, húsfreyja, f. 29. mars 1909, d. 22. júlí 1991.
Börn þeirra:
1. Hlynur Garðarsson kennari, f. 10. febrúar 1961. Kona Randi Jensen.
2. Regína Garðarsdóttir Stampe hárgreiðslukona, læknaritari, býr í Noegi, f. 2. júlí 1962.
3. Ragnar Garðarsson hagfræðingur, f. 1. maí 1966. Kona hans Ólafía Daníelsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.