Guðjón Hafliðason (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón

Guðjón Hafliðason fæddist 8. júlí 1889 að Fjósum í Mýrdal og lést 13. júlí 1963. Eiginkona Guðjóns var Halldóra Þórólfsdóttir. Áttu þau 11 börn; Ingólf, Trausta, Guðbjörgu, Auði, Harald, Rebekku, Elísabetu, Óskar, Önnu, Ester og Hafliða. Þau bjuggu í húsinu Skaftafell við Vestmannabraut og voru fjölskyldumeðlimir gjarnan kenndir við húsið.

Börnin frá Skaftafelli: Frá v: Hafliði, Ester, Anna, Óskar, Elísabet, Guðbjörg, Auður, Rebekka, Ingólfur, Haraldur og Trausti.

Guðjón fór til Vestmannaeyja árið 1911 og gerðist háseti á Íslending hjá Friðriki Jónssyni og var með honum til ársins 1914. Þá byrjar Guðjón formennsku á Mýrdæling I og var með þann bát í fimmtán vertíðir. Eftir það kaupir hann Mýrdæling II og var með hann til ársins 1936. Eftir það hætti hann formennsku.


Heimildir

Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
Ljósmyndasafnið.

Frekari umfjöllun

Guðjón Hafliðason frá Fjósum í Mýrdal, skósmiður, skipstjóri, útgerðarmaður fæddist þar 10. júní 1889 og lést 13. júlí 1963.
Foreldrar hans voru Hafliði Narfason bóndi í Fjósum, f. 25. janúar 1838, d. 10. september 1895, og síðari kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 25. apríl 1855 í Breiðuhlíð í Mýrdal, d. 11. mars 1931.

I. Börn Hafliða Narfasonar og fyrri konu hans Guðrúnar Þorsteinsdóttur í Eyjum:
1. Guðrún á Kiðjabergi móðir
2. Þorsteinn Hafliðason skósmiður, faðir
3. Þórunn Jakobína Hafliðadóttir húsfreyja á Eyjarhólum.
II. Börn Hafliða Narfasonar og síðari konu hans Guðbjargar Jónsdóttur í Eyjum:
1. Guðjón Hafliðason á Skaftafelli, faðir Skaftafellssystkina,
2. Jón Hafliðason á Bergstöðum faðir
3. Karólína Margrét húsfreyja, síðar í Hafnarfirði, móðir

Guðjón var með foreldrum sínum í Fjósum til 1896, hjá móður sinni í Breiðuhlíð 1896-1897, tökubarn í Skammadal í Mýrdal 1897-1898, hjá móður sinni á Skagnesi þar 1899-1900, léttadrengur í Miðeyjarhólmi 1900-1903, léttadrengur og síðan vinnumaður á Felli í Mýrdal 1903-1907. Hann fór til Rvk 1907, lærði skósmíði hjá Þorsteini bróður sínum, flutti með honum 1908 til Eyja, stundaði skósmíðar á vetrum, en sumarróðra frá Norðfirði og Seyðisfirði 1908-1912. Guðjón stundaði sjómennsku, var háseti á Íslendingi til 1914, keypti bátinn Mýrdæling VE 283 með öðrum og var formaður á honum 11 vertíðir 1929-1940. Hafliði var formaður á Jóni Þorlákssyni úr Rvk 1941. Hann hætti útgerð 1947. Guðjón var leigjandi í Hlíð við Skólaveg 4b 1910.
Þau Halldóra giftu sig, eignuðust 11 börn. Þau bjuggu á Brekku við Faxastíg 4 við fæðingu Ingólfs, á Eyjarhólum við Hásteinsveg 20 við fæðingu Trausta, komin að Skaftafelli við fæðingu Guðbjargar 1916. Þau bjuggu síðan á Skaftafelli við Vestmannabraut 62.
Guðjón lést 1963 og Halldóra 1985.

I. Kona Guðjóns var Halldóra Þórólfsdóttir frá Hólmaseli í Gaulverjabæjarhreppi, Árn., húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 10. janúar 1985.
Börn þeirra:
1. Ingólfur Guðjónsson í Lukku, verkamaður, hænsna- og garðyrkjubóndi, f. 15. júlí 1913 á Brekku, d. 23. janúar 1999. Kona hans Jóhanna Hjartardóttir.
2. Trausti Guðjónsson húsasmíðameistari, 13. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 2. desember 2008. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir.
3. Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, trúboði, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007. Maður hennar Jónas S. Jakobsson.
4. Auður Guðjónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, ræstitæknir, f. 7. apríl 1918, d. 30. maí 2001. Maður hennar Höskuldur Árnason.
5. Haraldur Guðjónsson verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993. Fyrri kona hans var Pálína Kristjana Guðleif Pálsdóttir. Síðari kona Hertha Haag, sænskrar ættar.
6. Rebekka Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1923, d. 21. jan. 1944. Maður hennar var Gunnar Davíðsson.
7. Elísabet Guðjónsdóttir Cortes hjúkrunarfræðingur, f. 5. mars 1926, d. 1. september 2015. Maður hennar var Thor Emanuel Cortes, látinn.
8. Óskar Guðjónsson trésmiður, f. 25. desember 1927. Kona hans Anna Jónsdóttir.
9. Anna Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. nóv. 1929, d. 23. ágúst 2011. Maður hennar Garðar Lárus Ragnarsson.
10. Ester Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1934, d. 2. desember 2012. Maður hennar Benedikt Frímannsson.
11. Hafliði Guðjónsson skrifstofumaður, f. 21. apríl 1936. Kona hans er Gyða Þórarinsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Myndir