Tómas Jóhannesson (Knarrarhöfn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. október 2024 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. október 2024 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Tómas Jóhannesson (Knarrarhöfn)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Tómas Jóhannesson frá Knarrarhöfn, starfar við fjárreiðumál hjá Ísfélaginu fæddist 2. mars 1956.
Foreldrar hans voru Jóhannes Tómasson frá Höfn, bankastarfsmaður, aðstoðarútibússtjóri, f. 13. mars 1921, d. 18. júlí 2015, og kona hans Guðfinna Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 8. júní 1923, d. 10. október 2019.

Börn Guðfinnu og Jóhannesar:
1. Margrét Rósa Jóhannesdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 23. mars 1948. Maður hennar Gylfi Tryggvason.
2. Erna Jóhannesdóttir kennari, íþróttakennari, fræðslufulltrúi, f. 6. júlí 1950. Maður hennar Egill Egilsson.
3. Tómas Jóhannesson gjaldkeri, f. 2. mars 1956. Kona hans Fanney Björk Ásbjörnsdóttir.
4. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra, f. 4. janúar 1959. Kona hans Halldóra M. Hermannsdóttir.
5. Ingunn Lísa Jóhannesdóttir húsfreyja, starfsmaður í þvottahúsi, f. 9. október 1961. Maður hennar Valtýr Þór Valtýsson, látinn. Sambúðarmaður hennar Sveinbjörn Guðmundsson.
6. Iðunn Dísa Jóhannesdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 9. október 1961. Maður hennar Ágúst Einarsson.

Þau Fanney Björk giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Dverghamar 40.

I. Kona Tómasar er Fanney Björk Ásbjörnsdóttir, húsfreyja, leikskólakennari, f. 17. apríl 1956.
Börn þeirra:
1. TinnaTómasdóttir, f. 6. október 1979.
2. Thelma Ýr Tómasdóttir, f. 19. október 1983.
3. Tanja Tómasdóttir, f. 8. ágúst 1989.
4. Tómas Orri Tómasson, f. 25. júní 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.