„Menning“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(breyting: ábendingar frá Kára Bjarnasyni)
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:


== Skólamál ==
== Skólamál ==
[[Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum]] er í stöðugri sókn, meðal annars er reynt að lokka námsmenn annars staðar af landinu til Eyja en tilraunir hafa staðið yfir með að bjóða námsmönnum af Suðurlandi til staðarins. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa komið sér upp útibúum á Heimaey og er öflugt starf unnið í fjarnámi, þar sem boðið er upp á kennaranám, viðskiptafræði og margt fleira. Grunnskólarnir eru tveir, [[Barnaskólinn í Vestmannaeyjum]] og [[Hamarsskóli Vestmannaeyja]]. Grunnskólarnir voru nýlega sameinaðir undir einni yfirstjórn, og ber nafnið Grunnskóli Vestmannaeyja og skólastjóri er [[Fanney Ásgeirsdóttir]].Tveir leikskólar sinna yngstu kynslóðinni; [[Kirkjugerði]] og [[Sóli]]. Árið 2007 voru Rauðagerði og Sóli sameinaðir undir nafni Sóla í hinu nýja glæsilega húsnæði. Gamli Sóli hefur verið rifinn.
[[Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum]] er í stöðugri sókn, meðal annars er reynt að lokka námsmenn annars staðar af landinu til Eyja en tilraunir hafa staðið yfir með að bjóða námsmönnum af Suðurlandi til staðarins. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa komið sér upp útibúum á Heimaey og er öflugt starf unnið í fjarnámi, þar sem boðið er upp á kennaranám, viðskiptafræði og margt fleira. Grunnskólarnir eru tveir, [[Barnaskólinn í Vestmannaeyjum]] og [[Hamarsskóli Vestmannaeyja]]. Grunnskólarnir voru nýlega sameinaðir undir einni yfirstjórn, og ber nafnið Grunnskóli Vestmannaeyja og skólastjóri er [[Fanney Ásgeirsdóttir]].Tveir leikskólar sinna yngstu kynslóðinni; [[Kirkjugerði]] og [[Sóli]]. Árið 2007 voru Rauðagerði og Sóli sameinaðir undir nafni Sóla í nýju glæsilega húsnæði.


== Söfn ==
== Söfn ==
Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en [[Safnahús Vestmannaeyja]] sem stendur við Ráðhúströð hýsir [[Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja]], [[Bókasafn Vestmannaeyja]] og [[Byggðasafn Vestmannaeyja]]. Einnig er þar til húsa [[Ljósmyndasafn Vestmannaeyja|Ljósmyndasafn]]. Við Heiðarveg stendur [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja]], en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið [[Landlyst]], sem áður var staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi.  
Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en [[Safnahús Vestmannaeyja]] sem stendur við Ráðhúströð hýsir [[Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja]], [[Bókasafn Vestmannaeyja]] og [[Byggðasafn Vestmannaeyja]]. Einnig er þar til húsa [[Ljósmyndasafn Vestmannaeyja|Ljósmyndasafn]]. Við Heiðarveg stendur [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja]], en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið [[Landlyst]], sem áður var staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi.  
Ríkisstjórn Íslands keypti í desember 2004 afnotarétt af myndum [[Sigmund]]s sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi.
Ríkisstjórn Íslands keypti í desember 2004 afnotarétt af myndum [[Sigmund]]s sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi.
Í Eyjum er fjöldi [[listaverk og minnisvarðar|listaverka og minnisvarða]].
Í Eyjum er fjöldi [[:Flokkur:Listaverk|listaverka og minnisvarða]].


== Orðaforði og málvenjur ==
== Orðaforði og málvenjur ==
Algengt var að eldri Vestmannaeyingar töluðu með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna og er flámæli nú nær óþekkt. Á einangröðum stöðum eins og Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til. Nokkur dæmi um slík orð eru:
''Sjá aðalgrein:[[Orðaforði og málvenjur]]''


* ''útsuður'' - suðvestur, í átt að eyjunum sem eru þar, [[Suðurey]], [[Brandur|Brandi]] , og fleiri.
Algengt var að eldri Vestmannaeyingar töluðu með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna og er flámæli nú nær óþekkt. Á einangröðum stöðum eins og Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til.
* ''landsuður'' - merkir á sama hátt suðaustur.
* ''landnorður'' - norðaustur, í átt að meginlandi Íslands. Í landnorðri eru [[Elliðaey]] og [[Bjarnarey]], því að oftast er miðað við [[Heimaey]] í þessum áttalýsingum.
* ''útnorður'' - merkir á sama hátt norðvestur.
* Áður fyrr var algengt Eyjamenn töluðu um að hann væri að ganga í ''lannering'' sem er afbökun á „landnyrðing“ norðaustanátt. Á sama hátt var talað um ''útsyning'' sem er afbökun á „útsynning“ suðvestanátt.
* Þessi heiti á áttum og vindáttum eru reyndar vel þekkt um nær allt land og eru ævagömul. Landnámsmenn tóku þessar áttakenningar með sér frá Noregi þar sem þær voru bundnar við staðhætti á vesturströndinni og áttu þær því misjafnlega vel við hér á landi. Í Vestmannaeyjum falla þær einkar vel staðháttum og hafa því lifað hér góðu lífi, allt fram á okkar daga en þessi áttaheiti eru minna notuð annars staðar á landinu.


* ''peyi'' - ungur strákur. Einnig hefur orðið ''polli'' skotið upp kollinum á seinni árum, líklega fyrir áhrif ofan af fastalandinu.
== Hátíðir ==
* ''pæja'' - ung stúlka. Samanber [[Pæjumótið]] í fótbolta. Þetta orð er þó mun yngra í málfari Eyjamanna en peyi og áður fyrr var ævinlega talað um ''stelpur.''.
''Sjá aðalgrein:[[Hátíðir]]''
* ''lagga'' - lögga. Sérstök mynd af orðinu, og á meðal barna er frasinn „lagga tagga táfýla“ oft notaður.
* ''tríkot'' - íþróttagalli. Orðið er komið af frá því [[ÍBV]] pantaði íþróttagalla erlendis frá rétt eftir miðja síðustu öld, en allir gallarnir sem komu voru merktir framleiðanda þeirra - ''Tricot''. Frá þeim tíma hafa íþróttagallar af öllum toga hlotið þetta heiti.
* ''gæjalegt'' - tiltölulega nýtt orð í orðaforða Eyjamanna en þar sem aðrir landsmenn nota orðið, eðli þess samkvæmt, yfir karlkynið, gera Eyjamenn engan greinarmun á kynjum og tala gjarnan um að stúlka, sem þeim þykir álitleg, sé ''gæjaleg''.


== Þjóðhátíð ==
Margir fastir viðburðir eru í Vestmannaeyjum ár hvert. Helst er nefna [[Þjóðhátíð]]ina, [[Sjómannadagurinn|Sjómannadaginn]], [[Goslokahátíðin]]a, [[Pysjuævintýrið]] og fjöldann af íþróttamótum.
''Sjá aðalgrein:[[Þjóðhátíð]]''
 
Fræg er [[Þjóðhátíð í Eyjum|þjóðhátíð]] Eyjamanna, sem haldin er ár hvert um verslunarmannahelgina og dregur til sín fólk allsstaðar að af landinu. Til hennar var fyrst stofnað árið 1874, þegar eyjaskeggjar komust ekki til hátíðahalda í landi í tengslum við 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar og móttöku fyrstu stjórnarskrár landsins á Þingvöllum úr hendi Kristjáns IX, Danakonungs. Þá ákváðu Vestmannaeyingar halda sína eigin hátíð.
Sú hefð var að íþróttafélög bæjarins, áður [[Íþróttafélagið Þór|Þór]] og [[Knattspyrnufélagið Týr|Týr]] sáu um framkvæmd Þjóðhátíðar til skiptis, en eftir sameiningu þeirra sér nú [[ÍBV]] um framkvæmdina, og fær ágóðann af henni til að halda uppi öflugu félagsstarfi sínu allt árið um kring.
 
Hátíðin er haldin í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]] um verslunarmannahelgina og eru fastir liðir hennar brenna á Fjósakletti, flugeldasýning og brekkusöngur, sem hefur verið undir stjórn [[Árni Johnsen|Árna Johnsen]] í tæpa þrjá áratugi.
 
Auk Þjóðhátíðar eru margar aðrar hátíðir haldnar. Helst má nefna Goslokahátíðina, Sjómannadaginn, Jónsmessu og fleiri minniháttar skemmtanir.  


== Samgöngur ==
== Samgöngur ==

Útgáfa síðunnar 11. júlí 2007 kl. 15:08

Vestmannaeyjar hafa verið mikilvægasta verstöð landsins til fjölda ára og byggist afkoma heimamanna að mestu leyti á fiskvinnslu og útgerð. Auk þess eru ört vaxandi atvinnuvegir eyjaskeggja í dag ferðaþjónusta, verslun, skipaviðgerðir og menntun. Vestmannaeyingar vonast til að ferðaþjónusta aukist, bæði til að bæta atvinnuástand og fleiri fái að upplifa það sem eyjarnar hafa upp á að bjóða. Í Eyjum hafa verið teknir upp nokkrir sjónvarpsþættir og kvikmyndir.

Mörg póstkort hafa verið gefin út með myndum af Vestmanneyjum.

Skólamál

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í stöðugri sókn, meðal annars er reynt að lokka námsmenn annars staðar af landinu til Eyja en tilraunir hafa staðið yfir með að bjóða námsmönnum af Suðurlandi til staðarins. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa komið sér upp útibúum á Heimaey og er öflugt starf unnið í fjarnámi, þar sem boðið er upp á kennaranám, viðskiptafræði og margt fleira. Grunnskólarnir eru tveir, Barnaskólinn í Vestmannaeyjum og Hamarsskóli Vestmannaeyja. Grunnskólarnir voru nýlega sameinaðir undir einni yfirstjórn, og ber nafnið Grunnskóli Vestmannaeyja og skólastjóri er Fanney Ásgeirsdóttir.Tveir leikskólar sinna yngstu kynslóðinni; Kirkjugerði og Sóli. Árið 2007 voru Rauðagerði og Sóli sameinaðir undir nafni Sóla í nýju glæsilega húsnæði.

Söfn

Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en Safnahús Vestmannaeyja sem stendur við Ráðhúströð hýsir Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja, Bókasafn Vestmannaeyja og Byggðasafn Vestmannaeyja. Einnig er þar til húsa Ljósmyndasafn. Við Heiðarveg stendur Náttúrugripasafn Vestmannaeyja, en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið Landlyst, sem áður var staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi. Ríkisstjórn Íslands keypti í desember 2004 afnotarétt af myndum Sigmunds sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi. Í Eyjum er fjöldi listaverka og minnisvarða.

Orðaforði og málvenjur

Sjá aðalgrein:Orðaforði og málvenjur

Algengt var að eldri Vestmannaeyingar töluðu með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna og er flámæli nú nær óþekkt. Á einangröðum stöðum eins og Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til.

Hátíðir

Sjá aðalgrein:Hátíðir

Margir fastir viðburðir eru í Vestmannaeyjum ár hvert. Helst er að nefna Þjóðhátíðina, Sjómannadaginn, Goslokahátíðina, Pysjuævintýrið og fjöldann af íþróttamótum.

Samgöngur

Sjá aðalgrein:Samgöngur

Góðar samgöngur eru við Eyjar hvort sem er með flugi eða ferju. Á síðustu árum hafa verið uppi miklar vangaveltur um það hvort mögulegt sé að grafa jarðgöng til Vestmannaeyja, og hefur verið stofnað áhugamannafélagið Ægisdyr um gerð slíkra gangna. Ekki eru allir sammála um að göng sé rétta lausnin, en eru þó bæjabúar upp til hópa sammála um að samgöngur milli lands og eyja þurfi að bæta.

Farþegaskipið Herjólfur siglir alla daga tvær ferðir, og getur skipið borið 500 farþega og um 60 fólksbíla.

Flugsamgöngur eru algjörlega háðar veðri, en flogið er á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, og einnig Bakkaflugvallar. Landsflug sér um flug til Reykjavíkur, og Flugfélag Vestmannaeyja um flugið á Bakka og aðra áfangastaði á Suðurlandi. Fyrsta flug til Eyja átti sér stað árið 1928 eftir nokkrar tilraunir árin áður.


Menning:     HátíðirÍþróttirÞjóðsögurFólkKirkjumálFélögSkipafloti VestmannaeyjaHúsin á HeimaeyRitsafn