Kvikmyndir
Fara í flakk
Fara í leit
Vestmannaeyjar eru fallegar og virka eins og náttúruleg leikmynd fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndir.
Sjónvarpsþættir
- Sigla himinfley, 1996. Leikstjórn og handrit: Þráinn Bertelsson, framleiðandi Nýtt líf.
Þættir sem fjalla um lífið í sjávarþorpinu Vestmannaeyjum. Heiti þáttanna vísar til ljóðlínu Ása í Bæ í ljóðinu Heima.
- Danski spennumyndaflokkkurinn Örninn[1] fjallar um rannsóknarlögreglumann sem er ættaður frá Vestmannaeyjum.
Kvikmyndir
- Enemy Mine, 1985. Upphaflega var myndin tekin upp á Heimaey en myndinni var eytt og hún tekin upp í Þýskalandi og á Kanaríeyjum.
- Nýtt líf, 1983. Leikstjórn og handrit: Þráinn Bertelsson, framleiðandi Nýtt líf.
- Stormy Weather, 2003. Leikstjórn: Sólveig Anspach
Heimildarmyndir
- Ég lifi Vestmannaeyjagosið 1973, 2003. Stjórnandi: Magnús Viðar Sigurðsson. Handrit: Margrét Jónasdóttir. Framleiðandi: Páll Baldvin Baldvinsson/Storm/Stöð 2