Sæunn Helena Guðmundsdóttir
Sæunn Helena Guðmundsdóttir, húsfreyja, vinnur í þjónustuíbúðum aldraðra í Eyjum, fæddist 19. nóvember 1960 á Lyngbergi.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905 á Leirum u. Eyjafjöllum, d. 14. september 1981, og síðari kona hans Herdís Einarsdóttir Höjgaard frá Bakka í Bakkafirði í N. Múl., húsfreyja, f. 25. október 1920, d. 22. nóvember 2003.
Börn Herdísar og Guðmundar:
1. Ólöf Díana Guðmundsdóttir, f. 6. júní 1946 á Lyngbergi. Maður hennar Njáll Ölver Sverrisson.
2. Jón Einar Guðmundsson, f. 18. apríl 1950 á Lyngbergi. Kona hans Sólveig Snorradóttir.
3. Viðar Guðmundsson, f. 24. júní 1957 á Lyngbergi. Kona hans Lára Emilsdóttir.
4. Sæunn Helena Guðmundsdóttir, f. 19. nóvember 1960 á Lyngbergi. Maður hennar Haraldur Haraldsson.
Börn Guðmundar frá fyrra hjónabandi hans:
5. Fanney Guðmundsdóttir, f. 22. maí 1934 í Ásnesi. Maður hennar Jón Hólmgeirsson.
6. Andvana stúlka, f. 9. júlí 1935 í Hljómskálanum, (Hvítingavegi 10).
7. Hrefna Guðrún Guðmundsdóttir, f. 11. september 1936 í Hljómskálanum, d. 2. maí 2010. Maður hennar Guðbrandur Eiríksson.
8. Unnur Guðmundsdóttir, f. 10. júlí 1938 í Hljómskálanum, d. 25. apríl 1997. Maður hennar Ólafur Ágústsson.
9. Már Guðmundsson málari, f. 19. ágúst 1939 í Hljómskálanum. Kona hans Jóhanna Kristjánsdóttir.
Þau Haraldur hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Foldahraun 38.
I. Maður Sæunnar Helenu er Haraldur Haraldsson, sjómaður, vélstjóri, nú starfsmaður í Áhaldahúsinu, f. 17. apríl 1962.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Daði Haraldssson, f. 19. nóvember 1982.
2. Karítas Haraldsdóttir, 2. júní 1997.
3. Hersir Haraldsson, f. 2. júní 1997.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sæunn Helena.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.